26.01.1945
Efri deild: 111. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1302 í B-deild Alþingistíðinda. (3241)
219. mál, dósentsembætti í guðfræðideild
Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):
Herra forseti. — Hv. þm. Barð. hefur bent á það, að það er ekki til tekið í frv., frá hvaða tíma beri að veita. séra Birni Magnússyni þetta embætti, og hann. spurði, hvort ég mundi veita þetta embætti, ef ekki yrði um það sótt. — Það er dálítið erfitt. fyrir mig að svara, hvernig farið skuli með þessa. embættisveitingu, vegna þess hversu hún er óvenjuleg og einstæð í sinni röð. Það er ákaflega erfitt fyrir ólögfróðan mann að svara því, hvernig veita á slíkt embætti, hvort sækja beri um það eða hvort, ekki er ætlazt til þess, að um það verði sótt, og mundi ég sjálfsagt leita mér upplýsinga um það. En svo mikið er víst, að ég mundi ekki veita embættið, nema eindregin ósk kæmi frá séra Birni um, að honum yrði veitt embættið, og mundi mér ekki koma til hugar að veita embættið, ef viðkomandi maður vildi ekki taka við því.
Hvað snertir hitt atriðið, sem sé frá hvaða tíma embættið er veitt, þá er það algerlega á mínu valdi, eins og frv. er úr garði gert, og gæti dregizt eitthvað, að sú embættisveiting fari fram. Ég þori ekkert um það að segja, en álít tryggara fyrir flm. frv. að setja ákvæði í frv. um það, hvenær veitingin skuli fara fram. Vitanlega hef ég fullan rétt yfir þessu, því að í frv. stendur ekki annað en að það skuli vera tvö dósentsembætti við guðfræðideild Háskóla Íslands og séra Björn Magnússon verði skipaður í annað þeirra, en það stendur ekkert um, hvenær það skuli gert. Það væri því hægt að draga það, þangað til önnur ríkisstj. tæki við og annar maður tæki við embætti menntmrh., og væri þá ekki að vita, hvernig færi um þessa veitingu.
Viðvíkjandi því, sem nokkuð hefur komið til tals hér við umr., að séra Björn mundi ekki hafa skap til þess að sækja um þetta embætti, ef embættisveiting færi fram með venjulegum hætti, þá virðist mér það auðvelt fyrir séra Björn, — þó að hann sé skapmaður, sem mér þykir líklegt, að hann sé, eins og margir ágætismenn, — að sækja um það með venjulegum hætti, þannig að skipuð yrði dómnefnd samkv. reglum Háskólans, sem raunverulega réði mestu um það, hver embættið fengi. Séra Björn á vissulega engar sakir við Háskólann, þar sem hann hefur í bæði skiptin verið dæmdur hæfur, sem hann hefur sótt um dósentsembætti. Aftur á móti tel ég hann eiga sakir við veitingarvaldið, og eftir þær umr., sem farið hafa fram um þetta mál hér á Alþ., þá finnst mér næsta óskiljanlegt, hvernig séra Björn hefði skap í sér til þess að sækja um embætti til menntmrh. eða láta óska eftir því, að honum yrði veitt embættið, sem vitaskuld er það rétt hjá hv. þm. Barð., að slík ósk verður að koma fram, hann verður að sækja um það, og kemur ekki til mála að veita embættið, nema full vissa sé fyrir því, að séra Björn taki við því. Það skiptir ekki máli, hvort hann sækir um það sjálfur eða lætur annan sækja fyrir sig, sem væri næsta broslegt, og dettur mér ekki í hug, að hann ætli að fara þá leið.