14.12.1944
Neðri deild: 92. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í C-deild Alþingistíðinda. (3564)
182. mál, vatnalög
Jón Sigurðsson:
Ég þakka hæstv. samgmrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann lét í té um þetta mál, og ég vil gjarnan ræða við hann um, hvaða breyt. væri ástæða til að gera á frv. við 3. umr.
Út af síðustu ræðu hv. 2. landsk. vil ég taka fram, að ég ætla mér ekki að fara að ræða við hann um sjávarútveg og landbúnað, það mundi hafa lítið að þýða. Ég býst við, að þar sannfæri hvorugur annan.
Hann heldur fram, að mönnum hafi ekki dottið í hug þetta eða hitt, en það er ekkert, sem við getum byggt á, sem við hugsum, að einhverjum kynni að detta í hug. Það eru staðreyndirnar, sem um er að ræða, og það, sem bersýnilega blasir við, er það, að mennirnir flytjast burt, og hvort sem þeir fara til Ólafsfjarðar eða Siglufjarðar, þá eru þeir ekki lengur gjaldendur í þessari sveit, og sveitarfélagið líður við það. Það eru engar hömlur lagðar á menn að flytjast þaðan. Þeir fá þá peninga, sem þeir eiga að fá og þeim ber. En með þessu frv. er sveitarfélaginu samt sem áður tryggt, að búrekstrinum verði haldið áfram, svo að sveitarfélagið líður ekki tjón, og það er það, sem er tilgangur frv. að tryggja, eins og fram er tekið í grg. og ég hef reynt að gera skiljanlegt.