09.10.1944
Efri deild: 55. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í C-deild Alþingistíðinda. (3683)

139. mál, æskulýðshöll í Reykjavík

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. — Allshn. hefur haft þetta frv. til meðferðar, og mæltu þeir nm., sem á fund komu, með samþykkt frv., en áskildu sér rétt til þess að flytja eða vera með brtt., ef fram kæmu.

Það má segja, að höfuðatriði þessa frv., sem til álita geti komið, séu eiginlega fjögur. Í fyrsta lagi er það, hvort menn telja æskilegt, að af hálfu þess opinbera sé komið upp slíkri æskulýðshöll, sem hér er gert ráð fyrir, og vil ég benda í því sambandi á, að það er ekki sízt fyrir tilhlutun Alþ., að mþn. var skipuð til athugunar þessa máls, þar sem í áttu sæti bæði fulltrúar ríkisstj. og bæjarstj. Reykjavíkur, og varð sú n. sammála um að leggja til, að æskulýðshöll yrði reist. En í þeirri n. áttu sæti Ingimar Jóhannsson kennari, Einar Erlendsson byggingameistari og Einar B. Pálsson verkfræðingur. Og með þessum mönnum starfaði Ágúst Sigurðsson forstöðumaður námsflokka Reykjavíkur, sem af þessu málefni hefur haft náin kynni og má raunar telja forgöngumann þessa máls. N. öll var sammála um að leggja til, að æskulýðshöll væri reist og starfrækt hér. Og á grundvelli álits þeirrar n. var svo það frv. samið, sem hér liggur fyrir, af þáv. hæstv. dómsmrh. í nokkru samráði við mig. En ég leyfði mér svo að flytja það. — Og hv. allshn. þessarar d. varð, eins og ég þegar hef sagt, sammála um að mæla með því, að frv. yrði samþ. og þar með að fallast á nauðsyn þess, að þvílíkri æskulýðshöll verði komið upp.

Önnur atriði, sem sérstaklega koma hér til greina, eru þá einkum, í hvaða hlutfalli menn vilja skipta kostnaði af stofnun og starfrækslu þessarar æskulýðshallar. Og það varð að samkomulagi milli mín og þáv. hæstv. dómsmrh. að leggja til, að kostnaðurinn skiptist jafnt á milli ríkis og bæjar. En mþn., sem um þetta hafði fjallað, undirbúningsn., mun hafa lagt til, að 2/3 kostnaðar skyldu greiðast úr bæjarsjóði, en 1/3 úr ríkissjóði. Mér og hæstv. fyrrv. dómsmrh. sýndist ekki rétt að hafa þau hlutföll, sem n. hafði lagt til, heldur vildum við láta kostnaðinn skiptast jafnt, vegna þess að hér sé ekki síður um að ræða málefni, sem ríkisvaldið varðar, heldur en málefni Reykjavíkurbæjar eins. Og vil ég í því sambandi enn minna á, að það var hæstv. Alþ., sem að vissu leyti hafði frumkvæðið að þessu máli. Og ef ég man rétt, þá var það fyrir áskorun, sem þinginu hafði borizt frá félagi ungra framsóknarmanna hér í bæ, þar sem að því var vikið, sem rétt er, að hér væri um að ræða málefni, sem ekki varðaði síður landsmenn alla heldur en Reykvíkinga eina. Enda er, — satt bezt að segja —, að bæði er nú mikill fjöldi ungmenna búsettur hér í Reykjavík, og slík höll mundi að sjálfsögðu verða að gagni fyrir þau, en hún mundi ekki síður, — og ég vil segja miklu frekar —, verða nauðsynleg fyrir þann mikla fjölda ungmenna, sem hingað sækir hvaðanæva að af landinu til vetrardvalar. Og þess vegna virðist mjög eðlilegt, sem í frv. er lagt til og hv. allshn. hafði ekkert við að athuga, að skipta kostnaðinum jafnt milli ríkisins og Reykjavíkurbæjar. Er þar þó nokkuð hallað á bæinn í þeim viðskiptum, þar sem hann á, um fram sinn hluta að öðru leyti, að leggja til lóðina. Ég gæti hugsað mér sjálfur að bera fram brtt. um það atriði við 3. umr., að lóðin yrði talin með framlagi bæjarins, en slík till. mundi þá eingöngu vera frá mér, en alls ekki n. í heild.

