08.02.1945
Efri deild: 121. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1392 í B-deild Alþingistíðinda. (3777)

259. mál, ítala

Bjarni Benediktsson:

Ég er hissa á því, að hv. þm. skuli taka þetta svona óstinnt upp. Ég var ekki að gefa honum ráð, heldur vildi ég fá ráð og gögn frá honum til þess að ákveða mína afstöðu. Ég vildi vita, hvort hér væri um einstakt fyrirbrigði að ræða eða nýja reglu, sem ætti að fara að taka upp. Nú skilst mér, að það sé ekki ætlunin að taka upp nýja reglu og ekki eigi að láta Nd. ráða eins og hér er gert.

Ég get ekki fallizt á, að frv. hafi farið torleiðis gegnum Nd., því að málið er flutt sem 259. mál og sýnist því hafa verið síðla búið. Grg. er með því einkennilegasta, sem sézt hefur. Þar stendur m.a.: „Nýlega var þinglýst hér eignarrétti tveggja manna á rúmum 80 álnum í 11 hundraða jörð“ o.s.frv. Og síðan segir undir lokin: „Þegar þetta er athugað, finnst mér ekki viðeigandi“ o.s.frv. Þarna er landbn. farin að tala í fyrstu persónu eintölu, og þannig virðist mér öll till. vera. Ég held, að málið hafi ekki fengið rækilegan undirbúning eða athugun, — þessi persóna virðist hafa verið með hugann einhvers staðar annars staðar en við málið, og landbn. Nd. gerir þetta að sínum orðum, án þess að staðfæra það upp á þingið eða sína eigin starfsemi. Mér finnst of mikið kastað höndunum til slíkrar lagasetningar sem þessarar.

Landbn. Ed. lætur sér svo nægja sem meðmæli með frv., að Nd. hafi mælt með því. Ég verð að segja það, að mér finnst um of kastað höndunum til þingstarfa, þegar ráðsettir og reyndir menn, eins og form. landbn. og hv. þm. Dal., takast á hendur að bera fram og flytja jafnilla undirbúið mál og þetta er.