15.11.1944
Neðri deild: 74. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í B-deild Alþingistíðinda. (35)
183. mál, nýbyggingarráð
Eysteinn Jónsson:
Ég geri ráð fyrir því, að margir séu mér sammála um það, að lítið væri hægt að vita um það, hvert stj. stefnir með framkvæmdir sínar, áður en hæstv. forsrh. tók til máls, og ég held, að menn séu engu nær eftir ræðu hæstv. forsrh.
Hæstv. forsrh. kom víða við, en ég mun þó minnast á sumt af því, sem hann fór með. Hann sagði, að Framsfl. hefði gert sig líklegan til að vilja eiga þátt í stjórnarmyndun, að því er mér skildist með þrennu móti, og hefði hann þá viljað mynda stj., sem hefði verið, eins og hann sagði, miklu veikari heldur en sú stj., sem nú situr að völdum, stj., sem hefði lítinn eða engan málefnasamning við að styðjast, og mun hann þar eiga við það, að Framsfl. stakk upp á myndun stj. með Sjálfstfl., og væri forsrh. hlutlaus. Ég er ekki á sama máli og hæstv. forsrh. um það, að núverandi stj. sé sterk stj., þó að hún hafi stuðning 32 þm. Ég held, að sú stj., sem hann hefur nú myndað, sé sú veikasta stj., sem nokkurn tíma hefur setið í þessu landi, að undanskildri einni stj., sem þessi sami forsrh. stóð að og starfaði á árinu 1942 og var undir forsæti þessa sama manns. Ég fullyrði það, að þó að það kynni að hafa orðið minna af skrumi í kringum þá stj., sem hann minntist á, og hún hefði orðið veikari að hans dómi, þá hefði hún aldrei orðið veikari heldur en sú stj., sem nú hefur verið sett á laggirnar. En reyndin mun eiga eftir að sanna þetta glögglega. Hæstv. forsrh. sagði, að við hefðum aðeins nefnt tvö mál í sambandi við þá uppástungu, sem við gerðum um stjórnarmyndun með Sjálfstfl. Þetta er algerlega rangt. Við framsóknarmenn settum fram þá kröfu, að það yrði séð fyrir tekjuöflun til þess að hægt væri að afgr. fjárl. tekjuhallalítið, og þetta var út af fyrir sig ákveðin stefnuyfirlýsing af okkar hálfu. Enn fremur stungum við upp á því, að samþ. yrði á þinginu jarðræktarfrv. það, sem nú liggur fyrir því. Enn fremur lögðum við til, að stefna mþn. í raforkumálum yrði upp tekin, sem sé að ríkið tæki að sér að reisa stærstu orkuverin og leggja aðalorkulínurnar. En hæstv. forsrh. vildi láta skína í annað. Þegar við afhentum uppástungur okkar skriflega, bættum við við eflingu fiskveiðasjóðs. Hér var stungið upp á ákveðnum leiðum, hér var ekki um almennar leiðir að tala, ekki almennt hjal. Hér var stungið upp á ákveðnum leiðum til þess að koma á ræktun við landbúnaðinn, svo sem með því að auka véltæknina o.s.frv. Hér var stungið upp á ákveðinni stefnu. En þótt leitað væri með logandi ljósi í gegnum allt það, sem komið hefur frá stj. um það, sem hún vill gera í atvinnumálum landsins, bólar þar ekki á till. um neitt tiltekið úrræði í neinu máli. Þar er ekkert sagt um það, hvernig eigi að framkvæma nokkurt mál, og hæstv. forsrh. gerði ekki minnstu tilraun til þess að benda á, að ég hefði haft rangt fyrir mér, þegar ég sagði, að ekkert væri ákveðið um það í stjórnarsamningnum, hvernig ætti að framkvæma stefnu stj. í atvinnumálum þjóðarinnar. Þá sagði hæstv. forsrh., að það væru undur mikil að heyra það, að ég væri hér á Alþ. að gagnrýna stj. fyrir það. að hún hefði ekki ákveðið stefnuna í atvinnumálum, þar sem við framsóknarmenn í samninganefndinni um