09.03.1944
Neðri deild: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (317)
27. mál, skipun læknishéraða
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. — Ég sé hér fram komna till. um rökstudda dagskrá, þar sem málinu skal slegið á frest og jafnframt skorað á ríkisstj. að gefa út brbl. um stofnun læknishéraðs á Fljótsdalshéraði. — Ég er ekki ánægður með slíka afgreiðslu máls, sem legið hefur fyrir þinginu svo lengi. Ég er ekki á móti læknissetri á Fljótsdalshéraði, um það atriði virðast allir sammála, en hvað er það þá, sem hv. flm. þessarar rökstuddu dagskrár óttast? Ég tel, að málinu sé ekki stefnt í neinn voða, þótt samþ. verði önnur atriði frv., og hygg ég, að Alþ. þurfi ekki að bera kinnroða fyrir ákvarðanir þar um.
Eins og ég hef áður bent á, þá hníga öll rök að því að stofna þau héruð, sem hér er lagt til, bæði með tilliti til fólksfjölda og erfiðleika á því að ná í lækni. Ég get ekki skilið, hvernig landlæknir og þm. Rang. geta komizt þannig að orði, að hér sé verið að stofna heilbrigðismálunum í voða.
Forsrh. sagði, að ekki lægi á að flýta þessu máli svo mjög, en verði því vísað til n., þá tel ég líklegt, að afgreiðsla þess bíði næsta árs. Af þessum ástæðum tel ég, að samþykkt þessarar rökstuddu dagskrár yrði til þess að vinna málinu verulegt ógagn.
Ég ræði ekki þær brtt., sem hér hafa komið fram. Báðar eiga þær vafalaust nokkurn rétt á sér, en fyrir þeim eru ekki eins gildar ástæður og öðrum atriðum þessa máls.
Ég tel, að skilningur hv. þm. Rang. á þessu máli sé rangur. Aðalatriðin eru tvö: Fyrst er það, að menn geti náð til læknis, þegar hann er fáanlegur í héraðinu, hitt, á hvern hátt á að fá lækna til að fara út á land. — Ég hef komið fram með till. um þessi atriði, en þessu tvennu má ekki rugla saman.
Að lokum virðist mér, að þm. Rang. væri nær að beina geiri sínum í aðra átt en til að hindra það, að fólk, sem erfiðast á um læknissókn, fái lækni. Honum væri nær að vinna að því innan sinnar eigin stéttar, að læknar fengjust út á land.