08.02.1945
Efri deild: 121. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1393 í B-deild Alþingistíðinda. (3778)

259. mál, ítala

Páll Hermannsson:

Mér skildist á fyrri ræðu hv. 6. þm. Reykv., að hann væri að gera að gamni sinu. Mér skildist, að hann væri að spyrjast fyrir um það og vildi, að form. landbn. og frsm. þessa máls svöruðu því, hvort landbn. væri komin í eins konar vinnumennsku hjá landbn. Nd. Ég get upplýst hv. þm. um, að svo er ekki. Aftur á móti, að því leyti er þetta mál snertir, verð ég að telja, að það skipti litlu máli, hvort það verður samþ. eða ekki. Hins vegar er það svo, að í þessu frv. er bætt úr agnúum, sem eru taldir á l. um ítölu, en hins vegar hefur landbn. tekið eftir því, hvað grg. er einkennileg, eins og hv. 6. þm. Reykv., og það er auðséð, að hún er ekki samin af n., heldur af einstaklingi. En það er um frvgr. að segja, að það er hún, sem liggur fyrir til samþykktar, en ekki grg. Annars læt ég það óátalið, hvort hv. 6. þm. Reykv. fylgir frv. eða ekki, — ég vildi hins vegar gjarnan eiga hann að í öðru máli, sem kemur til umr. síðar á fundinum.