09.03.1944
Neðri deild: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (320)

27. mál, skipun læknishéraða

Helgi Jónasson:

Ég mun ekki verða langorður, en mér þykir hart að fá ákúrur frá hv. þm. Snæf. fyrir það, að ég sé á móti fólkinu í dreifbýlinu. Ég vil segja honum, að ég er nú bráðum 50 ára og hef alltaf verið í dreifbýlinu og býst við, að ég þekki þarfir fólksins þar og hafi ekki gert minna til að sinna því en hann sjálfur.

Hann segir, að ég sé á móti stofnun læknishéraða. En eins og ég hef tekið fram, verða þetta brbl. aðeins á pappírnum, sem ekki verður hægt að framfylgja. Þess vegna vil ég, að öll málin séu tekin til athugunar af mþn., en ég vil taka fram, að ég skil vel þörfina til úrbóta. Ég álít, að tveir aðilar, sem eru Læknafélagið og landlæknir, eigi að vera með í ráðum um þetta. — Það er ekki vansalaust, að fjöldi fólks verður að vera án læknishjálpar eða þurfa að ná í hana með ærnum kostnaði. Um þetta eru allir sammála. En ég er ekki sammála hv. þm. Snæf. um, að það sé nóg að samþ. mörg læknishéruð án þess að gera ráðstafanir til, að í þau fáist menn. Ég veit, að það er nóg til af læknum í landinu, nóg af guðfræðingum og nóg af verkamönnum, og þó hefur fólkið í dreifbýlinu úti um land vantað þessa krafta. Það er ekki nóg, að við höfum nóg af læknum, það verður að finna ráð til að knýja þá með góðu eða illu út í dreifbýlið, og það er eitt, sem þessi n. verður að vinna að af fullri einlægni. Ég veit, að bæði Læknafélaginu og landlækni er ljóst, að þetta getur ekki svo til gengið til lengdar. Það er margt, sem kemur til greina, bæði launakjör og fleira, og ég held, að það sé engin goðgá, þó að það sé athugað og fólkið kynni sér kostnaðarhliðina. Það er ekki lengra síðan en í haust, að sett var fram till. um að stofna læknishérað með fimm hreppum, en svo var hætt við það og horfið að því að hafa hreppana ekki nema tvo og hálfan í þessu nýja héraði. Ég veit, að þessu fylgir mikill kostnaður. Ég er ekki að hafa á móti því, að fólkið fái lækna. Það hefur fulla þörf fyrir þá, en það verður að tryggja, að menn fáist í héruðin. Það er ekki nóg að semja l.

Nú liggur fyrir brtt. um tvö ný héruð, og ég býst við, að þau eigi eins rétt á sér og hin. En ég vil sem sagt leggja til, að engu sé slegið föstu nú, en n. athugi þetta gaumgæfilega og leggi fyrir Alþ. till. um, hvernig þessu verði bezt fyrir komið. Það er eins og ég hef sagt, að tilgangslaust er að hrúga upp l. Það leysir ekki úr vandræðunum að fá lækna, heldur verður að reyna með samkomulagi lækna, heilbrigðisstj. og Alþ. að gera viðunandi úrbætur. Það er öllum ljóst, að þetta ástand getur ekki gengið til lengdar.

Ég ætla ekki að hirða um þær hnútur, sem hv. þm. Snæf. sendi mér. Ég er búinn að vera læknir í dreifbýlinu í 22 ár, og ef allir væru eins, væri öllu betur borgið í þessu efni.