15.02.1944
Neðri deild: 13. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (349)
40. mál, nýbygging fiskiskipa
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Herra forseti. — Ég tel rétt í tilefni af ræðu síðasta ræðumanns að benda á það, að eins og frv. er lagt hér fyrir og eins og ég ætlast til, að ljóst sé af því, sem ég tók fram hér áðan, þá er hér gert ráð fyrir, að hvort tveggja sé heimilt, að styrkja og lána. En það eru engin fyrirmæli um, að þessa styrki skuli veita, og það er eftir þessu frv. algerlega á valdi atvmrh., hver sem hann er, að ákveða, hvort veita skuli styrk eða lán.
Það er rétt tekið fram af hv. þm., að er ég talaði við hv. mþn., taldi ég ekki enn þá ástæðu til að veita mönnum styrki til að kaupa skip frá Svíþjóð, ef skipin væru með því verði, sem gefið hefur verið upp. Þessi skoðun mín er óbreytt og sýnir, að á meðan ég hef með mál þessi að gera, mun ég hegða mér eftir þeirri skoðun. En hins vegar taldi ég ekki rétt að útiloka, að hægt væri að verja einhverju af þessu fé til að styrkja menn til skipasmíða undir sérstökum kringumstæðum.
Afstaða mín er því óbreytt frá því, er ég talaði við hv. mþn. Og ég vildi gera þetta skýrt í tilefni af síðustu ræðu. — Mér sýnist ekki ástæða til að tala hér um það, að mönnum sé boðinn styrkur. Lögin heimila, að ríkisstj. geti veitt mönnum styrk, en hún hefur enga skyldu til að gera það. Og það er þá fyrst hægt að tala um, að mönnum sé boðinn styrkur, ef l. yrðu samþ. og ríkisstj. auglýsti, að menn skyldu senda beiðnir um styrki, en ekki lán. Þá fyrst væri hægt að tala um, að mönnum væru boðnir styrkir, en ekki fyrr.