09.03.1944
Neðri deild: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (334)

27. mál, skipun læknishéraða

Frsm. meiri hl. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. — Það er um orsakirnar til þess, að sum héruð eru læknislaus, sem ég vil gera grein fyrir frá mínu sjónarmiði séð. — Hv. þm. Snæf. heldur því fram, að það séu samgönguörðugleikarnir, sem aðallega liggi þar til grundvallar. En ef við athugum, hvaða héruð eru læknislaus, þá sjáum við, að það eru fámennu héruðin, þar sem læknar fá ekki aðstöðu til að veita þá læknishjálp, sem hægt er að veita þar, sem sjúkrahús eru, og telja sig bæði þess vegna og vegna þess, hve héruðin eru fámenn, ekki fá þá æfingu, sem þeir vilja fá til að fara fram í starfi sínu. Þetta eru héruðin, þar sem fólkið er fæst. Sum þeirra eru þannig, að auðvelt er að fara um þau. En læknarnir þykjast ekki fá þar þá æfingu, sem þarf, til þess að þeir trénist ekki upp og verði steingervingar. Þessum héruðum vill hv. þm. fjölga, — héruðum, sem eru svo fámenn, að enginn læknir, sem hefur áhuga á starfi sínu, vill vera þar.

Nú hefur Alþ. veitt á fjárl., 22. gr., 14. l., 50 þús. kr. uppbætur til lækna í héruðunum, sem læknar hafa ekki fengizt í. Þau eru 8–12. Þess vegna er þetta allveruleg viðbót, sem hér er um að ræða sem laun. Þegar svo er komið, þá yrðu þessir læknar hærra launaðir en margir aðrir. En þessi héruð veita mönnum engin tækifæri til framfara og til að fá betri héruð síðar. Því held ég, að sú stefna að hafa læknishéruðin svo stór, að læknir geti fengið aðstöðu til æfingar og spítala, sé heppilegust.

Ég skil það vel, að sósíalistar hafi þá stefnu, sem þeir hafa í þessu máli. Þeir vilja fá fólkið burt úr dreifbýlinu. Þetta er ágæt leið til þess. En með þessari till. um fjölgun læknishéraða eru líka menn, sem telja sig vinveitta sveitunum, en það er aðeins til að sýnast.