21.11.1944
Efri deild: 71. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (3280)
121. mál, mat á beitu o.fl.
Ingvar Pálmason:
Það er eitt atriði, sem fram hefur komið við þessar umr., sem ég tel, að full ástæða sé til að leiðrétta, þó að það hafi að vísu verið gert af hv. frsm. meiri hl. n. Ég vil undirstrika þá leiðréttingu hans og færa nokkur frekari rök fyrir.
Það kemur fram í nál minni hl. n., að hann telur, að Fiskifélag Íslands geti ekki verið aðili nema útgerðarmanna, en ekki sjómanna, hvort sem þeir eru ráðnir upp á hlut eða annað, og þetta hefur hv. 4. landsk. staðfest með sinni ræðu. Þetta er í það minnsta byggt á misskilningi, ef það er ekki byggt á öðru lakara, og skal ég nú færa nokkur rök að því. Enda þótt ég geti e. t. v. ekki sannfært hv. 4. landsk., þá vona ég, að ég geti sannfært þá fáu hv. þm., sem hér eru eftir í þingdeildinni.
Fiskifélagið hefur fram til síðasta fiskiþings verið áhugafélag, sem byggt er upp af mönnum, sem hafa áhuga á þessum málum. Og síðan 1915 hef ég fylgzt vel með uppbyggingu Fiskifélags Íslands, og í því hafa verið bæði útgerðarmenn og sjómenn, bæði hlutarmenn og aðrir. En það má e. t. v. segja, að öllu meir hafi borið á útgerðarmönnum en sjómönnum. Ég skal ekki um það deila. Þó held ég, að á Austfjörðum hafi Fiskifélag Íslands meir staðið saman af sjómönnum en útgerðarmönnum. En á síðasta þingi Fiskifélagsins var því gerbreytt. Nú er Fiskifélagið byggt upp ekki sem áhugafélag, heldur eftir föstum reglum, og ef menn kynna sér reglurnar, geta menn séð, hvernig félagið er byggt upp, og þá geta menn gengið úr skugga um það, að það er firra ein að halda því fram, að Fiskifélag Íslands sé aðeins fulltrúi útgerðarmanna. Þessi firra er skaðleg vegna þess, að félagið er gert að stórum aðila hér á Alþ., sem rétt er, og það ætti að vera enn meira tillit tekið til þess álits en verið hefur hingað til, sem ég vona, að verði gert, þegar sú skipulagning kemst í framkvæmd, sem ákveðin var á síðasta fiskiþingi. Hitt er sjálfsagður hlutur, að á Fiskifélagið beri að líta sem fulltrúa bæði sjómanna og útgerðarmanna. Ég get ekki séð, að það sé nokkur aðili, t. d. Alþýðusamband Íslands, sem geti frekar talizt fulltrúi þessara beggja aðila. Alþýðusambandið er samsafn launaflokka, bæði hlutarmanna, sjómanna, sem taka laun sín í ákveðnu kaupi, þó að langmestur hluti af þeim hóp sé í landi, bæði daglaunamenn og ýmsar launastéttir. Ég álít, að þegar litið er á Alþýðusamband Íslands hliðstætt við Fiskifélag Íslands, sé varla hægt að halda því fram, að Alþýðusambandið hafi staðið sig betur og veitt sjómönnum og láglaunamönnum betri kjör en Fiskifélagið hefur gert. Ég álít, að þetta verði að leiðréttast, því að það nálgast að vera áróður að halda því fram hér á Alþ., að Fiskifélagið sé ekki fulltrúi fyrir sjómenn.
