09.03.1944
Neðri deild: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í B-deild Alþingistíðinda. (337)

27. mál, skipun læknishéraða

Garðar Þorsteinsson:

Út af því, sem hv. þm. Borgf. og fleiri sögðu um það, hvort ætti að ráða margmenni eða fámenni um skipun læknishéraða, ætla ég að segja nokkur orð.

Mér finnst engin algild regla vera um það, en um þetta efni ættu að vera ákveðnar lagasetningar. Það er engan veginn sanngjarnt, að tveir læknar, annar í allstórum kaupstað, hinn í strjálbýlli sveit, hafi sömu grunnlaun. Það á að fara eftir þeirri reglu um launagreiðslu, að því erfiðari sem héruðin eru, því betur séu þau launuð.

Í sambandi við, að Grímsey verði sérstakt læknishérað, vænti ég, að hæstv. forsrh. hljóti að játa, að skipun læknis þar hlýtur að byggjast á öðrum forsendum en íbúafjöldanum. Íbúar eru ekki nema 140, og þessir menn hafa ekki rétt til að hafa lækni. Ég hef ekki borið fram kröfu um, að Grímsey verði sérstakt læknishérað, en ég álít það fullkomlega athugandi, hvort ekki ætti að rétta íbúum þessa hrepps hjálparhönd. Vænti ég þess, að heilbrigðisstjórnin sé fús til að vinna að því að gera þessum mönnum lífið vænlegt. Þeir hafa sýnt hið mesta þrek í lífsbaráttunni, þessir menn, sem eru ekki frumbyggjar landsins, heldur útverðir.

Vona ég, að hæstv. heilbrmrh. skoði þetta ekki sem árás, heldur ósk um betri og hagfelldari lausn á þessu máli.