06.02.1945
Efri deild: 119. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (3469)

269. mál, lendingarbætur í Grunnavík

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. — Sjútvn. hefur athugað þetta frv., og hún hefur borið það saman við gildandi l. um lendingarbætur og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.

Ég vil geta þess, að upphæðin er aðeins 15 þús. kr., sem ætlazt er til, að lagt sé fram úr ríkissjóði í sambandi við þessar lendingarbætur, og hefur þessi upphæð þegar verið veitt í fjárl. fyrir árið 1945. Þetta frv. er því í fullu samræmi við það, sem hv. fjvn. hefur ákveðið.