Úr því að ég stóð upp á annað borð, þykir mér rétt að færa nokkur rök frekar fyrir því, að Fiskifélagið hafi þessi mál með höndum án íhlutunar sérstakrar n. Það er þá fyrst og fremst fyrir það, að allar till. mþn. hníga í þá átt, og í brtt., sem liggur fyrir, er gert ráð fyrir, að Fiskifélagið hafi með að gera skýrslusöfnun um beituástandið í landinu á hverjum tíma. Þetta eru aðalatriðin. Og ég hef hér í höndum skýrslu frá Fiskifélagi Íslands, sem hefur haft með höndum skýrslusöfnun um beitubirgðir í landinu, þótt hún sé ekki eins fullkomin og við meiri hl. nm. ætluðumst til. Þessi skýrsla sýnir, hve mikil beita hefur verið fryst á hverju ári í landinu og hve mikið í hverjum landsfjórðungi, og kemur þá það merkilega í ljós, þvert á móti því, sem hv. 4. landsk. hélt fram áðan, að í Sunnlendingafjórðungi hefur verið langmest fryst öll árin af beitu. Það er alltaf hægt að slá fram ýmsu, en það er betra að vita fótum sínum forráð og vita hvar maður er staddur í þessu máli. Og af því leiðir það, að þeir menn, sem beituna nota, finna, að það er betra, að beitan sé fryst heima en að þurfa að flytja hana frá Norðurlandi til verstöðva sunnan lands. Ég bendi á þetta vegna þess, að því hefur verið haldið fram hér, að mest hafi verið fryst af síld til beitu á Norðurlandi, en að það hefur stafað af vanþekkingu, að slíku hefur verið haldið fram. Það má segja, að það sé eðlilegt að álykta svo, að þar sem mest veiðist af síld fyrir Norðurlandi, þá sé á Norðurlandi fryst langmest af síld til beitu. En það þarf ekki að vera. Og öll þessi ár hefur verið fryst í öðrum landsfjórðungum meira og minna af síld til beitu á hverju ári nema á Austfjörðum í tvö ár. Og þar er alltaf minnst síldarfrystingin, vegna þess að þar eru ekki neinir staðir, sem síldarafli er fluttur að, en ekki vegna hins, að ekki sé síldveiði fyrir Austfjörðum. Og þau árin, sem síldarverksmiðjur hafa verið reknar á Austfjörðnm, var þar fryst allmikið af síld.
Þá vildi ég benda á eitt atriði enn, sem ég held, að ekki hafi verið tekið fram í umr., og það er það, hvernig ástandið er nú í beitumálunum og hvað það er, sem sérstaklega knýr á um að fá einhverja leiðréttingu þar á, og það má segja, að það séu þrjár ástæður fyrir því. Fyrst er sú ástæðan, að beitan hefur á seinni árum verið mjög dýr. Hv. 4. landsk. þm. (StgrA) nefndi dæmi, þar sem hann tók fram, að 40 þús. hefði beitan kostað einn bát yfir vertíð. Ég ætla ekki að rengja, að þetta sé satt, en ég hef ekki þekkt slíkt dæmi. — Annað atriðið, sem lagfærast þarf, er það, að það hefur komið í ljós hjá þeim, sem beitu hafa keypt, að beitan hefur oft verið mjög skemmd, hefur ekki verið sú vara, sem hún átti að vera og hefur verið sögð við sölu. Og þetta álít ég, að séu þau meginatriði, sem þurfi að lagfæra, fyrst og fremst að tryggja, að ekki sé höfð á boðstólum nema góð beita, og í öðru lagi, að beitan sé ekki í óeðlilega háu verði. Svo kemur þriðja atriðið, sem hingað til hefur borið minna á, sem betur fer, sem er reglulegur beituskortur. Sem betur fer hefur slíkt sjaldan orðið til verulegs tjóns. Og ég veit ekki betur en að hv. 4. landsk. þm. í því dæmi, sem hann tók fram, hafi sýnt, að það var ekki beituskortur, sem olli skakkaföllum í því dæmi, sem hann var með. Nei, það var of hátt verð á beitunni. Það er töluverð beita, sem fæst fyrir 40 þús. kr. Það, sem í sambandi við það tilfelli var að og hefði þurft að lagfæra, var of hátt verð. Meiri hl. sjútvn. vildi tryggja það fyrst og fremst, sem er mjög aðkallandi, að ekki sé höfð á boðstólum önnur beita en sem er góð, og það vildi meiri hl. n. tryggja með mati. Í öðru lagi vildi n. tryggja, að beita væri ekki seld óeðlilega háu verði, og þar gengur hún svo langt, að hún vill veita ráðh. heimild til þess að hann geti eftir till. Fiskifélags Íslands sett hámarksverð á beitu, geti þannig tekið fram fyrir hendurnar á viðskiptaráði, sem ekki hefur enn fundið ástæðu til að setja hámarksverð á beitu. Og í þriðja lagi vill n. með till. sínum um skýrslusöfnun, að á hverjum tíma sé reynt að koma í veg fyrir það, að hætta verði á beituskorti. Og í brtt. meiri hl. n. eru mjög ströng ákvæði um það, hvernig Fiskifélagið á að haga sér með þessa skýrslusöfnun á þeim tíma, sem mest ríður á, að beita sé nægileg til. Og þegar sú skýrslusöfnun gefur ástæður til að ætla, að beituskortur verði í landinu, þá á Fiskifélagið, samkv. till. meiri hl. n., fyrst og fremst að snúa sér til viðkomandi aðila og aðvara þá, bæði útgerðarmenn og hlutarsjómenn, um þann yfirvofandi beituskort og hafa áhrif á, að úr verði bætt í tæka tíð, ef þessir aðilar óska aðstoðar til þess. Og Fiskifélagið á að hafa vald til þess, að fengnu leyfi ráðh., að gera nauðsynlegar ráðstafanir til beituöflunar, enda hafi viðkomandi útgerðarstaðir óskað þess.