myndun fjögurra flokka stj. hefðum lagt fram till. um atvinnumálin, sem væru alveg samhljóða yfirlýsingu stj., og hæstv. forsrh. sagði, að þetta hefðu verið okkar till. í málinu, eins og hann orðaði það, og þessi mál hefðu verið svo þrautrædd á milli flokkanna í þessari n., að það hefði verið vitað, að það, sem lagt var fram af hálfu hvers flokks um sig, hefði verið það endanlega, sem frá honum ætti að koma. Ég verð að segja það, að þessi málflutningur frá hendi hæstv. forsrh. kemur mér ekki á óvart. Ég þekki það, hvernig hæstv. forsrh. fer með mál af þessu tagi og þau viðtöl, sem við hann er átt vegna þessara hluta. Hið sanna er, að allt það, sem flokkarnir lögðu fram í 12 manna n. um atvinnumálin, og allt það, sem flokkarnir vildu láta ræða í n., það var alls ekki rætt í n., og hæstv. forsrh. veit það vel, að þessi málefni hafa nærri ekkert verið rædd í þessari 12 manna n. Það var síðan sett á laggirnar undirnefnd 4 manna, sem átti að ræða nánar um úrræði í atvinnumálum og fleiri mál, og hæstv. forsrh. átti að stjórna þeirri undirnefnd, og hæstv. forsrh. veit það vel, að við ræddum aðeins um utanríkismál og verzlunarmál, en atvinnumál og fjármál voru alls ekki rædd, og hann stöðvaði sjálfur þær umr. og sagði, að það þýddi ekki að ræða þessi mál fyrr en séð væri, hvort strandaði á dýrtíðarmálunum. Þess vegna var það svo, að þessar uppástungur voru þannig, að það þurfti af allra hálfu að ræða þær miklu nánar heldur en hægt var að gera í þessari 4 manna n., ef það átti að vera hægt að byggja á því löggjöf eða stórframkvæmdir. Eitt af því, sem hæstv. forsrh. las upp í þessu sambandi, var uppástunga frá okkur um það, að fjáröflun færi fram með þeim hætti, að skattleggja skyldi sérstaklega þá aðila, sem hefðu safnað auði á undanförnum árum, sem sé að auðjöfnun yrði komið á. Með auðjöfnun áttum við við eignaraukaskattinn. Í þessum umr. var ekkert vitað um afdrif mála í 12 manna n. Við tókum nú fyrst uppástungu, sem kom frá Sjálfstfl., umorðuðum þar viss atriði og tókum ýmislegt upp í okkar till., sem ekki var í till. Sjálfstfl., t.d. eins og það, að (eyða í handr.). En við tókum það fram, að þó að við tækjum þetta þarna upp, þá hefðum við ekki átt kost á því að gera grein fyrir því, hvort þetta væri framkvæmanlegt, en það var fjarri því, að þessar till. væru okkar síðasta orð í þessum málum. En svo segir hæstv. forsrh., að þetta plagg hafi verið það endanlega orð í atvinnumálum og fjármálum. Þetta er náttúrlega óviðeigandi af hæstv. forsrh., og skal nú upplýst, hvernig á þessu stendur. En setjum nú svo, að við hefðum gengið inn á hugsanagang hæstv. forsrh. í þessu og litum þannig á, að þetta hafi verið það, sem Framsfl. hefði viljað leggja fram í sambandi við myndun 4 flokka stj. Setjum nú svo, að þetta hefði verið gert, sem ég álít, að hefði verið ómögulegt, ef það hefði verið ætlunin að gera sér grein fyrir þessu máli áður en stj. hefði komið. Hefði þá ekki komið að því, að stj., sem fengin var, með alinennu orðalagi hlyti að útfæra þessa stefnu nánar, áður en langt um liði, og hlaut þá að koma að því, að hún legði fram sínar till. um það, hvaða leið ætti að fara í hverju hinna stærri málefna. En þetta er það, sem núverandi stj. hefur látið undir höfuð leggjast enn sem komið er. Hún hefur aðeins látið frá sér