15.09.1944
Neðri deild: 50. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í C-deild Alþingistíðinda. (3420)

117. mál, bráðabirgðaverðlag landbúnaðarafurða

Stefán Jóh. Stefánsson:

Út af ræðu hv. 2. þm. N.-M. vil ég segja, að ef hann gætir vel að löggjöf, sem hefur miðað að því að fresta framkvæmd tiltekinna l., mun hann komast að raun um, að ályktun hans um hliðstæður er ekki rétt. Hér er talað um að fresta um tiltekið tímabil að greiða uppbætur fyrir hækkun á verðlagi landbúnaðarafurða, en alls ekki slegið föstu að fella niður að greiða þær fyrir þetta tímabil. Og nú, þegar báðir þessir hv. þm., sem tekið hafa hér til máls gegn þessu frv., hafa sjálfir heyrt, þótt ekki væri í þessari hv. d., heldur í Sþ., þá grein gerða fyrir frv., að ef ekki yrði samkomulag áður en fresturinn væri á enda, þá mundi koma aftur það, sem áður var, og ná til þess tíma, sem fresturinn byrjaði, þá finnst mér, að tortryggni út af framkomnu frv. eigi við sáralítil rök að styðjast. Það væri hægt að segja, að tortryggni væri réttmæt, ef sú skýring hefði fylgt í upphafi, að það ætti að fella niður uppbótargreiðslur fyrir þetta tímabil, hvort sem samkomulag næðist eða ekki á tímabilinu, en þegar fylgdi öfug skýring, sem fellur ákaflega vel inn í orðalag frv., þá finnst mér það nálgast hótfyndni að bera fram andúð gegn frv. af þessari ástæðu, og þegar líka þeim, sem þykir ákvæðin ekki nógu skýr, þótt skýring fylgdi í þingræðu, er boðið upp á að gera breyt. til að orða frv. enn skýrar, þá ætti öll tortryggni af þeirra hálfu að vera horfin, ef það er ekki svo, að eitthvað annað byggi á bak við.

Hv. þm. V.-Sk. var að tala um hugarfar. Það mætti líka tala um, að það hugarfar væri ekki glæsilegt til samkomulags, sem lýsir sér í þeirri andúð, sem kemur hér fram gagnvart þessu frv.