15.11.1944
Neðri deild: 74. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í B-deild Alþingistíðinda. (33)
183. mál, nýbyggingarráð
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. — Ég rifjaði það upp hér í gær, að þegar hæstv. núverandi ríkisstj. tók við völdum, lýsti hæstv. forsrh. yfir því, að það væri annar aðaltilgangurinn með myndun ríkisstjórnar þessarar að koma í framkvæmd fullkominni nýsköpun á atvinnuvegum þjóðarinnar. Ég benti einnig á það, að þrátt fyrir þessa yfirlýsingu hefur þessi ríkisstjórn verið mynduð án þess að um það væri samið milli stjórnarflokkanna, að nokkrar ráðstafanir yrðu gerðar til þess að skapa þann nýja grundvöll fyrir atvinnurekstur landsmanna, sem gæfi hugmynd um það, að mönnum væri óhætt að ganga djarflega fram í því að vinna með stjórninni að þessu markmiði, og að þvert á móti gengju allar ákvarðanir, sem enn hafa komið fram frá hendi hæstv. ríkisstjórnar, í öfuga átt, — verkuðu allar til þess að draga úr mönnum kjark og minnka líkurnar fyrir því, að framleiðendur landsins sjái sér fært að ganga ötullega fram í þessu starfi. Skal ég ekki endurtaka nú þau rök, sem ég færði fram fyrir þessu.
Þá er spurningin: Hvað er þá í stefnuyfirlýsingu hæstv. ríkisstjórnar tekið fram um stefnu í atvinnumálum landsins? Og enn fremur er spurning um það, hvernig skuli koma í framkvæmd þeirri nýsköpun atvinnuveganna, sem ríkisstjórnin telur sig ætla að beita sér fyrir. Það er fram tekið í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar, að hún ætli að setja 300 millj. ísl. kr. í erlendum gjaldeyri á sérstakan reikning og ákveða, að ekki megi selja gjaldeyri af þessum reikningi til annarra framkvæmda en nýsköpunar atvinnulífsins. Þetta eru skynsamlegar ráðstafanir. Það er skynsamlegt fyrir landsmenn að leggja verulegan hluta af erlendum gjaldeyri á sérstakan reikning og ætla hann í þessu skyni. Og um þetta höfum við tveir þm. úr Framsfl. flutt sérstaka till., þar sem ráðgert er, að 460 millj. af um 550 millj. ísl. kr., sem við eigum nú í erlendum gjaldeyri, væru ætlaðar í þessu skyni. Þessi ráðstöfun er skynsamleg. En það, sem hv. stjórnarflokkum hefur orðið, á í sambandi við þessa fyrirætlun þeirra, er, að þeir hafa fullkomlega gefið það í skyn — og það hefur allt að því verið sagt berum orðum stundum —, að það sé ákveðið með þessu móti, að þessu fé verði beinlínis varið til þess að kaupa fyrir atvinnutæki og aðrar nýjungar. M.ö.o., það er gefið í skyn, að ríkisstjórnin hafi ráð yfir úrræðum til að koma því í framkvæmd, að þessi innkaup eigi sér stað. Mér er kunnugt um það, að ýmsir menn, sem hlustað hafa á ræðu hæstv. forsrh. og einnig lesið það, sem frá stjórnarflokkunum hefur komið varðandi þetta mál, hafa litið svo á, að með þessu væru veittar 300 millj. kr. til þessara þarfa og stjórnin hefði það í hendi sér, að þetta gengi fram. Og það hefur alls ekki verið að tilefnislausu, að svona væri litið á, a.m.k. í fyrstu, vegna þess að beinlínis var látið í það skína. En eins og hv. þm. vita, er þetta hin mesta fjarstæða. Því að það, sem gerist, þegar þessi ráðstöfun er gerð, hvort sem okkar frv. er samþ. eða frv. hæstv. ríkisstjórnar, er ekkert annað en það, að þessi gjaldeyrir verður fáanlegur til kaups fyrir landsmenn, ef þeir vilja leggja fé fram til þess að kaupa ný atvinnutæki og standa að þeim framkvæmdum, sem fyrirhugaðar eru, eða þá til kaups fyrir ríkissjóð að því leyti sem hann ætlar sér að eiga þátt í uppbyggingu atvinnulífsins og nauðsynlegum framkvæmdum. — Það er ekkert annað, sem gerzt hefur, en að menn láta í löggjafarformi í ljós þann ásetning sinn að halda þessu fé þangað til eftir því er spurt í þessu skyni. Það er því langt frá því, að þetta út af fyrir sig tryggi nokkuð nauðsynlegar framkvæmdir í landinu. Enda vitum við, að ef svo hörmulega tækist til, að stórfelldur halli yrði á gjaldeyrisreikningi landsmanna á næstu árum, þá mundi löggjöf í þessu efni hafa nokkra aðvörunarþýðingu, en vitanlega mundu menn skerða féð á þessum reikningi til þess að kaupa sér mat og aðrar nauðsynjar fyrir, ef halli yrði á gjaldeyrisreikningnum svo mikill, að menn fengju ekki risið undir innkaupum slíkra nauðsynja með öðru móti. Það er skynsamlegt að setja sér markmið með löggjöf um þetta efni. En það er heldur ekki annað, sem gerist með því, sem stjórnin hefur gert í þessu efni.