Þannig höfum við í meiri hl. n. sett þetta fram. Vel má vera, að nauðsynlegt kunni að reynast að hið opinbera setji upp frystihús til þess að frysta í síld til beitu. Ég skal engu spá um það. En ég held, ef laglega er á málum haldið, að hægt muni reynast í hverju tilfelli að ná samningum við einhver frystihús um að frysta nægilega beitu, og enn hefur ekkert það komið í ljós, sem gefur tilefni til að ætla, að svo verði ekki. En fari svo, að reynslan leiði í ljós, að þessar ráðstafanir verði ófullnægjandi, er alls ekki útilokað, að Alþ. geri sínar ráðstafanir um að láta byggja frystihús, sem tryggi, að alltaf sé til nóg beita í landinu. En eins og nú standa sakir held ég, að það sé seilzt að ástæðulausu lengra en þörf er fyrir, ef því er haldið fram, að Alþ. beri að gera slíkt nú þegar. Ég held, að hv. 4. landsk. þm. hafi sagt, að það yrði ekki byggt til þessara nota frystihús af því opinbera nema því aðeins, að ekki fengist fryst nægileg beita hjá öðrum frystihúsum. En ég vil segja: Er það ekki dálítið varhugavert að setja heimild til slíkrar frystihúsbyggingar fyrir það opinbera inn í l. nú strax? Gæti það ekki orðið til þess, að sum frystihúsin yrðu ekki eins áhugasöm um það að hafa til beitu? Þau mundu kannske svara því til: Komið þið upp frystihúsum hjá síldarverksmiðjum ríkisins, því að við viljum gjarnan losna við það að frysta beitu, því að það er ekki miklar tekjur að hafa fyrir beitufrystingu.
En svo er annað. Ef að þessu ráði verður horfið, að hið opinbera fari að frysta síld, þá er víst, að aldrei verður fryst neins staðar annars staðar beita en í þessu frystihúsi, það leiðir af sjálfu sér. Hvernig ættu önnur frystihús að fara að eiga það á hættu að frysta beitu, þegar þau vita, að sérstakt frystihús er í landinu, sem á að tryggja nóga beitu? Ég held, að það sé nokkuð viðurhlutamikið að hallast strax að því að gera ráð fyrir að koma upp frystihúsi, sem sé kostað af ríkinu eða síldarverksmiðjum ríkisins. En ég teldi ákaflega mikið unnið við það, ef þessum tveimur aðalatriðum frv. þessa yrði náð, að með mati á beitu væri fengin full trygging fyrir því, að beitan væri góð, sem seld væri, og í öðru lagi, að beita væri ekki seld of háu verði. En ég held, að það sé mikið spursmál, hvort þeim, sem beitunnar eiga að njóta, er ekki fremur gerður ógreiði með því, ef því væri haldið til streitu, að sett yrði inn í l., að koma skuli upp frystihúsi með tilstyrk þess opinbera.
Að endingu vil ég segja það, að ég vænti þess, að hæstv. Alþ. verði vel á vaðbergi um það, að ekki verði haldið fram þeim firrum, sem hér hafa komið fram gagnvart jafnmiklu þjóðþrifafyrirtæki og Fiskifélag Íslands er.