Þá er í þriðja lagi á það að líta, með hverjum hætti stjórn slíkrar stofnunar yrði skipuð, og er hér í frv. lagt til, að ríkisstj. tilnefni einn mann, bæjarstj. Reykjavíkur annan, en hæstiréttur tilnefni oddamann. Ég verð nú að segja, að sjálfum finnst mér nú þessi skipun n. vera hálfklúðursleg, — ég get ekki neitað því. Mér finnst það vera nokkuð varhugavert að blanda hæstarétti ákaflega mikið inn í honum óskyld mál, eins og skipun slíkrar n., sem hér er um að ræða. En þar sem hér var nú um tvo aðila að ræða, sem báðir áttu að leggja jafnt til, og þar sem hæstv. fyrrv. dómsmrh. lét sér nú til hugar koma þessa skipun, þá vildi ég ekki út af því breyta, þegar ég flutti frv. Um þetta var svo nokkuð rætt í n. og að því vikið, að að vissu leyti væri eðlilegast, að einhverjum æskulýðsfélagsskap í bænum eða á landinu væri fengin tilnefning þessa oddamanns, en hún tekin af hæstarétti. En það strandaði á því, að við nm. gátum ekki komið auga á, hver slíkur félagsskapur ætti að vera. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þótt hér í bæ séu mörg æskulýðsfélög, þá er ekkert allsherjar æskulýðsfélag hér til. Ungmennafélag er hér að vísu starfandi, en það hefur ekki mikla þýðingu fyrir æskulýð bæjarins, og mörg félög eru hér, sem hafa þar miklu meiri þýðingu heldur en það. Væri því óeðlilegt að láta það hafa tilnefningarrétt um mann í stjórn þessarar stofnunar.

Eins og ég sagði, þá var n. á því máli, að það gæti vel komið til greina að finna á þessu annað form. Ég sé nú, að einn hv. nm., hæstv. forseti þessarar d., hefur borið fram brtt. einmitt varðandi þetta atriði. Ég fyrir mitt leyti hef ekkert á móti því, sem er aðalefni í hans till., ef hv. d. getur á það fallizt, að ríkisstj. skipi einungis einn mann í þessa stjórn, en bæjarstj. Reykjavíkur tvo, sem kosnir séu með hlutfallskosningu. Þetta mundi ég ákaflega vel geta sætt mig við, þó að því áskildu, að breyt. yrði gerð á kostnaðarhlutföllunum jafnframt. — Hinu atriðinu í brtt. hæstv. forsetans er ég nú ekki alveg öruggur um, að ég geti fylgt, sem sé því, að eins konar fulltrúaráð frá æskulýðsfélögunum í bænum eigi að hafa tillögurétt um málefni þau, er þessa stofnun varða. Þetta lítur að vísu álitlega út, og að meginefni er ég því samþykkur. En mér sýnist sá galli á, að það mundi þá þurfa að tilgreina nokkru nánar, hvaða félög skyldu talin æskulýðsfélög, og þá gera sér nokkra grein fyrir, hversu fjölmennt þetta fulltrúaráð yrði, áður en þetta væri hægt að samþ. Og þess er að gæta, að mörg félög hér í bæ eru þess eðlis, að það er ákaflega erfitt að gera sér grein fyrir því, hvort þau skuli talin æskulýðsfélög eða ekki, t. d. íþróttafélög. Það er vitanlegt, að þau eru ekki að neinu leyti takmörkuð við unglinga, og mundu sennilega vera eingöngu fullorðnir menn, sem í stjórnum þeirra félaga væru og mestu um þeirra mál réðu. Enn fremur er á það að líta, að mörg af þessum félögum hafa þegar látið í ljós, að þau vildu hvergi nærri hinni fyrirhuguðu æskulýðshöll koma, að þar væri um að ræða mál, sem þau vildu ekki hafa afskipti af, hefðu ekki áhuga fyrir. Og það er óeðlilegt að láta þau félög, sem svo stendur á um, fá þann tillögurétt, sem hæstv. forseti þessarar d. hér leggur til. En þar sem nú þessi brtt., sem varðar aðalþátt af meginefni frv., er komin fram, og án þess að við í n. höfum haft færi á að athuga hana, þá vildi ég nú leggja til, að eftir að menn hafa hér gert grein fyrir afstöðu sinni til hennar lauslega og án þess að upp væru teknar sem maður segir þrætur um hana í einstökum atriðum, þá yrði umr. um málið frestað og málinu vísað til n. til frekari athugunar. Það kynni að vera, að skipun forstöðu stjórnarnefndar þessarar stofnunar hefði áhrif á það, hvernig menn vildu láta kostnaðinn skiptast. Og það er ekki heldur eins auðvelt og ætla mætti að skipa samkvæmt till. í fulltrúaráð það, sem hér er gert ráð fyrir.

