20.02.1945
Efri deild: 132. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (3980)

279. mál, bankavaxtabréf

Magnús Jónsson:

Við 2. umr. þessa máls kom hér fram brtt., sem þá var tekin aftur, en hún fjallaði um að hækka lánsheimild veðdeildarinnar og jafnframt um að breyta því, sem miðað er við, þegar lán eru veitt. Það hefur komið fram, að almennur vilji er fyrir því, að bankastjórnin fái að vita, að ætlazt er til, að lán verði rífari. Ég ber hér fram skrifl. brtt. um sama efni. Brtt. fjallar um, að hámarksákvæðunum í 6. gr. verði breytt þannig, að í stað 3/5 komi 3/4. Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta. Bankinn hefur þetta í hendi sinni, en engu að síður er gott, að þingið gefi þessa yfir lýsingu.