09.03.1944
Efri deild: 26. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í B-deild Alþingistíðinda. (385)
40. mál, nýbygging fiskiskipa
Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Ég skal ekki halda hér langa ræðu að þessu sinni. Það er þegar búið að ræða þetta mál nokkuð. Ég lýsti yfir því við 2. umr. þessa máls, að yrði till. frá minni hl. sjútvn. felld, þá mundi ég koma fram með víðtækar brtt. við 3. umr.
Fyrsta brtt, mín er við 1. gr., að hún orðist þannig:
„Fé því, sem veitt er úr framkvæmdasjóði ríkisins til smíði fiskiskipa samkv. XX. lið 22. gr. fjárlaga fyrir árið 1944, skal ríkisstjórnin verja til þess að kaupa fyrir ný fiskiskip til landsins svo fljótt sem auðið er, eftir að fengizt hafa hagkvæm kauptilboð, eða verja því til að smíða ný skip innan lands, allt í samráði við Fiskifélag Íslands. Skal ríkissjóður síðan selja þau skip, er hann þannig kaupir eða lætur smíða, til landsmanna, að fengnum tillögum Fiskifélags Íslands, með þeim lánskjörum, sem um getur í lögum nr. 110 9. okt. 1941, um fiskveiðasjóð Íslands, ásamt þeim breytingum, sem gerðar eru á þeim lögum með lögum nr. 33 2. apríl 1943.“
Ég tel, að þessi brtt., sem er meginbrtt. mín, nái því, sem til er ætlazt með því að ákveða, að 5 millj. kr. skuli verja úr framkvæmdasjóði ríkisins til þess að kaupa skip til landsins. Ef þessi brtt. nær samþykki, þá flyt ég ekki aðrar brtt., og vænti ég þess, að hv. dm. fylki sér utan um þessa lausn, því að hún er sú eina, sem Alþ. getur raunverulega verið þekkt fyrir að standa að á þessu stigi málsins.
Bregðist þetta, þá er samt ógerningur, að frv. verði samþ. óbreytt, og þá leyfi ég mér að flytja brtt. til vara. Kemur þá fyrst brtt. við 3. gr., 2. málsgr., að gr. orðist þannig:
„Þar til öðruvísi verður ákveðið með lögum, veitir mþn. í sjávarútvegsmálum, kosin samkv. ályktun Alþ. 9. febr. 1943, styrk eða vaxtalaust lán.“
Ég tel það einmitt til stórbóta, að sú n., sem falið hefur verið að athuga allt þetta mál, — og hv. atvmrh. upplýsti, að frv. væri byggt á niðurstöðum hennar, — að einmitt hún ráði því, hvað mikið verður veitt af þessu fé sem styrkir og hvað mikið sem lán, en þetta heyri ekki undir atvmrn. á hverjum tíma. Eins og ég hef áður tekið fram, þá er þetta ekki vegna þess, að ég vantreysti núv. atvmrh. neitt sérstaklega til þess að hafa umsjón með þessu, frekar en t.d. öðrum ráðh. af hans flokki, — en hins vegar er það ekki mín persónulega ósk, að hann verði svo lengi ráðh. sem búast má við, að lög þessi gildi, — heldur er það af hinu, að ég tel það algerlega óverjandi að gefa fylgislausum ráðh. það vald að úthluta eftir eigin geðþótta 5 millj. kr.
Enn fremur er brtt. við 5 gr. Þessi gr. er ekki ljóslega orðuð, og má frekar skilja hana svo, að ekki megi lána nema 100 þús. kr. samanlagt bæði úr þessum sjóði og öðrum sjóðum út á eitt og sama skipið. Því verður brtt. við 5. gr. þannig, að í stað orðanna „þó aldrei hærra en 100 þús. kr.“ í 2. málsgr. komi: „enda verði eigi veitt meira en 100 þús. kr. út á hvert skip gegn 2. og 3. veðrétti.“
Þá vil ég enn fremur bera fram brtt. við 6. gr., og kveður hún á um það, að 1. mgr. þeirrar gr. falli niður, en gr. hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Sala á bát, sem styrk hefur hlotið eða vaxtalaust lán samkvæmt l. þessum, er óheimil, nema atvinnumálaráðuneytið hafi ritað samþykki sitt á afsalið og jafnframt ákveðið, hvort styrkurinn eða lánið eða hluti þar af skuli endurgreiðast.“
Ég tel enga sérstaka ástæðu til þess að hafa þetta ákvæði út af fyrir sig í l. og vil meðal annars benda á, að ef til þess kæmi, að bæjarfélagið, hvort heldur í Reykjavík eða annars staðar, kynni að kaupa svo mikið af þessum bátum, þá er spursmálið, hvort þau geti selt þessa báta eða skip aftur, nema því aðeins að endurgreiða allan styrkinn, þannig að þau geti ekki framselt þessi réttindi til hinna nýju kaupenda. En það mun hafa í för með sér, að bæjarfélögin mundu tæplega fást til þess að auka við fiskiflotann nema hafa fyrst tryggingu fyrir því, að þessu lagaákvæði yrði ekki beitt. Það er því sjálfsagt að afnema þetta ákvæði strax, svo að ekki verði hægt að beita því.