Þá er enn eitt atriði frv., að það er ráðgert, að þangað til þessari æskulýðshöll verði komið upp, þá verði komið upp í bili eins konar tómstundaheimili, þ. e., að það verði ekki lagt þegar í stað út í þann kostnað, sem bygging æskulýðshallar hefur í för með sér, heldur prófi menn sig áfram í smærri stíl, reyni að fá bráðabirgðahúsnæði og athugi í því, hvernig slík starfsemi mundi til takast. Og þessi tilhögun er einnig í samræmi við till. þeirrar milliþn. sem ég gat áður um. Og sannlegra teldi ég nú, ef þessi háttur væri tekinn, sem ég tel nú vera nauðsynlegan undanfara þess, að sjálfri æskulýðshöllinni verði komið upp. Ég tel það vera sannlegast að reyna að fá einhvern af þeim stóru setuliðsskálum, sem hér eru og sumir mundu henta sæmilega til þessara nota, til starfseminnar í byrjun og sjá með tilraunastarfsemi í honum, hvernig þetta tækist til. Og hef ég þar einkum í huga skála eins og Rauði krossinn hefur við Hringbraut, sem hefur af erlendu setuliði verið notaður til að mörgu leyti mjög svipaðrar starfsemi og hér er ráðgerð.

Þá hef ég nú rakið höfuðefni frv. og reynt að útskýra það lítillega fyrir mönnum. En loks er þess að geta, að í 5. gr. er ráðgert, að það sé heimilt að fá starfsemina í hendur einhverju æskulýðsfélagi til bráðabirgða, — fela því að annast reksturinn, sem þar greinir, sem er þó eingöngu rekstur tómstundaheimilis, en ekki sjálfrar æskulýðshallarinnar. Og þá er ráðgert, að það þurfi ekki að skipa slíka sérstaka forstöðunefnd, sem annars staðar í frv. er sagt fyrir um, heldur semji þá ríkisstj. og bæjarstj. Reykjavíkur við þann æskulýðsfélagsskap, sem þeim þætti tiltækilegastur, um þessa starfrækslu. En það er berum orðum áskilið, að þetta má ekki vera neinn stjórnmálafélagsskapur. Og ég vil ekki fara dult með það sjálfur, að mér þætti líklegast að semja í byrjun t. d, við skátafélagið eða eitthvert slíkt félag, langhelzt skátafélagið, um að taka að sér þennan rekstur.

Að endingu vil ég geta þess, að það er ekki ætlazt til þess, að kostnaður verði af þessu frv. fyrr en fé er til þess ætlað á fjárl. og úr bæjarsjóði Reykjavíkur, og verður framkvæmd byggingar æskulýðshallarinnar algerlega bundin þeim takmörkunum, sem þau fjárframlög setja.

Ég vil gera að till. minni, að þegar menn hafa lokið frumræðum sínum nú, þá verði umr. um málið frestað, til þess að allshn. geti tekið málið til sérstakrar athugunar, sérstaklega vegna brtt. hæstv. forseta d., hv. 4. landsk. þm.