18.01.1945
Neðri deild: 108. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (3857)

227. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi

Gísli Sveinsson:

Herra forseti. — Ég hafði ekki búizt við, að slíkar umr. og nú er raun á orðin yrðu um þetta mál, þar sem að sumu leyti varla er tilefni til þess í þeim gögnum, sem fyrir liggja. Á ég þar í fyrsta lagi við nál. og ummæli hv. minni hl. n., sem vill láta fella frv. með þeim röksemdum, sem hann hefur nú gefið til kynna, hv. þm. A.Húnv., á þskj. 876. Ég tel, satt að segja, að þær röksemdir nái ekki nokkurri átt, því að mörgu óviðkomandi málinu er þar áreiðanlega blandað inn í og að sumu leyti, að því er séð verður frá almennu sjónarmiði, alveg út í hött. Veit ég ekki, hvað til hefur komið, að svo glöggur maður eins og hv. þm. A.-Húnv. hefur farið þessu fram til þess að reyna að koma þessu máli fyrir kattarnef. Hitt er betur skiljanlegt, sem hv. 7. þm. Reykv. færir fram, þó að það í raun og veru geti ekki hnekkt því, sem áreiðanlegar og glöggar röksemdir eru fyrir, að frv., eins og það verður eftir till. meiri hl. fjhn., eigi fram að ganga.

Þetta mál hefur legið fyrir samgmn. Alþ., og það má segja, að á sumum tímum hafi þetta málefni verið hryggðarbarn samgmn., farkostir og samgöngur á Faxaflóa. Ekki kemur það til af því, að þessar samgöngur virðast liggja beinast og bezt við, til þess að þær ættu að vera í góðu lagi, bæði að því er snertir uppihald viðskiptanna og líka fjárhagslega undirstöðu og afkomu rekstrarins á þessum samgöngum. En ýmis óhöpp hafa orðið í þessum samgöngum, þó að þeim hafi þótt sæmilega borgið á vissum tímum. Meðal óhappa má telja það ósamkomulag, sem hefur komið fram í samkeppni á milli Akraness og Borgarness í þessum efnum, og það hefur verið verst við að eiga. Því að hefði svo verið frá upphafi, að þessir staðir tækju höndum saman, eins og samvinnun. samgöngumála hefur viljað, og verið sér sameiginlega úti um sína farkosti, hvort sem þeir væru einn eða fleiri, mundi ríkið standast betur við að styrkja þessar samgöngur, sem það getur ekki skorazt undan. Því að svo er mál vaxið, að Faxaflói er ekki undanskilinn því, að ríkið verði að hafa hönd í bagga um, að sæmilegar samgöngur haldist þar uppi. — Nú hefur það gengið svo á undanförnum árum, — og má segja, að nóg sé að vitna í það, sem gert hefur verið síðan Laxfoss strandaði, — að Skipaútgerð ríkisins hefur stuðlað að því, að samgöngur héldust uppi á þessum stöðum. En að sumu leyti var þetta gripið út úr höndum útgerðarinnar af Akranesi og Borgarnesi. Eftir að Laxfoss strandaði, kom öllum saman um, að það þyrfti að sjá fyrir samgöngum á þessu svæði með sérstökum hætti og nýjum. Þá tókst Skipaútgerð ríkisins, eins og þetta lá fyrir, að útvega farkosti, og það fleiri en einn, þó að í smáum stíl væri öðrum þræði, til þess að annast samgöngurnar, og fékk til þess bát, sem fékk gott orð, eftir því sem vænta mátti og tök voru á, mb. Víði. En þegar til kom. var Akranes ekki ánægt með þetta. En í staðinn fyrir að hafa samvinnu við Borgarnes og Skipaútgerðina, fékk það mb. Sigríði til að hafa í förum.

En nú er þessu lokið. Nú er að renna upp nýtt tímabil í sögu þessara mála, því að nú hafa allir þessir viðkomandi aðilar gert samning sín á milli, fyrir forgöngu samvinnun. samgöngumála, um það, að h/f Skallagrímur skuldbindi sig til þess að halda uppi samgöngum milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness á fullnægjandi hátt, –þannig að Akranes hefur sætt sig við þetta, — með mb. Víði og fleiri farkostum. Og þegar Laxfoss er kominn í lag og á yfirborð sjávar, er samkomulag um, að hann annist þessar ferðir.