Hæstv. ríkisstjórn hefur í stefnuyfirlýsingu sinni sundurliðað þessa fjárhæð með tilliti til þess, hve miklu hún ætlar að verja til hvers um sig af þeim framkvæmdum, sem þar eru nefndar. Og þetta hefur enn fremur orðið til þess að valda misskilningi, sem hæstv. ríkisstjórn sennilega hefur viljað láta eiga sér stað um þessi efni. Náttúrlega er það vitanlegt, að menn hafa haft þau gögn í höndum, sem þarf til þess að sundurliða þetta, hvernig nota skuli gjaldeyrinn. Þess vegna er fáránlegt að fara út í það. Ég ætla aðeins að benda á þetta, en skal ekki fara út í það nánar.
Ef líta skal á önnur atriði í sambandi við atvinnumálin og áætlun hæstv. ríkisstjórnar, og þó menn lesi málefnasamning stjórnarinnar, þá eru menn litlu nær um stefnu hennar í atvinnumálum, því að þar er í raun og veru ekkert um það, hvernig hún skuli vera. Þar er sagt, að ríkisvaldið skuli hlutast til um, að tæki verði keypt utanlands svo fljótt sem auðið er, tæki, sem skynsamlegt þykir, að landsmenn eigi. En það er ekkert ráðgert um það nánar, með hverjum hætti það skuli eiga sér stað, hvort það eigi að verða með almennri hvatningu til landsmanna um það að verða sér úti um þessi tæki eða leggja í þessar framkvæmdir, eða hvort það skuli vera stuðningur af hendi ríkisvaldsins til þess að þetta megi komast í framkvæmd, eða hvort ríkisvaldið eigi að taka að sér slíkar framkvæmdir. Af þessu orðalagi í stefnuyfirlýsingu hæstv. stjórnar verður ekkert um þetta ráðið.
Það er enn fremur minnzt á það í stefnuyfirlýsingu hæstv. stjórnar, að félög skuli stofnuð að tilhlutun þess opinbera, ef þörf krefur, til þess að eiga þátt í þessum framkvæmdum. En hitt er ekki minnzt á þar, né heldur hefur það verið gert annars staðar þar, sem ég hef lesið eða heyrt um þetta málefni rætt, með hvaða hætti þessi tilhlutun hins opinbera um slíkar félagastofnanir skuli eiga sér stað, hvort þar eigi aðeins að vera um hvatningu að ræða til manna um að stofna slík félög eða hvort eigi að vera þátttaka ríkisins í slíkum félagastofnunum, — og þá er ekki tekið fram, hve mikil hún skuli vera, ef slíkt væri meiningin, — eða yfirleitt, hvað ríkisvaldið skuli láta til sín taka þessi mál. M.ö.o., það er ekki neitt hægt af málefnasamningi hæstv. ríkisstjórnar að vita um stefnu stjórnarinnar í þessum málum.
