18.01.1945
Neðri deild: 108. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1409 í B-deild Alþingistíðinda. (3850)

227. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. — Þetta frv. er í fyrsta lagi um það að veita ríkisábyrgð fyrir allt að 750 þús. kr. láni fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi til viðgerðar á m/s Laxfossi. Annað atriðið er um að breyta varasjóði félagsins í hlutafé og félagið þurfi ekki að greiða tekjuskatt vegna þeirrar breytingar. Og í þriðja lagi, að ríkissjóður leggi fram viðbótarhlutafé, allt að 150 þús. kr., til fyrirtækisins. Fjhn. hefur haft þetta frv. til athugunar, en eigi orðið sammála um það. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ., þó með þeirri breyt., að niður verði felld úr 2. gr. frv. heimild félagsins til þess að breyta varasjóði sínum í hlutafé. Fékk n. umsögn fjmrn. um þetta atriði, og leggur það á móti þessu ákvæði.

Meiri hl. álítur enga áhættu því samfara að veita þessa ríkisábyrgð gegn 1. veðrétti í skipinu, og að því er snertir viðbótarhlutaféð er hann einnig samþykkur ákvæði frv.

Með l. frá 9. jan. 1935 var ákveðið, að ríkið legði fram 1/3 hlutafjár til fyrirtækisins, og er gert ráð fyrir, að það hlutfall haldist.

Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en vísa til nefndarálitsins.