24.01.1944
Efri deild: 5. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í C-deild Alþingistíðinda. (3662)
15. mál, miðlunarsjóður húsaleigu
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Um þetta mál er hið sama að segja og frv., sem var til umr. hér næst á undan. Það lá fyrir þessari hv. d. á síðasta þ., náði ekki afgreiðslu þá, og var því vísað til fjhn., sem vannst ekki tóm til að afgr. það.
Ég get vísað til grg. og ummæla minna á síðasta þ., en til viðbótar má geta þess, að síðan málið var tekið til meðferðar hér í hv. d., hefur komið fram nál. frá meiri hl. þriggja manna n., sem ríkisstj. skipaði til þess að athuga vísitöluna, og í því nál. er eindregið bent á það stórfellda misræmi, sem orsakast af mismun á húsaleigu í nýjum og gömlum húsum. Við ákvörðun vísitölunnar er aðeins tekið tillit til 35% hækkunar á húsaleigunni, en hins vegar er vitað, að í nýjum húsum er leigan yfirleitt margföld á við það, sem er í gömlu húsunum, og þeir, sem búa í nýjum húsum, fá því engar bætur á við það, sem aðrir leigjendur fá. Nú skal það viðurkennt, að ekki væri rétt að láta þessa húsaleiguhækkun hjá þeim, sem búa við dýru húsaleiguna, verða til þess að hækka húsaleigu og þá um leið kaupgjald hjá hinum. Eina leiðin virðist því að gera einhverjar ráðstafanir svipaðar þeim, sem gert er ráð fyrir í þessu frv.
Ég skal geta þess í sambandi við 4. gr., að það eru stóríbúðir, sem þar er miðað við. — Eins má segja viðvíkjandi 1. gr., að það getur verið álitamál, hvernig haga skal tekjuöflun í þessu skyni, og mætti ef til vill athuga fleiri leiðir en þar er gert.
Ég vil svo leggja það til, að frv. verði vísað til hv. allshn. að aflokinni þessari umr.