19.02.1945
Efri deild: 131. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1438 í B-deild Alþingistíðinda. (3966)

279. mál, bankavaxtabréf

Frsm. (Haraldur Guðmundsson):

Það er aðeins eitt atriði í ræðu hv. 1. þm. Reykv., sem ég vildi drepa á. Hv. þm. spurði, hvaða þýðingu það hefði að samþ. þessa brtt., þar sem gert sé ráð fyrir að það sé bankinn, sem ákveður hversu mikill hluti af byggingarkostnaði lánsupphæðin skuli teljast, þar sem í till. séu ekki fyrirmæli um, að lána skuli ákveðinn hluta, heldur allt að ákveðnum hluta. Þetta er að vísu rétt að forminu til, en hins vegar er ekki þess að dyljast, að ef Alþ. samþ. þá brtt., sem hér liggur fyrir, er það eindreginn vilji Alþ., að bankinn hverfi frá þessari óeðlilegu varúð og færi sig þannig í áttina til móts við þörf þeirra manna, sem lán þurfa að taka. Ég sé enga ástæðu til að ætla, að stjórn bankans mundi. ekki taka þetta til greina, þó að ekki væri skorinorðara ákveðið í l. heldur en er eftir brtt. Ég er ekki á sömu skoðun og hv. 1. þm. Reykv. um það, að það hæfi ekki, að Alþ. setji nákvæmlega ákveðið mark fyrir lánveitingum, sem bankastj. sé skyldug að hlíta, og segi bankastj. fyrir um, með hvaða kjörum eigi að lána. Að sjálfsögðu kemur margt til greina hvað þetta snertir varðandi einstaka menn. En mér skildist á hv. þm., að í rauninni væri þetta allt í bezta lagi og það gerði ekki svo mikið til, þó að 1. veðréttar lán væru svona lág, því að þá fengist þeim mun meira. út á 2. veðrétt, og þó að vextirnir væru hærri, þá væri hægt að selja bréfin fyrir þeim muni hærra verð. Ég get ekki fallizt á þessa skoðun, að þetta sé svo þýðingarlaust sem hann gefur í skyn., Sannleikurinn er sá, að veðdeild er sú eina lánsstofnun, sem er byggð upp sérstaklega til þess að mæta þörf fyrir löng lán með tryggingu veðréttar. Henni er ætlað ákveðið hlutverk að inna af hendi, og hún bregzt því hlutverki, ef meginhluti þeirra manna, sem þarf að taka slík lán, neyðist til eða telur hagkvæmara að hverfa að öðrum leiðum til þess að fá lán heldur en að fá þau í veðdeild. Þetta er hvorki gott fyrir bankana né almenning í landinu og ekki heldur fyrir það fólk, sem á innstæður í bönkum, að geta ekki fengið af þeim neina vexti, þó að það liggi þar árum saman.