05.02.1945
Efri deild: 118. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í B-deild Alþingistíðinda. (3263)
219. mál, dósentsembætti í guðfræðideild
Magnús Jónsson:
Út af ummælum hæstv. ráðh. vil ég aðeins gera þá grein fyrir atkv. mínu, að þótt ég greiði atkv. á móti brtt., þá er það í jafnfullu trausti þess, að hæstv. kennslumrh. muni veita þetta embætti við fyrstu hentugleika, og í því felst alls engin viljayfirlýsing frá minni hendi um, að embættið verði ekki veitt á þessu ári, heldur af því, að ég treysti hæstv. ráðh. fullkomlega til að fara eftir þeim vilja Alþingis, sem fram kemur í samþykkt þessa frv.