08.01.1945
Efri deild: 93. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í C-deild Alþingistíðinda. (3813)
231. mál, smíði vélbáta
Flm. (Steingrímur Aðalsteinsson):
Herra forseti. — Eins og hv. þdm. þegar hafa séð, er tilgangur með þessu frv. sá að stofna til smíða á nokkrum smærri vélbátum hér innanlands nú á næstunni eða fyrir árslok 1946. Það hefur nú mikið verið talað um hina væntanlegu nýsköpun, sem heita má, að sé eitt aðalatriði í stefnuskrá þeirrar ríkisstj., sem nú hefur tekið við völdum. Og það má einnig segja, að eitt skrefið á þeirri leið hafi verið stigið með þeim samningi, sem gerður hefur verið um smíði 45 vélskipa í Svíþjóð og öðrum ráðstöfunum í sambandi við það mál. En það frv., sem hér liggur fyrir, ætlast til þess, að frekari aðgerðir séu viðhafðar í þessu efni, og þá sérstaklega á þá leið, að gerðar verði ráðstafanir til þess, að smíðaðir verði nokkrir vélbátar, sem séu upp að stærð þeirra skipa, sem samið hefur verið um smíði á í Svíþjóð.
Það er náttúrlega gefið mál, að sú umsköpun, sem þörf er á í íslenzkum sjávarútvegi, þarf að vera í aðalatriðum á þá leið, ef við ætlum að tileinka okkur þá tækni, sem kostur er á, að þau skip, sem yfirleitt verða notuð til að veiða á og til að koma aflanum á erlendan markað, verði stærri en þau, sem mest hafa verið notuð fram að þessum tíma. En þó að svo verði, þá er að minni hyggju nokkurn veginn gefið, að við þurfum enn um nokkuð langan tíma a. m. k. að notast við allmikið af smærri bátum. Því að fjöldinn allur af okkar verstöðvum er enn þá þannig á vegi staddur, að hafnarskilyrði leyfa ekki notkun stærri skipa. Áður en hægt er að nota stór fiskiskip á slíkum stöðvum víðs vegar um landið, þyrfti að gera þar mikil hafnarmannvirki, sem myndu kosta of fjár. Eru ekki líkur til, að slíkar framkvæmdir verði í allra næstu framtíð. Þess vegna er nokkurn veginn gefið, að í þeim verstöðvum verður enn um a. m. k. alllangan tíma að notast við tiltölulega smá skip til fiskveiða.
Hins vegar virðist líka vera fyrir hendi reynsla um það, að frá ýmsum stöðum hér á landi megi ná tiltölulega góðum árangri við fiskveiðar á mótorbátum af þeirri stærð, sem talað er um í þessu frv., sérstaklega af stærðum frá 30–40 smál. Segja má, að úr því að báturinn er kominn úr 25–30 smál. og upp í 50 smál., þá sé hann það fiskveiðatæki, sem má ná tiltölulega góðum árangri með við landróðra. Og frv. leggur sérstaka áherzlu á, að þeir bátar, sem smíðaðir yrðu, skuli vera af stærðunum frá 25–30 smál. Hins vegar taldi ég ekki rétt í sambandi við þessar ráðstafanir að útiloka að smíða minni báta en þetta. Því er einnig þannig háttað, að ýmsir, sem stundað hafa útgerð, hafa kannske ekki tök á að endurnýja báta sína, sem eru af óheppilegri stærð, á þann hátt að stækka þá svo mikið sem þyrfti. Væri ekki rétt að hindra með löggjöf, að þeir smáútgerðarmenn gætu einnig endurnýjað sína báta, þótt smáir væru.
