09.10.1944
Efri deild: 55. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í C-deild Alþingistíðinda. (3689)

139. mál, æskulýðshöll í Reykjavík

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. — Ég vil einungis ræða það atriði, hvort heppilegra sé að fresta umr. nú eða vísa málinu nú til 3. umr. og geyma allar brtt. þangað til. Mér finnst það hafa komið fram við þessa umr., að málið hafi ekki verið rætt nægilega í n., þar sem nú hafa komið fram brtt. frá tveimur meðnm. mínum og þessar brtt. geta haft þau áhrif, að fleiri brtt. komi fram. Ég tel því réttara að fresta umr. nú, til þess að n. geti athugað málið betur á þessu stigi. Það er enn þá langt til þingslita, og er málinu því engin hætta búin, þótt það tefðist um nokkra daga. Það verður heldur ekkert byrjað á framkvæmdum fyrr en Alþ. hefur samþykkt fjárveitingu til hallarinnar á fjárl., og eins og kunnugt er, þá eiga þau enn langt í land. Ég vil því halda fast við það, að umr. verði nú frestað.

Út af því, sem hv. 1. þm. Eyf. var að tala um, að sum æskulýðsfélög í Reykjavík vildu ekki sinna málinu, þá vil ég taka það fram, að það er ekki af kæruleysi hjá þessum félögum, heldur er það af því, að þau eru nú að keppast við það að koma upp sínum eigin heimilum og eru því ekki aflögufær.