fara almenn orð, sem ekkert segja um neinar framkvæmdir, og stj. hefur tekið sér hálfsmánaðar frí til þess að gera frekari till., og ekkert kemur nema eitt lítið frv. um að athuga þetta allt nánar. Og þessi stj. hefur gefið í skyn, að hún ætlaði að hefja nýsköpun í atvinnulífi þjóðarinnar. Hæstv. forsrh. gekk svo langt að halda því fram, að Framsfl. hefði verið engu betri, og það gekk svo langt, að hann sagði, að þegar rætt hefði verið um væntanlega stjórnarmyndun, hefði ekki verið spurt um það, hvar ætti að taka peningana til þess að jafna fjárlögin og borga tryggingarnar. En þetta er rangt hjá hæstv. forsrh. Við tókum það fram, að við vildum reyna að koma því til leiðar, að flokkarnir sæju fótum sínum forráð í þessum efnum, og höfðum ævinlega stungið upp á því, en þetta máttu fulltrúar sósíalista og hæstv. forsrh. ekki heyra nefnt, og mun það ekki sízt hafa stafað af því, að hæstv. forsrh. hafi óttazt, að ef farið væri að rannsaka þetta og athuga, þá mundi fljótlega koma að því, að hann yrði að opna sína pyngju.
Þá kem ég að því, sem hæstv. forsrh. kallaði þriðju leiðina, sem framsóknarmenn hefðu getað hugsað sér, það sem hann kallar hið rammafturhaldssama sjónarmið, sem sé að því skuli vera haldið fram, að það hafi verið orðið þannig ástand í landinu, að nauðsyn . bæri til að þoka niður kaupgjaldinu. Þetta er það, sem hæstv. forsrh. kallar hið rammafturhaldssamasta sjónarmið, og er fróðlegt að heyra þetta frá formanni Sjálfstfl. hér á Alþ. Og hann sagði, að það væri alls ekki von, að menn gætu léð máls á þessu, fyrr en þeir auðugu hefðu tekið eitthvað af sínum fjármunum. Ég vil fyrst benda á það, að Framsfl. hefur aldrei dottið í hug að fara fram .á lækkun á kaupgjaldi nema því aðeins, að þeir auðugu legðu fram eitthvað af sinni hálfu í gagnlega hluti, svo sem til nýsköpunar atvinnuveganna, þannig að slíkar framkvæmdir hafa ekki staðið á þessu í því sambandi.
En þá sagði hæstv. forsrh. annað, sem ekki var síður eftirtektarvert. Hann sagði, að það væri engin von til þess, að menn vildu ljá máls á því að stöðva kauphækkunarkröfur, hvað þá að færa kaupið niður, fyrr en búið væri að ganga úr skugga um það, hvort atvinnuvegirnir bæru það kaupgjald, hvort það væri þörf á því, að slík lækkun ætti sér stað að dómi hæstv. forsrh. Með öðrum orðum, nú stendur málið þannig, að það er óhætt að hafa þetta eins og það er, það er ekki að tala um að hnika því neitt til frá því, sem það er í dag, og sjá svo, hvað nýju atvinnutækin geta borið, og það væri gott, ef því væri til að dreifa. Hvernig er svo ástandið? Hæstv. forsrh. sagði það þannig vaxið, að það væri engin þörf á tilslökun. Hæstv. forsrh. hélt því fram, að hann hefði eins getað haldið fyrri hlutann af minni ræðu áðan að efninu til, hann sagði, að þar hefðu komið fram sams konar sjónarmið. En um hvað fjallaði fyrri hluti minnar ræðu? Hann fjallaði um það, að nú þegar væri svo komið framleiðslukostnaði í landinu, að mikill hluti framleiðslunnar gæti alls ekki staðið undir kostnaðinum að óbreyttu ástandi, eins og það væri nú. Ég sýndi fram á með rökum, sem hæstv. forsrh. getur ekki hrakið, að sjávarútvegur og landbúnaður bendir á annað eftirtektarvert fyrir hæstv. forsrh. Það bendir til þess, að allur framleiðslukostnaður, eins og hann er nú, — og þó eru greiddar