13.02.1945
Efri deild: 126. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1403 í B-deild Alþingistíðinda. (3830)

264. mál, húsaleiga

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Frv. það, sem hér liggur fyrir, hefur verið athugað í allshn., en þó er þess að geta, að þegar málið var tekið til meðferðar, sem var á tveimur fundum, voru tveir hv. nm. fjarstaddir, þeir hv. 1. þm. Eyf. og hv. þm. Seyðf.

Nefndin hefur athugað frv. og borið það saman við gildandi l. um húsaleigu, og vill n. að þeirri athugun lokinni eftir atvikum mæla með því, að frv. verði samþ., aðallega vegna þess, að ef frv. verður ekki samþ., má segja, að ríkið sé í raun og veru verr sett en einstaklingar myndu vera, vegna þess að þeir sem einstaklingar hafa uppsagnarfríðindi eftir húsaleigul., sem ekki eru talin eiga við með sama hætti um ríkið, þar sem þær uppsagnir eru miðaðar við skyldleikasamband. En n. virðist, að það væri eðlilegra, að slíkt persónu- og skyldleikasamband gæti ekki komið til greina um ríkið sjálft.

Og þar sem frv. fer þannig í raun og veru í þá átt að jafna um þetta í þessu efni, þá vill n. mæla með því, að frv. nái fram að ganga.