Það er rætt um það í málefnasamningi hæstv. ríkisstjórnar, — eða sýnilega gert ráð fyrir því, — að ríkið sjái að einhverju leyti um innkaup á atvinnutækjum, aðstoði menn .til að útvega sér slík tæki, og er ekki nema gott um það að segja. En það verður ekkert ráðið eftir því, sem í þessum samningi stendur, hvort ríkisvaldið eigi að kaupa slík tæki án þess fyllilega fyrirfram að vita, hvort landsmenn vilja eignast þau, og hvort ríkið skuli þá búa sig undir að reka þau sjálft, ef aðrir gefa sig ekki fram til þess. Það er ekkert um þetta ákveðið, eins og allt annað í þessum samningi ríkisstj., sem á að vera grundvöllur undir nýsköpun atvinnulífsins. Og það verður ekki af honum ráðið með nokkurri vissu, hver stefna hæstv. ríkisstj. er í atvinnumálum. Og í raun og veru er allt það, sem stendur í þessum málefnasamningi, ekkert annað en stefnulaust fálm. Að vísu má segja, að margt, sem þar kemur fram, er skynsamlega athugað, og menn ættu að geta skrifað undir það. En það markar enga stefnu, eins og stefnuyfirlýsing á þó að gera. Það verður að gera þá kröfu til ríkisstjórnar, sem ætlar að beita sér fyrir nýsköpun atvinnulífsins, að hún geri grein fyrir því, hvernig hún ætlar að framkvæma þessa fyrirætlun, og geri grein fyrir stefnu sinni í atvinnumálunum. En það er ekki hægt að finna neina ákveðna stefnu út úr þeim yfirlýsingum, sem hafa komið frá hæstv. ríkisstjórn.
Þegar hæstv. ríkisstj. beitti sér fyrir því, að þingfundum yrði frestað hálfan mánuð, gerðu menn ráð fyrir, að sá tími yrði notaður til að útfæra nánar stefnu stj. og hún mundi leggja fram ákveðnar till. varðandi þessa nýsköpun atvinnumálanna, er þingið kæmi saman aftur, að minnsta kosti yrði svo langt komið athugunum hjá hæstv. ríkisstj., að menn gætu greint nokkru nánar en áður, hvað fyrir henni vekti. Það var lágmarkskrafan, því að það, sem komið hafði fram af hendi hennar áður í þessum efnum, var svo loðið og sagði svo lítið, að það gat þýtt allt frá því að gera svo sem ekki neitt í þessu máli og upp í það að þjóðnýta allan atvinnurekstur landsmanna. Nú er þessi hálfi mánuður liðinn, og hæstv. ríkisstj. hefur lagt fram till. um þessi mál, sem eru í frv. því, sem hér er til umr. á þskj. 489. Það er um þetta frv. að segja, að það er erfitt að skilja, að hæstv. ríkisstj. skuli hafa þurft að fresta störfum Alþ. í hálfan mánuð til að búa út þetta plagg, því að í því er ekkert að finna annað en nokkrar setningar úr ræðu þeirri, sem hæstv. forsrh. flutti hér sama daginn og stj. hans tók við völdum, engin nánari ákvæði um áform stj. en komu fram í þeirri stefnulýsingu, sem þá var flutt, og frv. er, eins og ég sagði áðan, uppprentaðar nokkrar setningar úr þeirri ræðu. Skal ég nú minnast með örfáum orðum á efni þessa frv.
Það er þá fyrst, að leggja skal til hliðar 300 millj. kr. af inneignum Landsbanka Íslands erlendis á sérstakan reikning, og skal eingöngu verja fjárhæð þessari til kaupa á framleiðslutækjum og annarrar nýsköpunar í atvinnulífi þjóðarinnar samkvæmt nánari ákvörðun nýbyggingarráðs. Ég hef áður minnzt á, hverja þýðingu ég tel það hafa að leggja til hliðar ákveðna fjárhæð í þessu skyni, en ég tel það stórkostlega villandi orðalag, þar sem segir í 1. gr., að verja skuli þessari fjárhæð til kaupa á framleiðslutækjum og til annarar nýsköpunar. Það er eins og þetta orðalag sé beint framhald þess áróðurs, sem uppi hefur verið haldið af þessum mönnum, og telja eigi landsmönnum trú um, að fyrir öllu sé séð með þessari ráðstöfun einni, að leggja til hliðar fyrr nefnda upphæð. Það, sem hér er um að ræða, er, að þeir menn, sem eiga inneignir, geti fengið keyptan erlendan gjaldeyri af gjaldeyrisbirgðum bankanna, ef þeir vilja verja fé sínu til kaupa á framleiðslutækjum. Ég tel rétt að setja sér það mark að leggja til hliðar 450 millj. kr., ef tryggt væri, að því yrði ráðstafað fyrir landsmenn til nýrra framkvæmda. En þetta orðalag felur ekki í sér neina tryggingu.
