02.02.1944
Sameinað þing: 12. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í D-deild Alþingistíðinda. (3995)

20. mál, eftirlit með skipum

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Herra forseti. — Það eru aðeins örfá orð í tilefni af ræðu hv. þm. Barð. Hann beindi orðum sínum til mín í nokkrum tilfellum og á þann veg, að ég verð að gera við þau nokkrar athugasemdir.

Hv. þm. sagði, að hann vildi mótmæla því, að rétt væri, að eftirlit skipaskoðunarstjóra hjá Eimskip væri minna nú en áður hefði verið. Ég geri ráð fyrir, að þessi staðhæfing hans stafi af misskilningi. Ég hef orð skipaskoðunarstjóra sjálfs fyrir þessu. Ég veit, að hann er grandvar maður og segir ekki annað í þessu máli en það, sem rétt er. En til þess að gera frekar grein fyrir þessu skal ég upplýsa, hvernig þessu er háttað. Eimskip tekur af sér menn til þess að vera við eftirlitið, og af því hefur leitt, að störf skipaskoðunarstjóra eru minni nú. Þetta vildi ég bara upplýsa, af því að mér gafst tilefni til þess. Ég kom ekki inn á það atriði, hvort þessu ætti að breyta, en ég tel rétt að breyta því og að skipaskoðunarstjóri hafi ekki slík aukastörf með höndum. Ég vísa til þess, sem ég hef áður sagt, að það var á valdi Alþ. 1938 að kippa þessu í lag, en það var ekki gert þá. Það er að sjálfsögðu á valdi Alþ. nú að gera þetta, og ég tel það góða og rétta ráðstöfun að breyta þessu.

Hv. þm. sagði, að sig undraði, að ég sem atvmrh. skyldi hafa leyft Vísi að hafa þau ummæli, sem hann hefur viðhaft um þau slys, sem hér hafa orðið. Ég hef ekki veitt neitt leyfi, og ég hef ekki heldur verið spurður að því, því að ég hef ekki aðstöðu til að leyfa slíkt né banna, að blöðin segi eitt eða annað. Ef ummæli blaðanna varða við lög, þá geta þeir, sem þar eiga hlut að máli, sótt blöðin til saka, en atvmrh. hefur ekki vald til að segja blöðunum fyrir verkum.

Um hitt aðalatriðið, sem fram kom í orðum þessa hv. þm., að hann undraði, að ég skyldi láta þau orð falla, sem ég gerði í upphafi, og sagði hann í því sambandi, að það hefði staðið atvmrh. nær að verja skipaeftirlitið, þegar á það er ráðizt. Í þessu sambandi nefndi hann ádeilu, sem fram kom á skipaeftirlitið og skiparannsóknirnar. Atvmrh. gerði þá það, sem ég álít, að rétt hafi verið, sem sé að fyrirskipa rannsókn í því máli. Að þeirri rannsókn lokinni, sem leiddi í ljós, að skipaeftirlitið hafði ekki vanrækt skyldur sínar né átt neina sök á því, sem fyrir kom, var skýrslan birt almenningi. Ég tel, að þar hafi verið gert rétt með því að láta rannsókn fara fram og þeir hafi fengið sinn rétt, er áttu. — Það sama er um að ræða nú, og að fyrirskipun rn. mun það verða athugað og rannsakað, hvort ofhleðsla togaranna eigi sér stað fram yfir þær reglur, sem í gildi eru. Með því er verið að leita eftir, hvort nokkur ástæða sé að áfellast skipaeftirlitið. Og ef rannsóknin leiðir í ljós, sem ég vona, að skipaeftirlitið hafi gert skyldu sína, þá kemur það á daginn, að rn. hefur gert það, sem rétt var til að fá það rétta í ljós og til þess að láta alla njóta réttar síns.

Viðkomandi því, sem ég sagði um niðurlag till., þá vil ég taka undir það með hv. þm. Barð., að það þarf að fá ró um þessi mál, en ég álít, að fyrst eigi menn að fá tækifæri til þess að kynnast því rétta í þessum málum. Ró um málin er bezt fyrir alla, sem hlut eiga að máli, hvort sem eru sjómenn, þeirra fólk, sem í landi er, útgerðarmenn eða vátryggingarfélög eða hverjir aðrir aðilar, sem eru. Og það fæst bezt og varanlegust ró í þessu máli með því, að málin upplýsist og það komi hreint fram, hvað er það rétta í þeim.