06.02.1945
Neðri deild: 122. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1347 í B-deild Alþingistíðinda. (3404)
240. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Frsm. (Sigfús Sigurhjartarson):
Herra forseti. — Frv. þetta er upphaflega flutt af fjhn, hv. Ed., samkv. ósk hæstv. fjmrh., sem hafði verið um það í samráði við hæstv. ríkisstjórn.
Þau meginatriði, sem í frv. felast, eru þrjú. Í fyrsta lagi það, sem fram kemur í 1. og 2. gr., um nokkra takmörkun, bæði til sjóðsfélaga sjálfra og maka þeirra. Eins og kunnugt er, þá miðast ellilífeyrir og önnur hlunnindi, sem sjóðurinn greiðir, við meðaltekjur hlutaðeigandi embættismanns síðustu 10 ár, sem hann hefur verið í embætti. Ég hef lagt til, að sú breyt. verði gerð, að upphæð ellilífeyris megi aldrei nema meiru en 75% af launum þeim, sem greidd eru fyrir tilsvarandi embætti á hverjum tíma, er sjóðsfélaginn lætur af því, og lífeyrir eftirlifandi maka megi aldrei nema meiru en 50%.
Ástæðan er sú, að nú, þegar vísitalan .er mjög há, og ef svo verður um nokkurra ára bil. en síðan fellur verðlagsvísitalan aftur. þá má búast við, að þeir embættismenn, sem hverfa frá störfum, meðan vísitalan er enn há, geti komizt jafnvel á hærri eftirlaun en nemur launum starfandi manna í því embætti, sem um ræðir, á sama tíma. — Því þótti mér rétt að setja þessa takmörkun, og ætla ég að það mál þurfi ekki frekari skýringar við.
Þá er næsta meginatriði frv., sem fjallar um það, að þeir menn, sem koma undir ákvæði þessara l. 1944, öðlist að fullu rétt sjóðsfélagans eins og þeir hefðu komið inn undir l. á þeim tíma, sem þeir gengu í opinbera þjónustu.
Til þess að þetta megi verða, er tilætlunin, að þeir greiði til lífeyrissjóðs sem því svarar, að þeir hefðu átt að greiða samkv. l. frá 1919 fyrir tíu s.l. ár, ef þeir hefðu verið svo lengi í starfi. Einnig er ætlazt til, að lífeyrissjóður endurgreiði lífeyrissjóðsframlög þessara manna og þau gangi yfir í Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins upp í þessa greiðslu aftur í tímann.
Nú má búast við því, að þegar til þess kemur, að þessir menn eigi að njóta hlunninda sjóðsins, muni nokkuð á vanta í ýmsum tilfellum, að þeir hafi greitt svo mikið, sem með þarf, til að öðlast þau fríðindi, sem þeir eiga að fá, og er til ætlazt, að ríkissjóður greiði mismuninn.
Því miður er ekki hægt að svara nákvæmlega, hve miklu þetta muni nema fyrir ríkissjóð. Þó hefur verið gerð nokkur áætlun um, hve mikla upphæð þyrfti að setja inn í sjóðinn nú í dag til þess að mæta þeim kröfum, sem á sjóðinn skapast með þessari lagabreyt., og eftir því, sem næst verður komizt, er það allveruleg upphæð. eða 6–7 milljónir fyrir ríkissjóð. En það er vitanlega ekki það, sem liggur hér fyrir, að kasta slíkri upphæð inn í sjóðinn nú, heldur að jafna metin á svo sem 20–30 árum. meðan þeir menn, sem nú koma inn undir hlunnindi sjóðsins með þessari breyt., eru að hverfa af sjónarsviðinu. Sennilegt er, að árleg útgjöld ríkissjóðs af þessum sökum verði ekki ýkjamikil, þegar þess er gætt, að þeir embættismenn ríkisins, sem fá ekki fullan lífeyri, komast inn á 18. gr. fjárl. og fá þar þá aukagreiðslu. sem vantar á, að þeir fái full hlunnindi. Ef þessari reglu er haldið áfram, breytir þetta frv. engu öðru en því, að ákveðið er í eitt skipti fyrir öll, að þessar greiðslur fari fram. sem hingað til hafa verið ákveðnar í fjári. á hverju ári fyrir sig.
Þriðja atriðið í frv. er það, að bætur, sem sjóðsfélagar, makar þeirra og börn eiga rétt á hjá alþýðutryggingunum, skuli dregnar frá þeim hlunnindum, sem þeir eiga að fá úr lífeyrissjóði samkvæmt l. Þetta er sjálfsagt ákvæði. Það er engin ástæða til annars en slíkar bætur, t.d. slysabætur, séu dregnar frá þeim bótum, sem þessi l. gera ráð fyrir.
N. er sammála um að mæla með þessu frv. Einn nm., hv. þm. V.-Húnv., hefur þó fyrirvara um málið. Mun hann byggjast á því, að honum þótti ekki nægilega upplýst, hvað kostnaðurinn yrði mikill fyrir ríkissjóð.