09.03.1944
Neðri deild: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í B-deild Alþingistíðinda. (332)

27. mál, skipun læknishéraða

Pétur Ottesen:

Ég veit ekki, hvað yrði um sjóndeildarhring hv. þm. Snæf., ef miða ætti við afstöðu hans til sveitafólksins, eins og hún birtist í þessu máli. Ég er hræddur um hann yrði þá að teljast heldur þröngur.

Hv. þm. Snæf. sagði, að afstaða mín til brtt. hans væri í ósamræmi við fyrri afstöðu mína í þessu máli, því að ég hefði greitt atkv. með Grindavíkurhéraði. Það er ekki um neitt ósamræmi hér að ræða. Það er þéttbýli, sem læknar vilja vera í, þó að útilokað sé, að þeir fáist út í sveit. En þetta kemur fyrir í haust, og nú skulum við sjá, hverjir gera raunverulegar breyt. til batnaðar.

Ég gleymdi því, að hv. þm. A-Húnv. sagði, að ég hefði verið að ganga á milli manna til að fá þá til að fella frv. Ég hef ekki reynt það. Hafi hv. þm. séð mannaferðir í d., sem hann dró þá ályktun af, þá snertir það allt annað mál. En hann veður reyk í því, að ég hafi verið með nokkurn áróður í sambandi við þetta mál, öðruvísi en með því, sem ég hef sagt um það í þessum umr. Þar veður hann reyk, eins og með því að vilja hlaða upp læknishéruðum, á meðan aðrar ráðstafanir eru ekki gerðar til að bæta úr læknisleysinu.