21.11.1944
Efri deild: 71. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í C-deild Alþingistíðinda. (3277)

121. mál, mat á beitu o.fl.

Frsm. minni hl. (Steingrímur Aðalsteinsson):

Herra forseti. — Ég hef nú kannske ekki ástæðu til þess að tefja mikið umr. um þetta, en ég vil þó samt fara nokkrum orðum um sumt af því, sem hv. frsm. n. sagði hér í síðustu ræðu sinni. Hann vildi ekki fallast á þá skoðun, sem ég hélt fram um Fiskifélag Íslands, að það væri aðeins fulltrúi útgerðarmanna, sem að því stæðu, og er það beinlínis samkv. skipulagi félagsins í sambandi við fulltrúaskipun þess, heldur væri það einnig fulltrúi hlutarmannanna á bátum þessara útgerðarmanna.

Það getur vel verið, að mér takist ekki að sannfæra hv. frsm. (GJ), en honum tekst þá ekki heldur að sannfæra mig. Ég hef þá skoðun, að það sé ekki hægt að líta á Fiskifélag Íslands nema sem fulltrúa útgerðarmanna, en ekki sem fulltrúa hlutarmanna. Mér er nú kannske ekki eins vel kunnugt um skipulag Fiskifélagsins og hv. þm. Barð. Þó hefur mér skilizt, að t. d. hvað varðar fulltrúaréttindi á þingum þess, þá sé þar veitt ákveðin atkvæðatala fyrir vissar atvinnugreinir og tæki, þar sem hlutarmenn, að því er ég bezt veit, hafa ekki nein félagsréttindi. Samkoman er þannig saman sett, að ég get ekki álitið Fiskifélagið neinn fulltrúa þeirra manna, sem ekki hafa þar sjálfir nein fulltrúaréttindi.

Þá sagði hv. frsm. meiri hl. n., að jafnvel þó að væri farið inn á þá skoðun, að Fiskifélag Íslands væri aðallega fulltrúi útgerðarmanna, en ekki hlutarmanna, þá skipti það ekki sérstaklega máli í þessu sambandi, vegna þess að hagsmunir þeirra færu saman um það, að beitan væri fryst og alltaf fyrir hendi á hverjum tíma, því að um leið og það hefði áhrif á hlut hlutarmanna, þ. e. að hann yrði stærri, hefði það sams konar áhrif á hlut útgerðarmannsins og þess vegna hlyti útgerðarmaðurinn að beita sér fyrir þessu á sama hátt. Þetta getur í ýmsum tilfellum verið rétt. En ég álít, að í ýmsum tilfellum þurfi þetta ekki að vera þannig og geti jafnvel ekki átt sér stað. Það getur komið fyrir, og mér er ekki grunlaust um, að það hafi átt sér stað og eigi sér stað, að ef útgerðarmaður, sem hefur alls konar útgerð með höndum og hefur einnig frystihús, sem tekur að sér að frysta beitu, þá geti hann haft meiri hag af því að selja beituna með sem hæstu verði, því að þótt þeir, sem aðeins hafa útgerð með höndum, hafi hag af því að fá sem ódýrasta beitu, þarf það ekki að vera fyrir þann, sem á líka frystihúsið, því að hann græðir það á frystihúsinu, sem hann tapar á útgerðinni.

Þá var hv. frsm. meiri hl. að tala um Alþýðusambandið með sitt mikla veldi og áleit, að það gæti þá beitt áhrifum sínum við Fiskifélagið til þess, að Fiskifélagið gætti hagsmuna hlutarmanna. Ég held, að það sé alveg óþarfi fyrir Alþýðusamband Íslands að fara nokkrar krókaleiðir. Alþýðusambandið telur hlutverk sitt að gæta hagsmuna hlutarmanna eins og annarra samtaka þeirra manna, sem í því eru og hafa sitt vinnuafl til þess að afla sér og sínum lífsviðurværis. Og það gerir það, sem það getur, til þess að hlynna að hagsmunum þeirra manna beinlínis og þarf ekki að hafa þar neinar krókaleiðir. Alþýðusambandið mun ekki fara þá leið að knýja aðrar stofnanir til þess að gæta þeirra hagsmuna, sem það hefur tekið að sér að gæta, svo framarlega sem það hefur aðstöðu og bolmagn til.