úr ríkissjóði á næsta ári 16–18 millj. kr. til þess að koma í veg fyrir, að framleiðslukostnaðurinn komi fram að fullu —, er þannig vaxinn, að ég held, að það verði ekkert skemmtilegt að koma saman fjárl. með þessu frv. og með öllum þeim frv., sem stj. ætlar að hengja á fjárl. Það er því auðsætt, að þetta getur ekki staðizt til lengdar, þó að menn hafi viljað eiga þátt í því að fleyta þessu áfram, en það er ekki vegna þess, að við sæjum ekki, að þetta getur ekki staðizt, heldur gerum við það til þess að reyna að fleyta því áfram enn um nokkurn tíma. Við höfum aldrei reynt að mynda stj., sem við sáum fyrirfram, hvað var rotin. Við höfum ekki getað fengið okkur til að bera fram þá þjóðlygi, að við höfum vissa hæfni til að stýra þúsund ára ríkinu. Það, sem hér skilur á milli, er það, að við höfum talið nauðsynlegt, að fram færi leiðrétting og lagfæring á ýmsum sviðum, áður en ráðizt væri í svo stóra hluti, sem hér er gert ráð fyrir. Ég vil minna hæstv. forsrh. á eitt í sambandi við það, þegar hann talaði um rammafturhaldssamt sjónarmið þeirra, sem hefðu getað hugsað sér það, að verkalýðurinn slakaði eitthvað til, og það er þetta: Hæstv. forsrh. hefur verið fremstur í flokki þeirra manna, sem skoraði á íslenzka bændur að slaka til. Hann skoraði á bændur að lækka sínar tekjur, sitt afurðaverð frá því, sem þeir áttu að fá samkvæmt dómi, sem upp var settur af hæstv. Alþ. Hæstv. forsrh. hefur verið fremstur í flokki þeirra manna, sem hafa kallað það rammafturhaldssamt sjónarmið að fara fram á, að launastéttirnar slökuðu til frá því, sem þeim var tildæmt. Hver nauðsyn rak nú hæstv. forsrh. til þess að leggja það til, að þetta yrði gert af hálfu bænda, og hverja nauðsyn bar til þess, ef öllu var jafnóhætt eins og hæstv. forsrh. vill vera láta, eða er það svo, að stj. sé orðið ljóst, hversu tæpt þetta allt stendur, og. að hér hafi verið svo hátt spilað, að ef bændur hefðu ekki sýnt þann þegnskap að falla frá sínum réttmætu kröfum um afurðaverðið, hefði dýrtíðin nú þegar verið komin upp í 300 stig eða þar yfir og atvinnureksturinn verið farinn að dragast saman og engin von hafi verið til þess að halda þessu lengur við stundinni lengur? En hafi það verið rammafturhaldssamt að láta sér detta í hug, að allir ættu að láta eitthvað af mörkum vegna þess að komið væri of langt, hvernig stendur þá á því, að hæstv. forsrh. skyldi láta sér detta í hug að fara fram á slíka lækkun einvörðungu hjá bændastéttinni? Hæstv. forsrh. getur ekki talið það nein réttlætisrök, þó að það hafi verið hægt að halda fyrir bændum réttlátum útflutningsuppbótum, ef þeir ekki slökuðu til. Þau rök er aðeins hægt að nota, þegar menn gera það upp við sig, hvort hafi verið betra fyrir bændur að taka það, sem þeir áttu tilkall til, og verða þess valdandi, að dýrtíðin héldi áfram að vaxa, eða að taka þann kostinn, sem þeir tóku. Þessi hæstv. forsrh., sem þannig talar, hafði átt mikinn þátt í því að fara fram á það við bændur, að þeir slökuðu til vegna þess, hvernig komið var og hversu öllu var teflt á fremsta hlunn. Þessi sami hæstv. forsrh. sér aftur á móti ekkert athugavert við það, þó að hann hafi reynt að fá atvinnurekendur í Reykjavík til þess að hækka kaupgjaldið, á meðan bændur voru fengnir til þess að slaka til vegna þess, hvernig komið var.
