22.09.1944
Neðri deild: 54. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 404 í C-deild Alþingistíðinda. (3443)

132. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. — Mér heyrðist einhver tala hér áðan um smjör. Og satt að segja varð mér það fyrir að líta við frá því, sem ég var að gera, þegar hv. þm. V-Sk. fór að tala um smjör. Ég er satt að segja alveg orðinn gáttaður með að skilja, hvernig því er varið, að í þessu landbúnaðarlandi, þar sem jafnmikið er gert til þess að styðja landbúnaðinn, þá skuli það vera staðreynd, að tæplega hefur sézt íslenzkt smjör á markaðinum hér í sumar. Það virðist svo sem þessi vara sé alls ekki til á markaðinum um hásumartímann, heldur verða neytendur að sætta sig við að kaupa erlenda vöru, sem er miklu lakari að gæðum en hin íslenzka, en þeir verða að greiða fyrir hana sama ofurháa verðið, sem þeir greiða fyrir íslenzka smjörið. Þetta ástand er óhætt að segja, að sé afleitt. Það kann að vera, að það sé of mikið að segja, að það sé óþolandi, en í mörgum tilfellum má segja, að það sé illþolandi, að íslenzkum neytendum sé boðið upp á þessi skipti. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að biðja um skýringu á þessu, því að ég verð að játa, að mér eru ástæðurnar fyrir þessu ekki vel kunnar. Sumir segja, að íslenzka smjörið sé lagt í forðabúr og að það eigi að geyma það þar til þess að þrýsta upp smjörverðinu. Ég vil þó taka það fram, að þetta eru ekki mín orð, heldur hef ég aðeins heyrt þetta sagt. Sumir segja líka, að íslenzka smjörið sé selt til setuliðsins og að við Íslendingar séum látnir fá þetta krama, súra og næstum óæta ameríska smjör í staðinn.

Úr því að svo vel vill til, að hæstv. atvmrh. er hér viðstaddur, þá vil ég nú nota tækifærið og spyrja hann, hvaða skýringu hann geti gefið á þessum smjörskorti. Við, sem erum uppaldir í kaupstað og höfum litla nasasjón af búskap, látum okkur skiljast, að það geti verið lítið um smjör á veturna, en það er mér óskiljanlegt, að um hásumarið skuli ekki fást smjör, því að ég held, að það sé óhætt að segja, að íslenzkt smjör hafi verið lítt fáanlegt hér í Reykjavík í sumar. Það er afleitt að verða að fara á mis við þessa ágætu vöru, en vera í þess stað neyddur til þess að kaupa rándýra og lítt nothæfa vöru, sem er flutt frá útlöndum. Það má því segja, að neytendur séu heldur ömurlega leiknir, einkum og sér í lagi þar sem mestur hluti þess smjörs, sem þeir fá, er fluttur inn frá útlöndum.