22.01.1945
Efri deild: 108. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1284 í B-deild Alþingistíðinda. (3219)
219. mál, dósentsembætti í guðfræðideild
Guðmundur I. Guðmundsson:
Herra forseti. — Fyrir nokkru var hér á ferð í hv. d. frv. til l. um breyt. á l. um Háskóla Íslands. Það frv. hafði hlotið mjög ýtarlegan og rækilegan undirbúning. M.a. hafði það frv. verið sérstaklega athugað í n. og sennilega líka samið af háskólaráði. Frv. hafði verið rætt á fundum háskólaráðs og á fundum innan Háskólans, og miklum tíma hafði verið varið í að undirbúa það sem allra rækilegast. Með frv. þessu mun því háskólaráð hafa litið svo á, að það hefði gert til fullnustu þær till., sem það teldi sig þurfa að gera um breyt. á skipun á kennaraliði Háskólans. Ég geri líka ráð fyrir, að svo hafi verið litið á hér á hæstv. Alþ., þegar það frv. kom fram, að þá hafi háskólaráð í raun og veru sagt það, sem það taldi sig þurfa að segja um skipun kennaraliðs Háskólans, og háskólaráð út af fyrir sig hefði þar engu við að bæta né frekari óskir fram að færa. Meðan þetta frv., sem ég gat nú um, var til afgreiðslu hér á hæstv. Alþ. þá var borið fram í hv. Nd. það frv., sem nú er hér til umr. Og það vakti strax athygli, þegar þetta frv. var lagt fram í Nd., að í því er lagt til, að bætt væri við einum kennara við Háskólann í guðfræðideild, en háskólaráð hafði þó ekki gert ráð fyrir þessari kennarafjölgun í sínu frv. Það kom líka greinilega í ljós í grg. með því frv., sem hér er til umr., að það var ekki til orðið innan Háskólans og ekki flutt samkvæmt ósk hans, heldur stóð biskupinn yfir Íslandi bak við þetta frv. og mun hafa haft stuðning frá prestum landsins til þess að bera það fram.
Ég verð að segja það fyrir mitt leyti, að mér kemur það dálítið undarlega fyrir sjónir, þar sem háskólaráð hefur áreiðanlega tekið til mjög ýtarlegrar athugunar, hvaða breyt. nauðsynlegt sé að gera á skipun Háskólans viðkomandi kennaraliði hans, þá skuli nú koma till. um að bæta nú við einum kennara í guðfræðideildinni. Mér kemur undarlega fyrir sjónir, að háskólaráð skyldi ekki koma auga á þessa nauðsyn. Það kemur líka mjög greinilega fram, þegar háskólaráði er sent frv. það, sem hér liggur fyrir, til athugunar, hver afstaða háskólaráðs er til þessa frv. Í nál. Nd. hefur verið tekin upp umsögn háskólaráðs um frv. Í þeirri umsögn kemur mjög greinilega fram, að frv. þetta um stofnun dósentsembættis í guðfræðideild Háskóla Íslands sé ekki fram komið að ósk háskólaráðs. Og fæ ég ekki betur séð en með þessari yfirlýsingu staðfesti háskólaráð eindregið þann grun, sem ýmsir höfðu um, að þetta frv. væri ekki flutt hér að vilja háskólaráðs og háskólaráðið teldi ekki nauðsyn á að stofna nýtt dósentsembætti við guðfræðideildina. (JJ: Það stendur fleira í umsögn háskólaráðs í grg.) Það stendur að vísu í þessari umsögn háskólaráðs, að kennsla verði aukin í guðfræðideildinni og það mæli með frv. þessu. (JJ: Það er nóg.) En sú staðreynd, að háskólaráð byrjaði á því að lýsa yfir, að frv. þetta væri ekki flutt að ósk þess, getur ekki skoðazt öðruvísi en svo, að háskólaráð út af fyrir sig sé andvígt þessari ráðstöfun, þó að það sjái ekki ástæðu til annars en taka við þessum nýja dósenti, ef kennurum verður fjölgað í guðfræðideildinni. Umsögn háskólaráðs getur aldrei orðið skoðuð á annan veg en þennan.