Þá legg ég og til, að 7. gr. verði felld í burtu. en gr. þessi fjallar um, að hafi skipi eigi verið haldið úti til fiskflutninga, fiskveiða eða það hafi verið tekið til annarra afnota meira en sex mánuði. skuli ráðun. hafa heimild til að krefjast að fullu endurgreiðslu á veittum styrk. Það þarf ekki annað en skip verði óstarfhæft af óviðráðanlegum orsökum, vél í því bili eða það strandi og væri í viðgerð meira en sex mánuði til þess að missa við það öll réttindi til styrks og ráðun. fengi rétt til þess að mega krefja hann aftur. Mér finnst mjög óviðeigandi, að slíkt standi í l., að nokkuð ráðun. hafi eins víðtækt vald og því er gefið hér á þessu sviði.
Hið sama er að segja um 8. gr., að ég legg til, að hún verði felld niður. Þessi gr. mælir svo um, að styrk eða lán skuli ekki greiða fyrr en fiskibáturinn er fullbúinn. Þetta eru miklu harðari kjör en sett voru um sams konar réttindi í fyrra, því að þá var ætlazt til, að greiðsla færi fram í þrjú skipti, a.m.k. ef skip væri smíðað hér innan lands. Fyrsta greiðsla skyldi fara fram, þegar kjölur væri lagður, önnur, þegar skipið væri tilbúið til að taka inn vélina, og hin þriðja, er skipið væri fullbúið. Samkvæmt þessum l. verður viðkomandi hins vegar að hafa tryggt sér annaðhvort allt féð eða lán út á þennan styrk, sem svo oft kann að bregðast. Þess vegna vil ég, að þessi gr. verði felld niður. Um hana má svo setja reglugerðarákvæði, ef ríkisstj. þykir ástæða til, og finnst mér sami grundvöllur mætti vera þar og er í hliðstæðum l. um Fiskveiðasjóð Íslands.
Þá ber ég einnig fram brtt. við 9. gr. um það, að Fiskveiðasjóður Íslands skuli sjá um útgáfu skuldabréfa fyrir lánum og taka við greiðslu afborgana. Það er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt, að þetta sé allt undir þessari sömu stofnun, þar sem Fiskveiðasjóðurinn á að gera árlega skil fyrir innheimtum afborgunum og hefur eftirlit með öllum skuldum, sem kynnu að hvíla á þessu fyrirtæki.
Að síðustu ber ég fram þá brtt. við 12. gr., að sú gr. verði felld í burtu. Hún kveður á um, að ýmis ákvæði þessara l. skuli gilda fyrir allt önnur l. Þar með er þrengt mjög mikið kosti þeirra manna, sem gætu fengið lán úr Fiskveiðasjóði Íslands, ef þeir mættu taka þau samkv. þeim ákvæðum, sem þau l. kveða á um. Með þessu eru lánin því gerð miklu óaðgengilegri en þau eru nú í þeim l. Ef ástæða er til að breyta þeim ákvæðum, finnst mér eðlilegast, að það sé gert með hreinum lagabreyt. á þeim l., og gæti þá komið til greina að breyta ýmsum öðrum ákvæðum að fenginni reynslu, eftir að þau hafa staðið í svo og svo langan tíma.
Ég sé nú ekki ástæðu til að ræða frekar um þetta, þar sem ég hef þegar lýst till. mínum, og leyfi mér hér með að afhenda þær forseta. Ég vil taka það fram, að verði 1. gr. samþ., verða allar hinar teknar aftur. Að öðrum kosti óska ég eftir, að till. verði bornar upp í þeirri röð, sem þær liggja fyrir.