Þá skil ég ekki orðalag 1. gr. frv., þar sem stendur, að lagðar skuli til hliðar „að minnsta kosti 300 millj. ísl. króna“. Hver á að ákveða upphæðina, ef lagt verður meira fram? Auðvitað verður að taka fram, að það sé löggjafarvaldið sjálft. En þetta „að minnsta kosti“ er villandi og út í hött.
Þá er 2. gr. frv., þar sem ákveðið er að skipa sérstaka fjögurra manna n., sem nefnist nýbyggingarráð, og tekið fram, hvert skuli vera hlutverk þessarar n., en það er að búa til heildaráætlun um það, hver atvinnutæki, samgöngutæki, byggingar og annað þurfi til sjávar og sveita til þess að allir Íslendingar geti haft vinnu við sem arðbærastan atvinnurekstur, svo og hvernig bezt verði fyrir komið innflutningi fáanlegra tækja og efnis o.s.frv. Nú vil ég minnast á það, að fyrir rúmu ári átti ég frumkvæði að því, að Alþ. skipaði sérstaka n. til athugunar um, að gerðar yrðu verklegar framkvæmdir eftir styrjöldina. Mér var það ljóst, að það mundi þurfa að hefjast handa um slíkar framkvæmdir og því væri tímabært að stofna þessa n. Henni var ekki ætlað að verulegu leyti ólíkt hlutverk því, sem þessari n. er ætlað, að gera till. um, hvernig mundi heppilegast fyrir komið tilhögun á stórreistri í landinu, og að öðrum þræði að gera till. um verklegar framkvæmdir að styrjöld lokinni. Þessi n. hefur starfað síðan. Mér er ekki vel kunnugt um, hve miklu hún hefur áorkað, en ég veit, að hún hefur lagt mikla vinnu í ýmiss konar rannsóknir. Þessi till. hæstv. ríkisstj. um skipun n. er því engin nýjung. Ég skal taka fram, að þó að ég beitti mér fyrir því, að fyrr nefnd n. var skipuð, þá er mér ekki fast í hendi, að hún haldi áfram störfum eða ég vilji fyrir þá sök snúast á móti till. hæstv. ríkisstj., að þessi nefndarskipun eigi sér stað. En það er annað mál, hvort skipa skal þá n. með þeim hætti, sem hæstv. ríkisstj. gerir ráð fyrir, og verður það eflaust athugað í þeirri þingn., sem fær málið til meðferðar. Það, sem mig furðar sérstaklega á í sambandi við frv., er, að það skuli ekki bóla neitt á því, hvernig hæstv. stj. hefur hugsað sér, að þessi nýsköpun atvinnumálanna komist fram og eftir hvaða leiðum farið verður eða hver stefna hæstv. stj. sé. Það bólar ekkert á því í þessu frv., svo að skilið verði. Það mætti ímynda sér af 4. málsgr. 2. gr., að það ætti að benda mönnum eitthvað í þessa átt, en af því verður þó varla skilið, hvað fyrir hæstv. stj. vakir. Eins og ég gat um áðan, er nauðsynlegt að áætla verklegar framkvæmdir á næstunni, og verði þetta frv. samþ. og þessi n. skipuð, legg ég áherzlu á, að sú n. notfæri sér að fullu það starf, sem sú n., er nú starfar, hefur unnið að undirbúningi ýmissa mála í sama tilgangi, svo að ekki verði farið að tvívinna sömu verkin, þannig að niðurstöður fáist engar. Það, sem auðkennir þetta frv. eins og stefnuyfirlýsingu stj., er það, að ekkert verður af því ráðið um það, hver eigi að verða afskipti ríkisvaldsins af þessari fyrirhuguðu nýsköpun atvinnulífsins eða hvaða hlutverk einstaklingum og félögum er ætlað eða hver eigi að vera fjárhagsgrundvöllur hinna nýju fyrirtækja, sem fyrirhuguð eru. Á þetta er ekki minnzt einu orði. Mér virðist, að það sé nauðsynlegt að umsteypa þetta frv. og ætla þessari n. mun meira verkefni en henni er ætlað í till. hæstv. ríkisstj. Og ég er satt að segja hálfundrandi yfir því, að