09.03.1944
Neðri deild: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (316)

27. mál, skipun læknishéraða

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Eins og hv. þm. Rang. tók fram, þá hefur þetta mál tekið allverulegum breyt., frá því að það var síðast í þessari hv. d. Nú er gert ráð fyrir, að þessi l. öðlist gildi 1. jan. næsta ár, en eitt atriði í þeim þolir enga bið, en það er læknisbústaður og sjúkraskýli á Fljótsdalshéraði. Ég lít svo á, að full ástæða væri til, að frv., eins og það er nú orðið, væri athugað af heilbr.- og félmn. En eins og nú horfir, vinnst ekki tími til að afgr. þetta. — Ef þessi rökstudda dagskrá verður samþ., þá tel ég mér skylt fyrir hönd ríkisstj. að sjá um lausn þessa máls.

Nú er í ráði að skipa n. til að fara með þessi mál. Virðist því ekki eðlilegt að afgr. þetta nú, áður en þeirri n. hefur gefizt tækifæri til að athuga það.