25.01.1945
Neðri deild: 112. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1394 í B-deild Alþingistíðinda. (3794)
264. mál, húsaleiga
Frsm. (Garðar Þorsteinsson):
Frv. það, sem hér liggur fyrir, er flutt af allshn. samkvæmt beiðni ríkisstj. Frv. gengur út á það, að ríkisstj. sé heimilt að segja upp leigusamningum um húsnæði í húsum, sem ríkið hefur eignazt fyrir 9. sept. 1941, enda sé knýjandi nauðsyn fyrir ríkið að fá umráð yfir húsnæðinu til þess að geta látið starfsmenn ríkisins fá þar íbúðir, vegna þess annaðhvort, að það sé skylt samkvæmt l. fyrir ríkið að útvega slíkum mönnum húsnæði, eða að öðru leyti óhjákvæmilegt.
Þessi breyt. á húsaleigul. er að því leyti hliðstæð því ákvæði, sem fyrir er, að þeir einstaklingar, sem hafa eignazt hús fyrir 9. sept. 1941, geta einir sagt upp húsnæði, ef þeir hafa beina þörf fyrir það sjálfir. Og n. hefur fallizt á að flytja þetta frv. og leggur til, að það verði samþykkt.