Þá er einnig tilætlunin með þessu frv., að jafnframt því að gera ráðstafanir til þess að endurnýja landróðrarbátana eða fiskibáta af þessum stærðum, skuli stuðlað að því, að skipastöðvar á Íslandi fái nóg verkefni á næsta tíma. Það hefur nokkuð mikið verið rætt um þessar bátasmíðar hér undanfarið, og talið, að ekki væri kostur á að smíða skip í innlendum bátasmíðastöðvum með verði, sem væri samkeppnisfært við verð á bátum, sem keyptir eru erlendis frá. Og mér hefur skilizt, að af þessum ástæðum myndu skipasmíðastöðvar hér að líkindum gera mjög lítið af því að smíða skip og báta. Því er hugsanlegt, að þessar ráðstafanir mundu leiða til þess, að skipasmíðastöðvar, sem hér hafa starfað undanfarið, dragi saman seglin og starfi mjög lítið eða kannske ekki neitt, nema eitthvað sérstakt verði gert af hálfu hins opinbera. Allmikið hefur verið rætt um það, meðal annars hér á þingi, hvaða ráð væru tiltækilegust til þess að gera skipasmíðar og bátasmíðar hér innanlands samkeppnisfærar. Hefur þá einkum verið talað um að fella niður tolla af efni til bátasmíða og annað þess háttar; einnig að ríkið legði fram nokkurn fjárstyrk til smíði báta, þannig að hægt yrði að selja þá með samkeppnisfæru verði. Eins og ég benti á í grg. fyrir þessu frv. og komið hefur fram í þeim umr., sem orðið hafa um þetta, mundu ýmsir vafningar verða í sambandi við þetta og tormerki á að koma því þannig fyrir, að heppilegt væri og næði þeim tilgangi, sem til er ætlazt. Hins vegar tel ég, að betur yrði fyrir séð með því fyrirkomulagi, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., þ. e. að ríkisvaldið léti kaupa inn allt efni til bátasmíðanna og semdi síðan við skipasmíðastöðvarnar um framkvæmd verksins, sem yrði að öllu leyti unnið fyrir reikning ríkisins. Bátarnir síðan seldir, eins og gert er ráð fyrir í frv., með því verði, sem ekki væri lakara en ef keypt væri frá útlöndum. Þá sýnist mér þessu sé komið fyrir á þann einfaldasta hátt, sem hægt er. En niðurstaðan yrði sú, að bátarnir yrðu smíðaðir á þann ódýrasta hátt, sem hægt er hér á landi, en ef það samt sem áður yrði dýrara en kaupa þá erlendis frá, þá yrði sá mismunur jafnaður með styrk, sem ríkið veitti til þessara framkvæmda, sem væri um leið sá lægsti styrkur, sem hugsanlegt væri, að til þess yrði veittur. Ég geri ráð fyrir, að skiptar skoðanir kunni að vera um það, hvort heppilegra sé, að ríkisvaldið taki þetta verkefni á sig, eða að þessu verði háttað eins og verið hefur, að einstaklingar eða félög, sem hug hafa á því að láta smíða skip, annist sjálf innkaup á efni og smíði skipanna. En eins og ég hef þegar tekið fram, álít ég, að í fyrsta lagi sé mikil þörf á smíði allmargra báta af þeim stærðum, sem frv. fjallar um. Ég ætla, að vegna þess, hve miklum erfiðleikum það er bundið fyrir skipasmíðastöðvar hér að smíða báta með samkeppnisfæru verði, þá
verði mjög lítið af því gert, nema ríkissjóður skerist í leikinn. Að hinu leytinu álít ég líka, að með því að koma þessu fyrir á þann hátt, sem gert er ráð fyrir í frv., að allt sé á einni hendi, innkaup á öllu efni til báta og smíði þeirra líka, með samningum við skipasmíðastöðvarnar, þá hljóti að vera möguleikar til þess með þeim hætti að gera þetta ódýrara en ef það er gert í mörgu lagi af mörgum aðilum. Einmitt líka vegna þess, hve sú ríkisstj., sem nú situr við völd, hefur í stefnuskrá sinni lagt mikla áherzlu á nýsköpun sjávarútvegsins, þá sé ég ástæðu til að líta svo á, að þetta mál sé ríkisvaldinu engan veginn óviðkomandi og ekki fjarri lagi, að það hafi af því nokkur afskipti. Og án þess að ég hafi að svo komnu máli rætt þetta við hæstv. ríkisstj. —ég hef að vísu rætt lítils háttar við hæstv. atvmrh. án frekari viðræðna við hæstv. ríkisstj. — vildi ég mega vænta þess, að hún vildi sinna þessu máli nokkuð og ef til vill styðja að því, að það gengi fram í einhverri mynd. Að sjálfsögðu er ég reiðubúinn til þess að ræða um allar þær breyt., sem kynni að verða talið heppilegt að gera á þessu frv., en hinu vildi ég mega eiga von á, að hér í hv. Alþ. og hjá hæstv. ríkisstj. mundi verða nokkur áhugi fyrir því, að tilgangi frv. yrði náð á einhvern hátt.