hæstv. stj. skuli ekki hafa sett í frv. þau ákvæði, sem mér sýnist óhjákvæmileg, að nýbyggingarráð skuli gera áætlanir um, hvernig þessu verði komið fram á sem heppilegastan hátt, og ég álít, að það verði að fela þessari n. að gera till. um, hver skuli vera afskipti ríkisvaldsins af þeim framkvæmdum, sem fyrirhugaðar eru, og hver skuli vera þáttur einstaklinga og félaga. Það er óhjákvæmilegt annað en menn geri upp við sig, hver skuli vera stuðningur ríkisvaldsins við atvinnuvegina og hver skylda skuli lögð þeim á herðar, sem á undanförnum árum hafa fengið margs konar hlunnindi og aðstöðu til að efnast, til að standa undir þessari nýsköpun. Og þá sýnist mér enn fremur nauðsynlegt, ef þetta á ekki að vera sams konar fálm af hendi hæstv. ríkisstj. og hingað til, að fela þessu ráði að íhuga og gera till. um ráðstafanir til innkaupa á nýjum tækjum, er þurfa muni, til þess að aðalatvinnurekstur landsmanna hafi einhverjar líkur fyrir því að verða samkeppnisfær við framleiðslu annarra þjóða. Það getur verið gott og nauðsynlegt að gera áætlun um það, sem þarf að framkvæma, en það er ekki nægilegt. Það er engu líkara en hæstv. stj. hafi ætlað að láta það nægja að setja upp óskalista fyrir þjóðina, án þess að benda á leiðir til að uppfylla þær óskir. Ég undrast, að hæstv. ríkisstj. eftir 14 daga frest skuli leggja það eitt til, að skipuð verði n., sem raunar hefur það sama hlutverk og sú n., sem fyrir er. Mér finnst óhjákvæmilegt annað en n. verði falið að gera till. um, hvaða stefnu Ísland skuli hafa í atvinnumálum næstu missiri og ár. Annars er engu líkara en hæstv. stj. hafi ætlað sér að láta við það sitja, að saminn yrði óskalisti af hálfu n., sem þá um leið yrði óskalisti ríkisstj. sjálfrar, og stj. sýndi svo þau hyggindi að bíða eftir því, að hún kæmist undir regnbogann og notaði þá tækifærið til að fá í einu vetfangi allar þessar óskir uppfylltar, án þess að hafa meira fyrir því. Það er vitað mál, að það er miklum erfiðleikum bundið að koma upp þeim fyrirtækjum, sem upp þarf að koma í styrjaldarlok, og það verður að taka öðruvísi á þeim málum en hæstv. ríkisstj. hefur gert að undanförnu, ef menn eiga að geta vonazt eftir, að það verði annað en orðin tóm.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða málið frekar, en vil, áður en ég lýk máli mínu, beina fyrirspurn til hæstv. forsrh.
Í 4. málsgr. 2. gr. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Nýbyggingarráð hlutast til um, að slík tæki verði keypt utan lands eða gerð innan lands, svo fljótt sem auðið er, og hefur milligöngu fyrir þá aðila, sem þau vilja kaupa og þess óska.“ Nú vildi ég spyrja hæstv. forsrh., hvað við sé átt með orðunum „hlutast til um“. Hversu mikil íhlutun .er n. heimiluð samkvæmt þessu orðalagi? Hvað felst í þessu orðalagi? Það er ekki svo auðvelt að gera sér grein fyrir, hvað með þessu er meint.
Niðurstaðan á því, sem ég sagði hér varðandi frv. sjálft, er sú, að ég álít rétt að samþ. það með verulegum breytingum og að n. sú, sem hér á að koma á fót, skuli gera meira en semja lista um allar þær' framkvæmdir, er teljast skuli heppilegar og æskilegar. Ég álit, að eins og nú er komið, þegar ætlazt er til, að hafizt sé handa um nýsköpun atvinnuveganna, þá sé nauðsynlegt að fela n. að gera áætlanir um, hvernig þessum áætlunum verði komið fram.