04.12.1944
Neðri deild: 86. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (3607)

200. mál, kirkjubyggingar

Flm. (Gísli Sveinsson):

Herra forseti. — Allmörg undanfarin ár hef ég, sem flyt þetta frv., haft málið til meðferðar og tekið þátt í umr. um það bæði á mannfundum og á einstökum sviðum í þrengri hópi. Málið hefur verið athugað hjá mjög mörgum aðilum og fengið þær undirtektir, að ekki yrði hjá því komizt að flytja það inn á löggjafarsviðið. Þetta er orðið svo kunnugt, að segja mætti, að ekki þyrfti mikið um það að ræða. Grg. rekur alla uppistöðu málsins, en auk þess hef ég leyft mér að láta fylgja skýringar á einstökum gr. Nánari skýringar munu verða veittar, ef þörf þykir, í umr. Nú vildi ég aðeins skýra það nokkuð, hvers vegna tími virðist kominn til framkvæmda Alþingis í þessu máli.

Það má vera öllum kunnugt, að kirkja þessa lands er ekki sjálfstæð kirkja, heldur hefur verið ríkiskirkja síðan um siðbót, — ein af ríkisstofnununum og ekki háð geðþótta einstakra aðila nema að því leyti, sem lög landsins ákváðu. Frá þessu hafa á síðustu tímum gerzt undantekningar þar, sem fríkirkjurnar eru, en hitt getur eigi talizt undantekning frá skyldum við þjóðkirkjuna, þótt mönnum sé leyft að vera utan safnaða og greiða safnaðargjald sitt til háskólans.

Þegar kirkjan var gerð að þætti í ríkisrekstrinum, hurfu til þess hinar miklu eignir hennar og vitanlega um leið hinar miklu skyldur hennar. Þar með tók ríkið eigi aðeins að sér að láta fram fara messur og sjá um, að til séu prestar til þess, heldur og að kirkjur séu reistar og við haldið, svo að þar megi tíðagerð fremja. Þessi skylda ríkisins er viðurkennd í stjórnskipulögum þess, svo að ekki verður um villzt.

Þegar hugsað er um fullnæging þeirrar skyldu, er ljóst, að þar hefur mjög verið misskipt. Ríkið hefur tekið að sér að sjá um, að til væru kennimenn, og haldið uppi kennslu fyrir þá, en hitt hefur gleymzt, að kirkjur þyrftu að vera til. Það þótti lengi vel ekki mikið áhættuatriði, því að kirkjur voru til og voru endurreistar, af söfnuðum, þar sem þeir áttu þær, af einstaklingum, þar sem bændakirkjur voru, og fyrir landsfé, þar sem ríkið hafði af einhverjum ástæðum eignazt kirkjur, og fór þá um lénskirkjur eða umboðskirkjur með ýmsum hætti eftir því, sem á stóð. Þetta lag getur ekki lengur haldizt og er þvert á móti því, sem réttlátt má telja, ef á sögulegan rétt og kirkjulega nauðsyn er litið. Ríkið tók á sig öll völd yfir kirkjunni og alla ábyrgð á hagsmunamálum hennar og þá eigi sízt kirkjuhúsunum. Í frv. er lagt til, að úr vanrækslu og ranglæti sé bætt, ekki með því, eins og raunar væri réttlætanlegt, að ríkissjóður beri allan kostnað af kirkjubyggingum, en að hið opinbera, sem hefur öll völdin og alla ábyrgðina, beri meiri hluta kostnaðar og söfnuðir minni hlutann. Samkv. 1. gr. er ætlazt til, að ríkissjóður greiði ¾ kostnaðar, en söfnuðirnir ¼. Engan veginn er ætlazt til, að söfnuðirnir sleppi við sóknargjöld sín, og ganga þau til viðhalds og kostnaðar við tíðagerðir.

Af tuttugu ára umhugsun um þetta mál og eigi sízt þann áratug, sem liðinn er, síðan það komst á framfæri, hefur mér orðið það æ ljósara, að óhjákvæmilegt væri að flytja málið á þingi þjóðarinnar og setja um það lög á þá lund, sem hér er lagt til. Núverandi ástand verður aldrei lengi þolað úr þessu. Ég veit ekki betur en allir svokallaðir kirkjunnar menn fylgi málinu einhuga, ekki aðeins prestar, heldur söfnuðir, sem í ljós hafa látið vilja sinn, og þeirra fulltrúar. Þegar klerkdómurinn allur frá því lægsta til hins æðsta er einhuga um mál, sem er alls ekki beint fjárhagsmál stéttarinnar, þótt það snerti mjög starfsskilyrði þeirra, þá fer ekki hjá því, að málið hljóti óskipt fylgi alls þorra manna í landinu, og margt bendir til, að svo sé að verða um þetta mál.

Það er ekki nóg, að ríkið sjái fyrir prestum, ef svo fer á fjölda kirkjustaða sem segir í vísitasíugerð: „Kirkja fyrirfinnst engin.“ Hvort sem í það sinn var um veruleik að ræða eða ekki, getur brátt að þessu rekið víða, að engin kirkja sé til. Enn standa þær flestar uppi, hvort sem þær eru messufærar eða ekki. Og kirkjur, sem reistar hafa verið á síðari árum, hafa margar hverjar ekki verið gerðar, sakir fjárskorts, af meiri myndarskap en svo, að þær eru lítt hæfar eða boðlegar til tíðagerðar. Menn verða að viðurkenna, að þetta er ekki samboðið fólkinu, sem kirkjur sækir. Ég vil ekki ræða um hitt, hvort slík hús séu samboðin því málefni og boðskap, sem þar á að flytja. Ég ætlast til, að þm. gangi með þá hugsun, sem við á í þeim efnum, svo að umræðu sé ekki þörf um málefnið.

Ýmis ákvæði gætu orðið með öðrum hætti en ráðgert er í frv., og það íhugar n., svo að ég vil ekki hreyfa því að sinni. Ég er til búinn að verða í ráðum með n. um þá hluti. Auk hinnar almennu grg. hef ég látið skýringar fylgja einstökum gr. frv. Ef þær nægja ekki, mun ég skýra nánar. Bráðabirgðaákvæði taldi ég nauðsyn að setja um það, að kirkjuhús þau, sem nú eru í smíðum, falli undir ákvæði l., ef aðilar óska þess. Vildi ég, að ekki skyldi leika tvímæli á, hvernig um þau hús skuli fara, sem í smíðum eru. Nú sé ég, að hv. fjvn. hefur, eins og vænta mátti, í fullri viðurkenningu þess, sem ég hef rakið, tekið upp styrki til endurbygginga á kirkjum. Og er það vel. En rétt er að koma málinu sem fyrst í það horf, að um eitthvert fast kerfi sé að ræða, að einhver ein ákveðin leið sé farin í þessu efni. Það ætti ekki að verða nein skotaskuld á þessum tímum að styrkja byggingar kirkna. Ég álít ekki megi dragast lengur að koma málinu í fast horf.

Nú mun ég láta hv. dm. dæma um þetta mál. Vil ég mælast til, að hv. þm. stingi hendinni ekki einungis í eigin barm, heldur í barm alþjóðar, barm hv. kjósenda. — Ég legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og menntmn. (SK: Ég legg til að vísa málinu til fjhn.).