Mér virðist því, eins og málið liggur fyrir, að það, sem hér er að gerast, sé ekki annað en það, að nú eigi að troða upp á Háskólann nýjum dósenti, sem Háskólinn hafi ekki óskað eftir og háskólaráð vill lýsa yfir, að það beri ekki ábyrgð á, að frv. um það sé fram komið, þó að það vilji taka við manninum, ef Háskólanum er sendur hann.
Út frá þessari afstöðu háskólaráðs hef ég fyrir mitt leyti tekið þá afstöðu til þessa frv. að geta ekki fylgt því, og greiddi ég því þegar við 1. umr. atkv. á móti frv. Ég skal játa, að ég fyrir mitt leyti hef ekki þá þekkingu til að bera, að ég geti sjálfur um það dæmt, hvort það mundi verða nokkur efling fyrir guðfræðideildina, þó að þar verði nýjum dósenti bætt við, til þess að kenna þau nýju fög, sem hér er um að ræða í frv. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef aflað mér, og út frá þeirri þekkingu, sem ég hef á þeim, leyfi ég mér að efast um, að guðfræðideildin sé nokkru betur sett, þó að bætt verði við hana þeim dósenti, sem tilnefndur er í frv. Í 2. gr. frv. er um það talað, að það eigi að auka kennslu í deildinni í trúarbragðasögu, kirkjurétti og sálgæzlu, og skilst mér, að til þess sé ætlazt, að fjölgun dósenta við deildina eigi að koma til þess að ráða við þá kennsluaukningu. Fróðir menn hafa skýrt mér svo frá, að kennsla í trúarbragðasögu geti ekki orðið annað en aukastarf og það lítilfjörlegt aukastarf, sem kennurum, sem fyrir eru í deildinni, væri auðvelt að bæta við sig, þannig að vegna þess fags væri ekki nauðsyn á að bæta við kennurum við deildina. Fróðir menn hafa og sagt mér, að nefndur maður í þessu frv., sem væntanlega verður dósent, hafi ekki lagt neina sérstaka stund á sálgæzlu, og sé þess vegna ekki hægt að ætlazt til þess, að hann kenni það fag, þannig að þó að sá maður kæmi til Háskólans, mundi hann ekki geta tekið að sér kennslu í þessu fagi. Þriðja fagið er kirkjuréttur, sem hér er talað um að auka kennslu í. Og að því er ég bezt veit hefur það hingað til ekki verið talið á færi prestastéttarinnar að fást við kennslu í þeirri grein: Að því er ég bezt veit hefur sú kennsla verið verk lögfræðinga hingað til. Þegar kirkjuréttur hefur verið kenndur, hefur hann verið kenndur við lagadeildina, og guðfræðinemar hafa sótt tíma í lagadeildinni í þeirri grein. Þannig að eftir því, sem mér finnst málið liggja fyrir, þá virðist mér þær fræðigreinar, sem í frv. er talað um að auka kennslu í, sumpart vera þannig, að þeir kennarar, sem fyrir eru, geti bætt þeim á sig, en sumpart vera þannig, að það heyri undir aðra fræðimenn en í prestlegri stétt að fást við að kenna þær greinar. Og í þriðja lagi finnst mér sá maður, sem nefndur er í þessu sambandi hér í frv., hafi ekki lagt neina sérstaka stund á þessi fög. Eins og því málið horfir við, er frá mínum bæjardyrum séð ekki nauðsyn á að samþ. þetta frv. og bæta við kennara í guðfræðideildinni til þess að ráða við þær fræðigreinar, sem talað er um í 2. gr. frv.