Þá eru það möguleikar síldarverksmiðjunnar á Siglufirði til þess að frysta og selja beitu með vægara verði en aðrir kynnu að gera eða hafa gert í ýmsum tilfellum undanfarið. Það er að vísu rétt, sem hv. frsm. n. hefur sagt hér, að það er ekki hægt, hvort sem það er síldarverksmiðja ríkisins eða annar aðili, að byggja frystihús til þess að nota það svo aðeins til ígripa, þegar beitunefnd eða þeir aðilar, sem um þetta kynnu að fjalla, þyrftu. Það er gefið mál, að ef tekið væri upp þetta ráð, yrði reynt um leið að láta þetta frystihús annast beitufrystingu upp frá því, a. m. k. þangað til önnur skipun yrði gerð á þeim málum. En það, sem ég á við, er, að ekki yrði gripið til þessa úrræðis fyrr en beitunefnd er sannfærð um, að hún nái ekki nógu góðum samningi við þau frystihús, sem fyrir eru, vegna þess m. a., að frystihúsin telji sig hafa öðrum hagkvæmari verkefnum að sinna en frystingu beitu. En eins og ég gat um áðan, að þótt það sé ekki líklegt, að slíkt frystihús gæti borið sig og skaffað beitu með lægra verði, ef það væri rekið aðallega sem sjálfstæð stofnun og aðeins tiltölulega stuttan tíma úr árinu, þá gegnir það öðru máli, ef sú stofnun, sem tæki að sér frystingu beitu, hefði eitthvert annað verkefni með höndum, sem að vísu væri ekki sama eðlis, en þó svo skylt, að það gæti vel farið saman. Og sama stjórn og starfslið gæti að mínu áliti annað þessum störfum samhliða þeim störfum, sem hún hvort sem er hefur með höndum. Og þessi aukakostnaður síldarverksmiðja ríkisins, ef þessi rekstur yrði hafinn þar, yrði tiltölulega mjög lítill og miklu minni en ef þetta væri rekið sem sjálfstætt fyrirtæki, sem ekki hefði önnur verkefni með höndum. Ég álít, að með þessum hætti væri hægt að frysta beitu fyrir lægra verð en nú er gert og frystihús, sem hafa önnur verkefni með höndum sem aðalverkefni, telja sig geta.

Viðvíkjandi því, sem hv. frsm. meiri hl. n. (GJ) sagði, að það væri útilokað vegna flutningskostnaðar að ætla að frysta beitu norður í landi og þá fyrst og fremst á Siglufirði, þar sem síldarverksmiðjur ríkisins hafa sitt aðsetur, þá vil ég leyfa mér að benda á, að ég held, að það sé staðreynd, að ódýrasta beita, sem kostur hefur verið á undanfarið, hefur verið fryst norður í landi. Ég veit ekki betur en Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri hafi, a. m. k. á ýmsum tímum, selt frysta beitu miklu ódýrara en kostur hefur verið á að fá hana t. d. hér við Faxaflóa.

Ég má að vísu ekki fara með tölur í þessu sambandi, en mig minnir þó, að sá mismunur hafi farið upp í allt að 25 kr. á tunnu, hvað hún var ódýrari þaðan að norðan en hún var fáanleg frá öðrum stöðum. Ég álít því, að reynslan hafi sýnt það, að það sé vel gerlegt að frysta beitu norður í landi. Það er líka vitanlegt, að mjög mikill hluti af þeirri síld, sem notuð er til beitu, er fryst norður í landi, sem er fyrst og fremst af því, að ferska síld er fyrst og fremst að fá þar, eins og kunnugt er.

Ég hef sem sagt ekki skipt neitt um skoðun í þessum tveim meginatriðum, sem eru ágreiningsatriði minni og meiri hl. sjútvn., þrátt fyrir þær umr., sem hér hafa farið fram, og mun ég að sjálfsögðu halda við þær till., sem ég hef um þetta gert.