18.01.1945
Neðri deild: 108. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1409 í B-deild Alþingistíðinda. (3852)
227. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi
Bjarni Ásgeirsson:
Ég get þakkað hv. meiri hl. fjhn. fyrir till. sína, þótt ég hefði heldur kosið, að frv. væri samþ. óbreytt. En þótt ég hefði óskað þess frekar, mun ég samt sætta mig við þá afgreiðslu hv. n., og er ég þakklátur fyrir hennar till. í heild.
Ég get ekki látið hjá líða að minnast ofur lítið á nokkrar athugasemdir, sem koma fram í nál. minni hl., hv. þm. A.-Húnv. Þar er lagt til, að frv. verði fellt. Mér finnst aths. hv. minni hl. ekki alls kostar réttar eða sanngjarnar og því siður veigamiklar ástæður, sem hann færir fram gegn samþykkt frv. Fyrst og fremst hneykslast hv. þm. A.-Húnv. á því mjög mikið, að ríkið skuli vera meðeigandi í hlutafélagi, sem hefur stjórn uppi í Borgarfirði, — jafnvirðuleg stofnun og ríkið skuli blanda blóði við menn, sem hafa aðsetur uppi í Borgarfirði. Mér þykir þetta undarlegt, því að mér virðist Borgfirðingar ekki vera lakari menn en aðrir hér á landi. Ég vona, að hv. þm. A.-Húnv. sé ekki orðinn svo gegnsósaður af tilfinningunni fyrir því, að Reykjavík sé eini staðurinn á landinu, sem nokkurs eigi að meta, þó að hann sé búinn að sitja nokkuð lengi á Alþ., og út fyrir Reykjavík megi ekki fara með fyrirtæki, sem ríkið tekur þátt í. Hv. þm. talar um, að það eigi ekki að láta þetta fyrirtæki ráða yfir fjölförnustu samgönguleið landsins. Vitanlega ræður þetta fyrirtæki ekki yfir samgönguleiðum landsins. Þetta fyrirtæki verður að beygja sig undir þær ákvarðanir, sem ríkið og þeir aðilar, sem með það hafa að gera, setja um fólksflutninginn á þeirri leið. Þeir menn, sem þetta fyrirtæki eiga, ráða ekki yfir því, hvort fólksflutningarnir fara frá og til Reykjavikur um Akranes eða Borgarnes. Og eins og mér skilst, að meiri hluti fólksflutninganna sé um Akranes, verða þeir að beygja sig fyrir því að flytja fólkið þannig sem það vill fara, eins og hv. þm. A.-Húnv. álítur að eigi að gera. En fyrirtækið gerir ekki annað en að fara þessar áætlunarferðir, sem ríkið segir því að fara samkvæmt ákvörðun frá þeim aðilum, sem þar ráða, um hvaða leiðir aðalfólksflutningarnir fara.
Þá sagði hv. þm. A.-Húnv., að af þessu félagi sé ekki svo góð reynsla, að ástæða sé til þess að veita því mikið fé. Ég veit ekki, hvað hv. þm. á við með því, nema ef það skyldi vera, að Laxfoss strandaði. Ég veit ekki til, að hægt sé að kenna fyrirtækinu um það. Ég veit ekki til þess, að nein stjórn skipaútgerðar geti tekið ábyrgð á því, að skip geti alls ekki strandað, og ég held, að öllum beri saman um það, sem ferðazt hafa með þessu skipi, að það sé það bezta skip, sem hafi þekkzt á þessari siglingaleið. Öllum, sem ferðazt hafa fyrr og síðar með skipum á þessari leið og þekkja þann skipakost, sem þar hefur verið völ á, ber saman um það, að þetta hafi verið bezta skipið. Ég veit ekki til þess, að kvartað hafi verið undan fyrirtækinu. Hitt er svo annað mál, að margur hefur um sárt að binda út af Laxfossstrandinu í fyrra.
