15.12.1944
Neðri deild: 93. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (3293)

221. mál, sjúkrahús o.fl.

Helgi Jónasson:

Herra forseti. — Ég leyfi mér að þakka hv. heilbr.- og félmn., að hún hefur tekið til greina þær aths., sem ég hef gert í þessu máli.

Ég lýsi því yfir, að ég mun sætta mig við þá afgreiðslu, er ég fæ eftir því áliti hæstv. heilbr.- og félmrh., að hann telur, að gr. nái til sjúkrahúsa og læknisbústaða, þar sem fullnaðaruppgjör hefur enn ekki farið fram.