12.09.1944
Neðri deild: 48. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 384 í C-deild Alþingistíðinda. (3386)
92. mál, jarðræktarlög
Bjarni Ásgeirsson:
Herra forseti. — Mér var gefinn kostur á því að gerast meðflm. að þessu frv., en ég sá ekki ástæðu til þess að taka því boði, þar sem þetta mál er nú til athugunar og meðferðar í mþn. þeirri, sem búnaðarþing setti í það á s. l. vori, og hún tók málið þá þegar til meðferðar. Hún hefur ákveðið að ljúka athugun sinni á frv. nú í þingbyrjun og mun við það standa, þannig að álit kemur frá henni næstu daga, eins og til stóð. Og þó að ég sé vitanlega í höfuðatriðum fylgjandi tilgangi þessa máls, taldi ég enga ástæðu að fara að bera það fram í því formi, sem liggur fyrir hér nú, þar sem þessi undirbúningur er þegar hafinn.
Við munum í mþn. gera till. um nokkra breyt. á frv. og nokkurn viðauka, sem ég fer ekki út í hér. Geri ég ráð fyrir, að það frv., sem frá n. kemur, muni hljóta að verða lagt til grundvallar afgreiðslu málsins hér á þingi, þó að vissir þættir í því séu nákvæmlega þeir sömu og í frv., sem liggur fyrir. — Ég ætla ekki að ræða þetta mál á víð og dreif, tel sjálfsagt að vísa því til landbn., en ég tel ekki ástæðu til að taka málið í heild til meðferðar, fyrr en þetta sama mál er komið í öðru formi frá mþn. búnaðarþings nú á næstu dögum.