07.02.1945
Efri deild: 120. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1375 í B-deild Alþingistíðinda. (3687)

128. mál, búnaðarmálasjóður

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Það þýðir ekki að verða langorður um þessa hluti, því að hver hefur sína skoðun. Það vorum ekki við, sem að frv. stöndum, sem komum þessum ágreiningi á stað. Ég býst við, að það hafi verið einhverjir í stj. eða henni nákomnir. Ég býst við, að það sé alveg einstakt tilfelli, að stöðvuð sé fjárgreiðsla, sem búnaðarþingið hefur samþ. Það er sitt hvað, þó að landbrh. hafi eftirlit með því fé, sem veitt er af því opinbera. En sú fjárveiting, sem hér er um að ræða, er það, sem bændurnir sjálfir borga úr sínum vasa og hafa falið búnaðarþinginu að fara með.

Hæstv. menntmrh. fór að bera það saman og sagði, að það væri sama, sem frv. færi fram á, og ef Alþýðusamband Íslands tæki 1/2% af vinnulaunum sinna meðlima og safnaði í sjóð. Hæstv. menntmrh. veit, að þetta er alveg sitt hvað, hann veit, að ekki er um alla landbúnaðarframleiðslu að ræða, sem á að borga af, heldur fer mjög mikill hluti hennar í heimilisþarfir.

Hæstv. menntmrh. talaði mikið um þá hættu, sem væri á því, að búnaðarþingið mundi misbeita valdi sínu, og tók dæmi af Sambandi ísl. samvinnufél. Og hann talaði um Samvinnuskólann í því sambandi og þann mikla áróður, sem þar væri framinn. Ég hygg þó, að sú stofnun sé nú komin undir þann mikla hænuvæng hæstv. menntmrh. (Menntmrh.: Nei, nei.) Svo að ég býst við, að hann hafi þar eftirlit og sá skóli verði ein af þeim stofnunum, sem hann getur hlynnt að og eflt. (Menntmrh.: Þetta er misskilningur hjá hv. þm.) Jæja, mér hefði fundizt þetta ákaflega líklegt, en ég veit ekki, hvað vængbreiður hann er, það getur verið, að sá kjúklingur standi út undan hans móðurvæng.