15.11.1944
Neðri deild: 74. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í B-deild Alþingistíðinda. (34)

183. mál, nýbyggingarráð

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. — Ég verð að láta í ljós undrun mína yfir þeirri löngu ræðu, sem hv. formaður Framsfl. hefur flutt hér við 1. umr. þessa máls, og það því fremur, að ræðan er efnislega þannig, að menn skyldu halda, að hann hefði ekki komið nærri þessum málum, fyrr en hann sem saklaus aðili sér framan í þetta hræðilega frv., þegar það er lagt fyrir hv. d. Þetta er nokkuð undarlegt um mann, sem undanfarna tvo eða þrjá mánuði hefur setið á fundum daglega eða að minnsta kosti þrisvar og fjórum sinnum í viku ásamt fulltrúum annarra flokka þingsins til þess að ræða þetta mál, sem hann er nú að gagnrýna hér, og vera um það sínar till. bæði munnlegar og skriflegar, sem betur fer. Ég segi sem betur fer; vegna þess að sú gagnrýni, sem nú á elleftu stundu eða raunar eftir elleftu stund kemur fram, bitnar á honum sjálfum sannanlega vegna þess, að till. hans eru skriflegar, og skal ég síðar að því koma. En varðandi það, sem er megin þessa máls, hvort það, sem vakir fyrir stj., á rétt á sér eða ekki, vil ég segja þetta: Framsfl. hefur stungið upp á ýmsum leiðum í þessu máli. Hann hefur stungið upp á samvinnu við Sjálfstfl. einan og gert um þá samvinnu þá uppástungu, að ríkisstj. yrði sem allra veikust og málefnagrundvöllurinn sem allra fátæklegastur, og má segja, að vel fari á því á sem allra hættulegustum tímum. Hv. þm. hefur áður lýst þessum uppástungum í grein, sem hann skrifaði í blaðið „Tímann“, en hann segir þar svo ranglega frá, að ég verð að leiðrétta það hér. Þegar uppástunga kom frá Framsfl. 3. okt. milli kl. 6 og 7 um kvöldið, þá voru aðeins nefnd tvö mál, sem samstarfið átti að byggjast á. Annað málið var að tryggja samþykkt jarðræktarl., sem nú liggja fyrir Alþ., en hitt var raforkumálið, en fiskveiðasjóðurinn var alls ekki nefndur, og var því atriði bætt inn í síðar, því að samanborið við þá fjölskrúðugu stefnuskrá, sem Framsfl. virtist hafa áhuga fyrir, meðan verið var að ræða um fjögurra flokka stj., hefur honum líklega fundizt þetta nokkuð fátæklegt. Þegar Framsfl. var spurður þess, hvað hann meinti með raforkumálunum, þá varð honum svarafátt, sem að vonum var, vegna þess að hvorki hann né aðrir flokkar hafa mér vitanlega á þessu stigi málsins fengið nein gögn frá þeim milliþn., sem um þessi mál fjalla, og við gátum ekki fengið nein skýr svör um það, hvað fyrir Framsfl. vekti. Þannig var málefnasamningurinn, sem Framsfl. bauð samvinnu um, í raun og veru aðeins eitt mál: jarðræktarfrv., sem fyrir þinginu liggur og er flutt af tveim sjálfstæðismönnum og einum framsóknarmanni. Þetta var önnur leiðin, að hafa sem veikasta ríkisstj. og fátæklegastan málefnasamning, á þeim tímum, er mest var í húfi. Hin leiðin var sú, sem Framsfl. átti þátt í að ræða frá júníbyrjun s. l. nær óslitið fram til 2. okt., er formaður Framsfl. taldi sig ekki vilja taka þátt í áframhaldandi viðtölum, sú leið, sem markast af hinum viðtæka málefnasamningi, er ríkisstj. hefur nú komið sér saman um. Þriðja leiðin, sem Framsfl. er nú að tæpa á og vill láta telja skynsamlega, er ekkert annað en rammasta afturhald og liggur alls ekki fyrir. Það þarf enginn að halda, að Framsfl. eða öðrum haldist uppi að segja við verkalýðinn í landinu: Þið fáið engin ný framleiðslutæki, fyrr en þið lækkið kaupið. Það þarf enginn að halda, að almenningur í landinu láti bjóða sér, að löggjafarvaldið segi: Fyrr en þið hafið fallizt á þær kauplækkanir, sem við ákveðum, verður ekki komið með nein ný framleiðslutæki. Slíkt hefði ekki haft í för með sér annað en stríð upp á líf og dauða milli þeirra, sem vilja halda dauðahaldi í þau sérréttindi, er þeir hafa fengið, og hinna, sem vilja halda í þau lífskjör, er hinar breyttu kringumstæður hafa boðið þeim.l)

Hvers vegna? Vegna þess að við höfum fengið tæki, sem kunna að vera orðin úrelt hjá hernum. Mér dettur ekki í hug að halda, að það sama verði upp á teningnum á öllum sviðum atvinnulífsins, og almenningur segir: Fyrr en búið er að ganga úr skugga um, að peningarnir geti komið fram úr rottuholunum, verður ekki um það að ræða, að tekið verður af okkur: Mér er vel ljóst, að það getur enginn sagt um það í dag, að hvað miklu leyti verður að heyja þessa baráttu, og mér er það alveg ljóst, að það verður að heyja þessa baráttu áður en komið er til almennings og fyrirskipað er að lækka kaupið. Ég vil meðal annars benda þessum hv. þm. á það, að það er ekki víst, að hann sé einfær um að gefa út þá skipun, og mér finnst ástæðulaust að fara út í slíkt, fyrr en tilraun hefur verið gerð í þá átt að hefja margumrædda nýsköpun. En ef þetta mislukkast, þá skal ég vera fremstur í þeirra hópi, sem telja, að það kunni ekki góðri lukku að stýra fyrir Íslendinga, að þeir reki framleiðslutækin með tapi. En þá er líka hægt að segja, að allt hafi verið gert, sem hægt var, til þess að halda uppi lífsafkomu almennings. Hv. þm. má ekki halda, að stj. hafi ekki svipaða þekkingu og hann á atvinnulífi þjóðarinnar, og ég hefði að því leyti eins vel getað haldið fyrri partinn af hans ræðu, að mér er það alveg ljóst, að atvinnulíf landsmanna þarf að bera sig. En hv. þm. á eftir að svara því, hvernig hann ætlar að tryggja þetta og hvað það er, sem fram á að fara áður en ríkisstj. Íslands má reyna að stuðla að því að fá ný tæki til þess að endurskapa atvinnulífið á þeim tímum, þegar hver þjóð er annars vegar að reyna að afla sér nýtízku tækja og hins vegar að reyna að afla sér markaða til þess að hægt sé að hagnýta tækin. Hv. þm. á eftir að svara því, sem ég taldi saman, og meðan hann hefur ekki svarað þessu með fullri skynsemi og skilningi, má hann eiga von á því að liggja undir grun um það, að þessi ræðuhöld hans verði talin flutt af manni, sem hefur orðið af sporvagninum.