22.01.1945
Efri deild: 108. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (3150)
225. mál, prófessorsembætti dr. Sigurðar Nordals
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Ég skal ekki tefja mikið þessa umr., en vildi aðeins beina fyrirspurnum til hv. frsm., áður en gengið verður til atkv. um þetta mál.
Ég hjó eftir því, að hv. 6. þm. Reykv. sagði í ræðu sinni, að prófessor Sigurður Nordal mundi vinna fyrir þessum fríðindum, sem hann fengi, með ritstörfum. Í sambandi við þetta vildi ég spyrjast fyrir um, hvort það er tilætlunin, ef þessi l. verða samþ., að Háskólinn eigi öll verk Nordals, sem hann kann að rita, meðan hann situr á þessum launum, því að að öðrum kosti hefur hv. þm. hlotið að meina eitthvað annað en hann mundi vinna fyrir því fé. Ég hef ekki skilið þetta svo, en ég vildi gjarnan vita um þetta, áður en gengið er til atkv., því að ef svo er, þætti mér eðlilegast, að því væri bætt inn í l., að Háskólinn ætti þessi verk. En ef svo er ekki, skilst mér, að hér sé verið að setja hann á ákveðin laun sem uppbót fyrir það starf, sem hann er búinn að vinna áður.
Þá vildi ég einnig vita, hvort ætlunin er, að hann fái þessi laun fram að aldurstakmarkinu og komi þá á eftirlaun, eða hvort hann á að halda þessum launum, meðan hann lifir.
Þá hef ég einnig heyrt, að Sigurður Nordal hafi alla tíð haft hærri laun en aðrir prófessorar, að hann hafi beinlínis verið keyptur til landsins. Ég vildi fá upplýsingar um, hvort svo er og hvort ætlunin er að miða við þau laun, sem hann hefur nú, eða laun, sem almennt eru greidd prófessorum við Háskólann.
Um þetta vildi ég gjarnan vita, áður en gengið er til atkv. um málið.