Eins og ég drep á hér í grg. frv., þá er eins og sakir standa nú ekki hægt að gefa neinar ábyggilegar eða nákvæmar upplýsingar um það, hversu mikil útgjöld fyrir ríkissjóð kynni að leiða af framkvæmd þessa frv. Það er ekki hægt, vegna þess að í fyrsta lagi liggur ekki fyrir, hve dýr verður hver smálest í hinum svokölluðu Svíþjóðarskipum, en við það er í frv. miðað væntanlegt söluverð bátanna, og hins vegar er ekki hægt að segja alveg fyrir víst um það, hve dýr yrði hver smálest í þessa báta hjá innlendum skipasmíðastöðvum. Það hafa að vísu verið fengnar nokkrar upplýsingar um það, hvað það myndi kosta, og var í þeim upplýsingum talið, að kostnaðurinn af að smíða hverja smálest í skipum yfir 80 smálestir mundi verða 10 þús. kr. í Reykjavík, en 8 þús. á Akureyri hjá skipasmíðastöð KEA, og í þeim upplýsingum, sem þaðan bárust, var tekið fram, að sú kostnaðaráætlun væri miðuð við skip af þessari stærð, sem ég nefndi áðan, sem sé 80 smálestir og með hvalbaki, en smálestin í smærri bátunum, þar sem yfirbyggingin er miklu minni og ódýrari, mundi þá einnig vera nokkru ódýrari, a. m. k. ekki yfir 7 þús. kr. smálestin.
Ég hef gizkað á það hér í grg., að tæplega mundi geta orðið meiri verðmunur á smíði þessara báta hér innanlands miðað við kaup sænskra skipa en sem næmi 1 þús. kr. á smálest. Ef reiknað væri með, að stærð þessara báta, sem hér er talað um, væri að meðaltali 35 smálestir, þá yrði samanlögð smálestatala þeirra um 1750, og ef sú ágizkun, sem gerð er um verð þeirra, stæðist, mundu útgjöld ríkisins vegna þess geta orðið um 1½ til 1¾ millj. kr. Það má að vísu segja, að það sé nokkur upphæð, en þar sem um svo þýðingarmikla atvinnugrein er að ræða sem þessa, finnst mér þó ekki ástæða til að láta sér vaxa það mjög í augum. Þar að auki vildi ég mega vona, að komið gæti til mála, ef sá háttur er hafður á, sem frv. gerir ráð fyrir, að náðst geti betri árangur en þetta og smíði bátanna yrði ódýrari en verið hefur á skipasmíðastöðvunum áður og það fé, sem ríkið þyrfti að leggja fram í þessu skyni, yrði því minna. Það er sem sagt ekki hægt að segja með neinni nákvæmni, en mér finnst hins vegar, að sú fjárkvöð, sem ríkið tæki á sig með samþykkt þessa frv., sé ekki svo stórkostleg, að ástæða sé til að láta sér vaxa það sérstaklega í augum.
Ég held, að ekki sé ástæða til að fjölyrða öllu meira um frv. Málið er í fyrsta lagi ekki sérstaklega flókið, og einnig hef ég í grg. gert nokkra grein fyrir aðalatriðum málsins, og mun því láta þetta nægja a. m. k. að sinni. En ég vænti þess, að málið fái nokkurn byr, hvort sem því kann að verða breytt í meðferð eða ekki, og áhugi komi fram fyrir því að ná þeim höfuðtilgangi, sem frv. felur í sér, að skipatala okkar af þeirri stærð, sem hér fjallar um, verði aukin allverulega á þessu og næsta ári og að skipasmíðastöðvunum, sem ég óttast, að standi að verulegu leyti aðgerðalausar, ef ekki eru gerðar opinberar ráðstafanir, verði fengið nokkurt verkefni í hendur til þess einnig að auka atvinnuna í landinu og sérstaklega þeirra tiltölulega mörgu skipasmiða, sem við þær hafa starfað á undanförnum árum.