Þá talar hv. þm. A.-Húnv. um það, að það sé mesta óráð að ætla að fara að endurbyggja flak, sem búið sé að liggja í sjó og fjöru í nær 2 ár. Það var ekki fullt ár liðið frá strandinu, þegar var byrjað að endurbyggja Laxfoss, og smiðir þeir, sem tekið hafa að sér endurbyggingu Laxfoss, segja, að þeir hafi aldrei gert við betra og sterkara skip, — aldrei fengið vandaðri skipsskrokk í alla staði til endurbyggingar en þetta skip. Svo að ég held, að engin hætta sé á því, að ekki megi fá sæmilega gott skip úr Laxfossi, þó að hann sé búinn að liggja í sjó og fjöru um ár eftir að tókst að ná honum út af strandstaðnum. Annars var það ekki ósk félagsins, að Laxfoss lægi svo lengi. Það voru aðrir aðilar, sem þar réðu, vátryggingarfélagið og björgunarfélagið, sem eiga sök á því, ef um sök er að ræða. En það er fyrirtækið, sem vill sjá um, að skipið liggi ekki þarna lengur, vegna þess að þær samgöngur, sem hafa verið þann tíma síðan, hafa verið algerlega ófullnægjandi þeim, sem hlut eiga að máli. Þar að auki hefur það sýnt sig, að þær ferðir hafa orðið ríkissjóði svo dýrar, að þetta fé, sem ríkið leggur félaginu til, til þess að endurbyggja skipið, ef þetta verður samþ., verður ekki nema smáræði hjá því, sem ríkið yrði að eyða árlega til þess að halda við þessum flutningum. sem hv. þm. A.-Húnv. vill nú helzt, að ríkið annist. Ég skal geta þess, að það er langt frá því, að þessum mönnum, sem að þessu standa, sé það sérstakt keppikefli að annast þessar samgöngur milli Reykjavíkur og Akraness og Borgarness, ef ríkið vildi taka þær að sér, en það hefur sýnt sig, að ríkið hefur ekki haft tök á því að leggja í þessar ferðir þann skipakost, sem þurfti, og ekki útlit fyrir það. En ég er sannfærður um það, að strax og ríkið óskar eftir að taka að sér þessar samgöngur, er félagið fúst til þess að láta af hendi þetta skip til ríkisins til samgangna annars staðar á landinu, þannig að það er aðeins nauðsyn, sem hefur knúð eigendur skipsins til þess að leggja aftur fram það fé, sem fengizt hefur með rekstri þess, að leggja allt það í áhættu aftur, til þess að fá betri samgöngur á þessari leið. Og ég held, að þeir ættu frekar þakkir skilið fyrir það heldur en ávítur. Og þótt að vísu mikið af samgöngum um Norður- og Vesturland liggi um þessa leið og ríkið hafi þar af leiðandi mikilla hagsmuna að gæta með þessar samgöngur, þá verður þess að gæta líka, að héruðin, sem þar næst liggja, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla og Snæfells- og Hnappadalssýsla, eigi þó mest undir því, hvernig þessar samgöngur eru, því að þetta eru héraðssamgöngur við þessi héruð, sem mjög mikið veltur á um alla afkomu þeirra héraða, að þessar ferðir fari vel úr hendi. Og það eru vitanlega þau héruð, sem finna bezt, hvar skórinn kreppir, og þess vegna hafa þau riðið á vaðið um þau mál.
Ég veit, að það hefði e.t.v. verið réttara fyrir þessa menn, sem áttu fé í þessu fyrirtæki, að taka þessa peninga og skipta þeim á milli sín, en þeir hafa nú lagt í það að leggja fé sitt fram á ný til þess að bæta úr þessum samgöngum. Ég hef ekki talað við nema einn af þeim hluthöfum í þessu fyrirtæki, sem er á móti þessu máli og lítur sömu augum á málið og hv. þm. A.-Húnv., en það er Vigfús Guðmundsson, og ég get verið hv. þm. A.-Húnv. þakklátur fyrir það, að hann vill láta sjónarmið þessa manns einnig koma fram hér á Alþingi.