18.01.1945
Efri deild: 105. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1362 í B-deild Alþingistíðinda. (3619)

128. mál, búnaðarmálasjóður

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Eins og ég gat um hér við 2. umr. þessa máls, get ég ekki fellt mig við, að frv. þetta verði afgr. óbreytt frá þ., og ,þar sem landbn. sér ekki ástæðu til að taka ábendingu mína í þessu máli til athugunar og hefur ekki komið fram með brtt., leyfi ég mér að leggja fram skriflega brtt., þannig að við 1. málsgr. 3. gr. bætist: „enda dragist það frá andvirði vörunnar, þegar það er endanlega greitt til framleiðenda.“ - En í 1. mgr. 3. gr. segir svo:

„Gjald það, er um ræðir í 1. gr., greiðist af þeim verzlunum og sölumiðstöðvum, er fyrst veita vörunum móttöku.“

Verður þetta ekki skilið á annan veg heldur en þann, að þessir aðilar eigi að bera gjaldið, sölumiðstöðvarnar geta dregið það frá þeim aðilum; sem eiga vörurnar, en verzlanirnar geta ekki dregið það frá framleiðendum nema um það séu nánari ákvæði í l. Með tilliti til þessa leyfi ég mér að leggja fram þessa skriflegu brtt. og vænti þess, að hv. dm. samþ. hana.