18.01.1945
Neðri deild: 108. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (3856)
227. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi
Sigurður Kristjánsson:
Ég get ekki tekið undir það, að það sé mikil fjárhagsleg áhætta við þessar ferðir á milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness, ef til þeirra er stofnað með skynsamlegum ráðum, með heppilegum skipakosti og þær reknar með hyggindum og forsjá. Styðst ég þar við reynslu af þessum ferðum og þann sjálfsagða og eðlilega gang svona mála, þá eðlilegu afkomu, sem fyrirtæki, sem byggt er á svona grundvelli, á að hafa. Þegar félagið var stofnað og komið hér til Alþ. með beiðni um fjárframlag ríkissjóðs, þá taldi ég, að það væri öldungis óþarft, að ríkið legði nokkurt fé í þetta, sökum þess að ef ferðir á nokkurri siglingaleið við Ísland ættu að bera sig fjárhagslega, þá ættu þær að gera það á þessari leið. Það er allt öðru máli að gegna um slíkt á afskekktum stöðum, þar sem flutningar fólks og farma eru litlir, heldur en á þessari leið, þegar til þess var stofnað að byggja þetta skip. Þá var þetta fjölfarnasta leið við strendur Íslands og sýnilegt, að ef straumurinn lenti ekki á öðrum leiðum, svo sem fyrir Hvalfjörð, þá mundi verkefni þessa skips verða svo mikið, að einstakt sleifarlag yrði að vera á rekstri þess, ef hann bæri sig ekki. Þetta kom líka fram, því að nokkrum árum eftir að skipið var tekið til starfa, þá kom félagið með þá beiðni til ríkisins, að það mætti endurgreiða það fé, sem ríkið lagði fram, og eiga skipið eitt. Og ég man eftir því, að ég var þessu fylgjandi hér í fjvn., og skil enn raunar ekki í því, hvernig á því stóð, að þetta hefur dregizt úr hömlu. Mér fannst sjálfsagt, fyrst félagið hafði rekið þetta fyrirtæki með hagsýni, svo að það hafði gefið arð, að það tæki fyrirtækið að sér í framtíðinni. Og ég held, að þótt við því megi búast, að ferðir aukist á landi, þá verði flutningur fólks og farma á þessari leið fyrst um sinn svo mikill, að það hlyti að vera mjög lélega á haldið, ef það ætti að vera rekið með fjárhagslegu tapi. Þetta vildi ég segja um líkurnar fyrir því, að ríkið þurfi að hlaupa þarna undir bagga. Ég er á þeirri skoðun, eins og í upphafi, að þess sé engin þörf, vegna þess að gera megi ráð fyrir því. ef skynsamlega er á haldið, að það megi láta þessar ferðir bera sig vel. Og það dugar ekki í því sambandi að vitna í þau töp, sem verið hafa nú upp á síðkastið á þessum flutningum, því að það er vitað, að Skipaútgerð ríkisins varð að hlaupa inn í þessar ferðir undirbúningslaust, þegar Laxfoss strandaði, og hafði ekki tækifæri til þess að láta smíða skip, heldur hefur orðið að sæta sínum koppnum í hverjum mánuði. Og þess vegna hefur þetta gengið mjög á tréfótum. En við það ástand má ekki miða, að í framtíðinni þurfi reksturinn að vera neitt svipaður því.
En ég vil segja, að þrátt fyrir þessa vissu um, að hægt sé að láta þessar ferðir bera sig, þá er ég algerlega mótfallinn því, að ríkið fari að láta bendla sig við það að klessa eitthvað í þennan Laxfoss fyrir eitthvað á 2. millj. kr. og verða viðriðið rekstur á slíku skipi. Mig undrar þess vegna, að hv. fjvn. skuli hafa gleypt þetta svona hrátt. Um þetta skip er það að segja, að þeir, sem farið hafa með því, geta ekki sagt, að það sé gott. Og það fór svo óburðuglega í sjó, þegar ég fór á því á milli, að ég var alveg í vafa um, hvort það væri byggt til þess, að kjölurinn sneri upp eða niður. (BÁ: Það hefur alltaf farið prýðilega í sjó, þegar ég hef verið með því.) Það getur verið. að það hafi verið svo hrifið af því að vera með hv. þm. Mýr. innanborðs, að það hafi haft einhver áhrif. En ég sá vanalega koma föl og þjáningarbitin andlit upp úr þessum koppi. — En það er ekkert atriði í þessu máli, því að ég geri ráð fyrir því, að það verði ekki látið skipta máli hér. vegna þess að ef ríkið skerst úr leik, þá verður það nú félagið, sem lappar upp á þetta skip. Svo að við, sem þurfum að nota skip á þessari leið, fáum að velkjast með þessum koppi í framtíðinni.
En ég vildi benda á nokkur atriði viðvíkjandi hinni fjárhagslegu hlið þessa máls. Skipið var tryggt fyrir 300 þús. kr., þegar það fórst. Ég býst við, að það hafi verið lágt tryggt. En hvað sem því líður, þá vildi ekki tryggingarfélagið, sem tryggði skipið, eiga það, eftir að það strandaði. Upphaflega krafan fyrir björgun þess var 389.433 kr. Þetta var upphafleg krafa þeirra, sem björguðu, en þeir stóðu svo ekki á til langframa. En félagið, sem tryggði, vildi ekki greiða þessa fjárhæð og eiga flakið. Og það urðu síðar þeir samningar, að þeir, sem björguðu, sættu sig við að taka flakið upp í sína fyrirhöfn og borga 26 þús. kr. Útgjöld tryggingarfélagsins urðu þannig 270–280 þús. kr. — Nú kom til tals að láta gera við skipið hér á landi, ef tryggingarfélagið hefði látið gera við það sjálft. En innlenda tilboðið var. 997.600 kr., eða rétt um ein millj. kr. En sendimaður félagsins hér lét í ljós, hvort sem það hefur verið rétt eða ekki, að hann mundi geta látið flytja skipið til Englands og gera við það þar fyrir á milli þriðjungs og helmings þessarar upphæðar. En hann taldi samt ekki, að félagið gæti lagt í slíkt.
Nú sýnist mér það vera alveg óskaplegt, ef fara á að gera þetta skip hér upp fyrir hátt á aðra millj. kr. Ég get ekki gengið inn á, að ríkið verði við slíkt riðið, þrátt fyrir það að ég er þeirrar skoðunar, að rekstur skips, sem kostar hæfilega mikið, mundi geta borið sig í þessum ferðum. Ég held, að það verði til þess, að þessar ferðir beri sig ekki, ef lagt verður í að kosta svona dýrt skip til þeirra. Og mér virðist það líka óeðlilegur kostnaður, ef viðgerð skipsins á að kosta talsvert hátt á aðra millj. kr. Það er sýnilegt, að í þessu flaki liggur aldrei meira verðmæti en hæsta krafa. sem gerð var fyrir björgunina. Það getur aldrei legið meira í því heldur en 300 til 400 þús. kr. Og aðgerðin á þá, að mér skilst, að kosta um 11/2 millj. kr. Og ég vil engan hlut eiga að því, að ríkissjóður leggi út í slíkt, því að mér finnst það hið mesta óráð.