05.02.1945
Neðri deild: 121. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1371 í B-deild Alþingistíðinda. (3667)
128. mál, búnaðarmálasjóður
Pétur Ottesen:
Það, sem ég átti við með því, að sjávarútvegsmenn hefðu sætt sig við þetta gjald, var meðferðin á fénu, til hvers hefði átt að verja því. Hitt er annað, hvaða stofnun hefur verið falin meðferð þessa skatts, og að því leyti, sem það er mál fiskimálan., þá er það rétt hjá hæstv. samgmrh., að það eru mjög uppi raddir um að breyta til um tilhögun á þessu. Ég er hæstv. ráðh. sammála um, að það væri mikil bót frá því, sem nú er, að Fiskifélagi Íslands væri falin meðferð fiskimálasjóðs, en þá væri líka verið að færa nær því, sem í þessu frv. felst eins og það er nú, en þá er það að vísu eftir, að þetta er háð íhlutun ríkisstj., þó þannig, að áður er búið að setja fram formið um það, til hvers eigi að verja þessu fé, en slíkt form er ekki um að ræða í þessu sambandi og ekki heldur til þess ætlazt af bændum.