Mér hefur og verið bent á það af kunnugum mönnum, að ef það er í raun og veru meiningin að auka kennslu í guðfræðideild Háskólans frá því, sem nú er, þá þurfi að gera þar annað og meira en fjölga þar kennurum, því að þá sé líka nauðsynlegt að lengja námstíma stúdentanna. Eins og nú er, mun námstími þeirra vera 4 ár. En í háskólum á öðrum Norðurlöndum mun guðfræðinámið vera 5 til 6 ára nám. Nú þegar er því námstími stúdenta í guðfræðideild styttri hér á landi en annars staðar. Og stúdentar telja sjálfir, að ef auka ætti kennslu í deildinni og þyngja námið, væri óhjákvæmilegt að lengja námstímann. En fyrir því er ekki séð í þessu frv., að námstíminn sé lengdur, og verður það að sjálfsögðu að skoðast galli.
Ég hef, ásamt hv. 7. landsk. þm., borið hér fram brtt. við 1. gr. frv., sem er á þskj. 906. Og hef ég borið þessa brtt. fram vegna þess, að þó að ég út af fyrir sig sé á móti þessu frv., þá vil ég samt gera tilraun til þess að sníða af því þann ágalla að formi til, sem ég tel, að sé á þessu frv. Í niðurlagi 1. gr. frv. er talað um það, að veita skuli sr. Birni Magnússyni prófasti að Borg þetta nýja dósentsembætti, ef stofnað verður. Ég fyrir mitt leyti ætla algerlega að leiða hjá mér, hvort þessi maður hefur verið grátt leikinn af ríkisvaldinu fyrr á árum og einnig nú við síðustu veitingu dósentsembættis við guðfræðideildina eða ekki. Ég ætla einnig að leiða hjá mér, hversu hæfur þessi maður sé yfirleitt til þess að ráða við þær kennslugreinar eða þau fög, sem kennarar guðfræðideildarinnar þurfa að fást við. Ég er fávís um þá hluti, ég játa það alveg eins og það er. Ég ætla mér ekki að leggja neinn dóm á þá hluti. En mér finnst út af fyrir sig ákaflega óviðkunnanlegt, að upp í sjálft lagafrv. og l., ef frv. verður samþ., skuli vera tekið nafn ákveðins manns. Mér finnst það form ákaflega óviðkunnanlegt, að það sé tekið fram í l. sjálfum, að ákveðnum manni skuli veita ákveðið embætti. Og ég geri ráð fyrir, að slíkt sé mjög óvenjuleg ráðstöfun. Mér fyrir mitt leyti er t.d. ekki kunnugt um, að þetta eigi sér fordæmi. Mér er ekki kunnugt um það, að hér hafi áður verið stofnað embætti og það beinlínis verið tekið fram í l., að í það skyldi skipast ákveðinn maður. Og ég verð að telja, að það gæti jafnvel verið hættulegt fordæmi, ef farið væri út á þá braut. Því að að sjálfsögðu mætti þá telja víst, ef þessu er slegið föstu, að viss maður fái embættið, að þá gætu einnig fleiri á eftir komið og í sambandi við lagasetningu yrði þess krafizt um fleiri stöður, að ákveðnir menn yrðu skipaðir í þær.
Mér finnst það líka talsvert óviðeigandi gagnvart hæstv. ríkisstj. að leggja fyrir hana að skipa ákveðinn mann í ákveðið embætti. Ég vænti, að hæstv. ráðh. gefi yfirlýsingu um, hvern hann muni skipa í embættið, ef það verður veitt. Og ef svo kynni að fara, að hæstv. ráðh. mundi vilja lýsa yfir, að í þetta embætti yrði skipaður þessi maður, þá vil ég mega vænta þess, að þeir, sem að þessu frv. standa, gætu fallizt á mína brtt. og það fyrst og fremst vegna þess fordæmis, sem í þessu liggur. Ég fæ ekki betur séð en þeir, sem hafa áhuga fyrir þessu máli, séu alveg jafnvel settir, þó að þetta verði fellt úr frv., ef svo kynni að fara, að hæstv. ráðh. gæfi um þetta yfirlýsingu. En með því að fara þá leið, sem við hv. 7. landsk. höfum lagt til í okkar brtt., þá er a.m.k. fyrir því séð, að ekki sé skapað fordæmi, sem ég tel í alla staði óviðeigandi.