13.12.1944
Neðri deild: 91. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1314 í B-deild Alþingistíðinda. (3279)

221. mál, sjúkrahús o.fl.

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Hv. þm. Ak. andmælts, eins og áður var kunnugt og samkv. grg. frv. á þskj. 657, ákvæðinu um það, að ráðh. væri heimilt að skylda öll sveitarfélög í grennd viðkomandi sjúkrahúss til þátttöku í fyrirtækinu. Ég verð að lýsa því yfir, að ég fyrir mitt leyti tel ástæður hans mjög eðlilegar í því efni, en hins vegar litu mþn. og heilbr.- og félmn. þannig á, að þegar kaupstaður reisir sjúkrahús, eins og t.d. Akureyrarkaupstaður, þá væri eðlilegt, að þau sveitar- og sýslufélög, sem mest not hefðu af þessu sjúkrahúsi, — í þessu tilfelli Eyjafjarðarsýsla og S.-Þingeyjarsýsla -, hefðu nokkra þátttöku í þessum fyrirtækjum. Hins vegar er ekki hægt að setja um þetta nein ákvæði í frv., heldur verður að leggja það á vald ráðh. Nú má það vel vera, að þetta verði erfiðleikum bundið í framkvæmdinni og reynslan sýni, að þetta verði meira eða minna tilgangslaust ákvæði, en n. fannst ekki fært að fella þetta niður, og ef almennt er á þetta litið, er ósanngjarnt, að kaupstaðirnir einir út af fyrir sig reisi sjúkrahús, en nærliggjandi sveitarfélög taki engan þátt í. - Með frv. er ætlazt til, eins og segir í frv. í 1. gr. á þskj. 657:

„Ráðherra er heimilt að gera það að skilyrði viðurkenningar fjórðungssjúkrahúss. að öll þau sveitarfélög í grennd sjúkrahússins, er ætla má, að hafi þess samsvarandi not, takist á hendur eign og ábyrgð fyrirtækisins og gerist aðilar að rekstri þess samkvæmt ákvæðum laga þessara.“

Ef einhverjir sérstakir erfiðleikar hafa komið fram í vissum héruðum, vænti ég þess, að heilbr.- og félmn. taki þá til greina. Ég geri enn fremur ráð fyrir, að mjög verði tekið til greina fjölmenni eða fámenni þeirra sveitarfélaga. sem um ræðir, og efnahagur þeirra, en vitaskuld er ógerningur að setja ákvæði um þetta í l., eins og það er ógerningur að fella niður þá heimild, að nærliggjandi sveitarfélög takist á hendur eign og gerist aðilar að rekstri fyrirtækisins.

Hv. 1. þm. Rang. beindi þeirri fyrirspurn til mín, hvort ekki væri rétt, að l. þessi verkuðu aftur fyrir sig til ársins 1942, þannig að læknisbústaðir og sjúkraskýli, sem reist hafa verið, nytu þessara hlunninda, sem með þessum l. verða veitt, þótt um væri að ræða framkvæmdir, sem reistar hafa verið fyrir gildistöku þessara l. Ég lít svo á samkv. almennum skýringum á l., að þessi l. yrðu skilin svo, að þau yrðu ekki látin verka aftur fyrir sig, heldur að þau nái aðeins til þeirra framkvæmda, sem hér eftir koma til greina, en svo er það annað mál og getur verið fullkomlega sanngjarnt hjá hv. 1. þm. Rang. að gera um það sérákvæði þannig, að þeir læknisbústaðir og þau sjúkraskýli, sem reist hafa verið á þessum dýru tímum, njóti einnig þeirra fríðinda, sem hér um ræðir. Ég skal taka það skýrt fram, að eftir frv., eins og það er nú, skil ég það þannig, að það eigi ekki að verka aftur fyrir sig, en það er sjálfsagt, að n. taki það til athugunar fyrir 3. umr., hvort ekki sé rétt að ganga inn á þau tilmæli, sem hv. 1. þm. Rang. hefur borið fram.