19.02.1945
Efri deild: 131. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (3976)
279. mál, bankavaxtabréf
Magnús Jónsson:
Það er aðeins út af bendingu hv. 6. þm. Reykv. Það er alveg sjálfsagt. að n. taki þetta fyrir til athugunar aftur, ef brtt. annaðhvort verða teknar aftur eða felldar. Ég teldi þó heppilegra, að þær væru teknar aftur, því að með því er ekkert misst, en sannleikurinn er sá, að ég hef nú verið að hugleiða þetta mál talsvert, og ég held, að í því, sem ég hef sagt um málið, hafi komið skýrt fram, að andmæli mín gegn brtt. hafa m.a. einmitt byggzt á því, að bankastjórnin hefur þetta nú alveg fullkomlega á sínu valdi. Hún hefur bæði á sínu valdi að nota heimildina alveg út, sem hún hefur ekki gert, og hún hefur einnig á sínu valdi að láta matið vera ríflegt. Hvort unnt er að koma þessu fyrir í frv. sjálfu, skal ég ekki segja um, en sjálfsagt er að taka það til athugunar og ef til vill ræða það við bankastjórnina. Annars er náttúrlega sú leið líka til fyrir Alþ. að láta vilja sinn í ljós í sérstakri þál. um þetta mál, annaðhvort frá þessari sömu d. eða Sþ., þ.e.a.s. ef það er raunverulega vilji þingsins að herða heldur á um útlán. Ég skal lofa að taka þetta til athugunar í nefndinni.