22.09.1944
Neðri deild: 54. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í C-deild Alþingistíðinda. (3446)

132. mál, sala mjólkur og rjóma o.fl.

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. — Ég þakka hæstv. atvmrh. þá tilraun til skýringar, sem hann gerði hér áðan, en ég verð að segja, að svar hans var lítið skeleggt. Hann hafði engar tölur fram að bera, sem sýndu smjörframleiðsluna frá ári til árs, og gat því ekki sýnt fram á, að hún hefði ekki minnkað. Hann leit svo á, að bændur teldu sér aðra framleiðslu hagkvæmari nú en smjörframleiðslu. Í þessu sambandi væri æskilegt, að hæstv. ráðh. vildi upplýsa, hvernig á því stendur, að innflutta smjörið er selt hér með svo geipiháu verði, að Viðskiptaráð mundi vafalaust taka alvarlega í taumana, ef eitthvert einstaklings verzlunarfyrirtæki leyfði sér slíka álagningu á vörur sínar. En það er ekkert leyndarmál, að ameríska smjörið er selt svo dýrt, að álagningin fer langt fram úr því, sem þekkist hér á öðrum nauðsynjavörum. Hverju sætir þetta? Er þetta gert til þess að verðbæta það smjör, sem bændur sjá sér hag í að framleiða ekki? Þetta er einkennilegt ástand. Íslenzka smjörið hverfur af markaðinum og hæstv. ráðh. segir, að það sé vegna þess, að það borgi sig ekki að framleiða það, en svo er flutt inn í landið mikið af smjöri, sem er margsinnis lakari vara, og gætu menn búizt við því að geta greitt hana lægra verði, en ríkisstjórnin ekur því þannig til, að almenningur verður að kaupa hana jafndýra og íslenzka smjörið til þess að verðbæta það, að sagt er, þótt það komi nær alls ekki á markaðinn.