16.01.1945
Efri deild: 103. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í C-deild Alþingistíðinda. (3820)

248. mál, alþýðutryggingar

Flm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er ekki stórvægilegt. Það er aðeins ein breyt., sem gerð er á alþýðutryggingal. frá 1937, og hún er sú, að starfsmenn Búnaðarbanka Íslands fái að njóta sömu réttinda og starfsmenn annarra banka landsins, að vera lausir við greiðslu í Lífeyrissjóð Íslands, þar sem þeir hafa nú komið upp mjög myndarlegum sjóði, sem er meira en 100 þúsund krónur, og vilja hafa sams konar reglur fyrir sig og starfsmannasamband sitt og starfsmenn Landsbanka Íslands. Frv. er í raun og veru lítið meira en leiðrétting við það, sem áður hefur verið, þó að ekki hafi verið hægt að taka það upp áður, vegna þess að ekki hafði verið lokið við stofnun þessa sjóðs.

Ég þarf svo ekki að hafa um þetta fleiri orð, en óska þess, að frv. verði vísað til 2, umr.