14.12.1944
Efri deild: 88. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í C-deild Alþingistíðinda. (3795)
174. mál, jarðræktarlög
Frsm. 1. minni hl. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Það er óhrakið, sem ég hélt fram, að 17. gr. er gagnslaus, en ekki meinlaus, og komi nýtt í staðinn, verður það allt annað. Þess vegna á að samþ. frv. fyrst, og er það í samræmi við ályktun búnaðarþings, en ræða hitt að því búnu.
Enginn hefur sannað betur ágæti þeirrar stefnu en hv. þm. S-Þ. með því að minna á, hve Sjálfstfl. hafi orðið fylgisdrjúgt fyrir kosningar og hvenær sem er að berjast fyrir afnámi 17. gr. Fyrir hverjar kosningar hafa framsóknarmenn orðið að láta svo mjög undan síga, að þeir hafa viðurkennt nauðsynina að breyta gr. eða afnema og hafa hálflofað að gera það eða allofað. En jafnskjótt og þeir eru komnir á þing eru þeir sperrtir vel, látast ekkert af þessu muna, vita þó, hvern djöful þeir hafa að draga og þeir geta ekki hrist af sér, að þarna er sá Þorgeirsboli, sem fylgir þeim jafnt á degi sem dimmu og er þeim örlagavaldur.