Ég spurði hæstv. forsrh. að því, hvernig skilja bæri 4. málsl. 2. gr., ákvæðið um það, að nýbyggingarnefnd hlutist til um, að slík tæki verði tryggð utanlands. Hann sagði, að ég mundi vita, hvað þetta þýddi, því að það væri hið sama orðalag og við hefðum notað í því, sem lagt var fyrir 12 manna n. En það, sem við lögðum fyrir n., voru aðeins drög að því, er ræða átti, en var svo aldrei rætt, og kemur því ekki til mála að vitna í það í þessu sambandi. Ég vil enn fremur benda á, hvað það er broslegt að ætla, að það geti gilt sem skýring á lagagrein, hvaða orðalag ég eða einhver annar hefur haft í einhverju plaggi.
Mér skilst, að nýbyggingarráð eigi að hjálpa til að útvega atvinnutæki og greiða götu einstaklinga til að nálgast þau. En ef hæstv. ríkisstj. meinar eitthvað annað, þá tel ég, að hún eigi að gera grein fyrir því, og ég tel, að þau svör, er hæstv. forsrh. hefur gefið, séu ósæmileg og óviðeigandi.
Ég skal svara spurningu hæstv. forsrh. um það, hvenær ég teldi óhætt að kaupa atvinnutæki, eftir því sem föng eru á í fljótu bragði.
Mér hefur aldrei komið til hugar að stemma stigu fyrir þeim, sem vilja kaupa framleiðslutæki, heldur greiða götu þeirra. Þetta er mitt svar.
Hann spyr og, hvenær megi styðja þá, er vilja afla sér tækja. Það má nú þegar. Það má hvenær sem er. Það er ekki rétt, að stjórnarandstæðingar hafi spillt fyrir því, að atvinnutækin yrðu keypt, en það hefur aftur á móti ríkisstjórnin sjálf gert. Gerðir hennar hafa án efa dregið kjark úr mörgum. Það má vera, að einhverjir láti þetta ekki á sig fá, og ég vona, að þeir verði sem flestir. En það, sem hæstv. ríkisstjórn hefur gert, að hækka útgjöld langt fram yfir það, sem gætnir menn telja ráðlegt, er ekki líklegt til að gefa mönnum kjark til athafna.
Ég tel, að ríkisstjórnin hafi flaskað alvarlega á því að auglýsa svo mjög það, sem hún ætlaði að gera. Ég hef áður bent á það, hver áhrif það getur haft að vekja vonir manna langt fram yfir það, sem efni standa til, að hægt sé að uppfylla. Menn hugsa sem svo: Stjórnin hefur tekið þetta að sér. Ég þarf ekki að hugsa þar um eða leggja að mér. En þegar svo reynslan sýnir, að þetta er ekki þannig, þá koma vonbrigðin og afturkastið.
Ég veit ósköp vel, hvernig þessu er varið og með hverjum silkihönzkum hefur verið tekið á þessum málum af ríkisstjórninni. Það hefði verið hyggilegra og heppilegra fyrir hana að leggja meiri áherzlu á, að einstaklingarnir tækju nú höndum saman við ríkisstjórnina, en segja ekki að hún ætlaði að gera þetta allt saman.
Ég læt nú þetta nægja að sinni, enda ekki ástæða til að ræða þetta miklu frekar en orðið er.