14.12.1944
Efri deild: 88. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í C-deild Alþingistíðinda. (3784)
174. mál, jarðræktarlög
Frsm. 1. minni hl. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Þetta mál, sem hér liggur fyrir, er gamall kunningi og hefur verið hér oftar á ferð. Sakir kunnleiks þm. á því, verð ég ekki orðmargur nú. Í grg. sýni ég, hver þörf fjölda bænda þykir á afnámi hinna illræmdu ákvæða 17. gr. jarðræktarl. og hve úrelt þau eru einnig. Landbn. gat ekki orðið sammála um frv. Aðeins 3 af nm. hafa gefið út nál. Við hv. 2. þm. Árn. höfum lagt til, að frv. verði samþ. óbreytt, en hv. 1. þm. N-M. leggur til að vísa því frá með rökstuddri dagskrá.
Ágreiningurinn virðist vera sá, að hv. 1. þm. N-M. vill bíða eftir úrskurði búnaðarþings, en við hinir teljum, að búnaðarþing sé þegar búið að láta sitt álit í ljós. Það er nokkurn veginn greinilega sagt í samþykkt þess, sem birt er í nál. 673, og vil ég lesa ummælin með leyfi hæstv. forseta:
„Þar sem búnaðarþingið er þeirrar skoðunar, að leið sú, sem farin var með 17. gr. jarðræktarlaganna og ákvæðum byggingar- og landnámssjóðslaganna um fylgifé jarða, muni ekki ná upphaflega fyrirhuguðu marki, að halda niðri söluverði jarða, ályktar búnaðarþingið að fela milliþinganefnd þess í landbúnaðarmálum að athuga jarðasölumálið og leggja fram tillögur um, hvernig hægt sé að halda jarðaverði við hóf í náinni framtíð.“
Með þessu er búnaðarþing búið að lýsa yfir því, að það telji ákvæði 17. gr. gagnslaust, og það felur mþn. sinni að leita allt annarra ráða til að ná upphaflegum tilgangi hennar.
Ég tel, að með viðhaldi 17. gr. sé töluvert ranglæti framið. Þeir, sem eiga lóðir og lendur innan kaupstaðarmarka og fá þar styrk fyrir umbætur, jafnvel tugi þúsunda, sleppa við ákvæði hennar. Þau ná aðeins til sveitabýla, sem til hundraða verða metin. Bændur einir eru beygðir undir þetta helsi, og skilur enginn, hvað þeir hafa þar til saka unnið. Ég tel, að eftir yfirlýsingu búnaðarþings sé mál til komið að varpa fyrir borð þessu gagnslausa helsi.