14.12.1944
Neðri deild: 92. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í C-deild Alþingistíðinda. (3560)
182. mál, vatnalög
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Það er örfá orð. Ég er í aðalatriðunum samþykkur þeirri hugsun, sem kemur fram í frv., að bæturnar, sem fást fyrir landsspjöll á þessum jörðum, gangi til að tryggja sveitina og eins þær bætur, sem fást fyrir jarðrask, sem orðið er. Ég stóð samt upp út af öðru atriði. Mér hefur skilizt á umræðum um þetta frv., að það væri að verulegu leyti flutt vegna virkjunar Fljótaár og vegna þeirra landsspjalla, sem þar hafa orðið og gert er ráð fyrir, að verði. Eins og kom fram í ræðu hv. frsm. minni hl., þá hefur þegar farið fram mat á þessum jörðum, og liggur fyrir að semja um það næstu daga og jafnvel að afhenda þeim féð fyrir þetta land, og nú er rn. nýbúið að gefa heimild til að stífla ána, svo að nokkuð af þessu landi fer undir vatn á næstunni. Ég vil benda hv. flm. á, hvort ekki þyrfti að orða þetta frv. ákveðnara en gert er, ef það er meiningin að tryggja þessa menn, svo að það taki ótvírætt til þeirra, ef frv. nær fram að ganga.