Hv. 7. þm. Reykv. virtist aðallega leggja áherzlu á það, að þessu félagi væri ekki vorkunn að láta reksturinn bera sig á flutningum á þessum leiðum. Og það er einmitt það, sem til stendur, eins og áður var með Laxfoss. Og þó að þessi mikla viðgerð eigi sér stað á skipinu og kostnaður við hana, á rekstur skipsins að bera sig fjárhagslega, án þess að ríkið þurfi að leggja til neinn rekstrarkostnað. Hér er því ekki verið að ræða um að styrkja þessa útgerð né þetta félag til rekstrar á þessu skipi, heldur hitt, hvort ríkið á að hjálpa til nú, eins og það hefur áður gert á fleiri stöðum en einum, með því að koma þessum samgöngum af stað og í horf. Það er það, sem um er að ræða. Og það er ekki neitt nýtt, því að til þessara samgangna hefur ríkið veitt stuðning áður. Og hér er snúizt við á sama hátt og í sama hlutfalli með aðstoð. Og ég tel ekki, að hv. 7. þm. Reykv. hafi ætlað sér að berjast á móti því. að ábyrgð ríkissjóðs sé leyfð á þessu láni, sem þetta fyrirtæki þarf að afla sér til þess að koma þessu öllu í horf. Mér skilst, að það sé ekki það, sem hv. þm. sé að fetta fingur út í. Því að hv. 7. þm. Reykv. veit, að ríkisábyrgð þarf að fá í þessu tilfelli, eins og mörgum öðrum, í fyrsta lagi vegna þess. að þetta eru framkvæmdir, sem einstaklingum er ofvaxið að ráðast í, og í öðru lagi vegna lánakjara, þegar taka þarf stór lán. Og hann veit, að það er ekki neitt nýtt, að ríkið þurfi að styrkja á þennan hátt jafnvel efnaða menn og félög til þess að leggja í eitthvað í upphafi framkvæmdanna. Og þeim mönnum, sem vilja koma öllum þessum samgöngum á ríkið, ætti ekki að þykja undarlegt, þótt ríkið gangi í þessa ábyrgð, svo sem hv. þm. A.-Húnv., og skal ég ekki deila á hann fyrir það.

Hv. 7. þm. Reykv. hneykslaðist á því, að ríkið aðstoðaði við þessar framkvæmdir, sem eru nauðsyn, og nauðsyn ekki sízt þeim hv. þm., sem talað hafa á móti þessu máli, ef miðað er við þeirra umbjóðendur. Það er Reykvíkingum nauðsyn og líka norðanmönnum nauðsyn. að þessar samgöngur séu í góðu lagi. Af því leiðir það, að menn þurfa ekki að kippa sér neitt upp við það, þó að slíkt komi fram sem þetta. — En um hitt má deila, sem hv. 7. þm. Reykv. virðist ætla að gera að einhverju meginefni og jafnvel ástæðu til þess að reyna að hindra það, að hlaupið verði hér undir bagga, að þetta allt verður nokkuð dýrt. En í samvinnun. samgöngumála eru ýmsir menn, sem þessum hlutum eru kunnugir og því sérstaklega, hvaða kostnaður fylgir því að koma af stað svona ferðum og hvað sé heilbrigt í því og verjanlegt.

Meðal þessara manna vil ég fyrst og fremst nefna hv. þm. Barð., sem ég veit, að hv. 7. þm. Reykv. muni viðurkenna sem nokkurt autoritet í þessum efnum. Og hann hefur allra manna mest talið sjálfsagt, að þessi stuðningur verði veittur þessu fyrirtæki, enda var hann líka spurður um það í n. á sínum tíma. Og hann telur þetta ekki aðeins sjálfsagt, heldur líka mjög verjanlegt og ekki sé hægt, eins og sakir standa, að komast að betri kjörum, með því líka, að þetta skip verði þeim mun betra en það áður var, — þó að hann ekki synji fyrir, að það hafi verið gott, áður en það strandaði. En samgmn., sem hafa verið þessu hlynntar, hafa byggt á traustum grundvelli, bæði í þessu tilliti og öðrum. þannig að ekki væri rasað fyrir ráð fram.

Hins vegar er það ekki mitt að dæma um það eða út frá því, þótt hv. 7. þm. Reykv. eða aðrir hafi verið sjóveikir á þessu skipi. Ég hef farið nokkrum sinnum á milli Reykjavíkur og Akraness og Borgarness. Og það er allra manna mál, — og þess vegna þarf hv. 7. þm. Reykv. ekkert að fyrirverða sig fyrir það —, að það sé versta svæði hér við land í þessu efni. þannig að menn haldist ekki heilir, á hversu góðum farkostum sem er. Og það eru ekki rök í þessu máli, þótt einhver reki upp fölt andlit á þessum leiðum. Og menn eiga að vera sem mest uppi, ef þeir eru sjóveikir, nema óveður sé.

Ég vænti, að ekki þurfi að vera miklar umr. um þetta mál frekar. Ég held, að rökin séu komin skýrt fram fyrir því, að rétt sé, að það nái fram að ganga í þeim búningi, sem n. leggur til. Og ég veit fyrir fullt og fast, að þessir tveir hv. þm., hv. 7. þm. Reykv. og hv. þm. A.-Húnv., hafa oft verið með því — og ég held á hverju þingi og jafnvel róið að því öllum árum — að veita ábyrgðir fyrirtækjum, sem hafa verið miklu varhugaverðari en hér er um að ræða.